Morgunblaðið - 03.01.2013, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21
U
„Upprunann má rekja til
þess að Helgi Jónas
skynjaði að þörfin var
fyrir hendi á hóp-
aþrektímum sem væru í
senn skemmtilegir, markvissir,
öruggir og þjálffræðilega vel upp
settir þannig að álagið væri hæfilegt
og hver og einn gæti fundið erf-
iðleikastig sem hentaði sér,“ út-
skýrir Gunnhildur. „Þannig að allir
gætu tekið þátt í, óháð því á hvaða
geturstigi og í hvaða formi þeir eru.“
Við byrjuðum með Metabolic í
Reykjanesbæ og Grindavík en nú í
dag er það kennt á 12 stöðum um
landið og fer þeim ört fjölgandi.
Skemmtilegt og árangursríkt
Að sögn Gunnhildar byggir kerfið
að mestu á hreyfingum sem líkjast
sem mest daglegum hreyfingum
okkar, labba upp
tröppur, beygja
okkur eftir hinu
og þessu, snúa
okkur við og svo
framvegis. Þann-
ig styrkjum við
líkamann í takt
við þær hreyf-
ingar sem honum
eru eðlilegastar.“
Gunnhildur bend-
ir á að á þegar lík-
amsþjálfun er annars vegar sé það
krafa iðkenda að æfingarnar búi yfir
fjölbreytileika, séu skemmtilegar,
taki stuttan tíma og skili góðum ár-
angri. „Þetta eru lykilatriðin þegar
líkamsþjálfun er annars vegar í dag,
og um leið þau atriði sem við höfum
lagt upp með."
Aðspurð um dæmi um æfingar
innan Metabolic-kerfisins tekur
Gunnhildur fram að ávallt sé byrjað
á svokölluðum leiðréttingaræf-
ingum. „Þar erum við að liðka kropp-
inn og teygja á þeim vöðvum sem
eru almennt stífir. Við erum upp til
hópa orðin slæm í axlargrindinni, til
dæmis, og þá byrjum við á að liðka
okkur og förum svo í dýnamíska
upphitun, þar sem erum að hita lík-
amann markvisst upp fyrir æfingu
og hreyfingu dagsins. Í framhaldinu
erum við í þreki og þar erum við með
fjóra lykiltíma,“ útskýrir Gunn-
hildur. „Þeir eruburn,strength,end-
uranceogpower. Þetta eru hin fjögur
lykil-orkukerfi sem við skiptum tím-
unum upp í. Innan þessara fjögurra
konsepta eru svo til óteljandi tímar
sem geta innihaldið planka, arm-
beygjur, róður, hlaup, hopp og
margt, margt annað.“
Að kenna nýjan og betri lífsstíl
Gunnhildur leggur áherslu á að
kerfið byggi í aðalatriðum á því að
fólki líði vel í líkamanum sínum. Me-
tabolic kerfið er mjög árangursríkt
án þess að vera á nokkurn hátt maní-
skt, myndi ég segja. Allir þjálf-
ararnir okkar eru fagmenntaðir áður
en þeir fá að vera Metabolic-
þjálfarar, þannig að við leggjum
mikið upp úr öryggi iðkenda og fag-
mennsku þjálfara. Það sem iðkend-
urnir segja gjarnan er að hjá okkur
er mikið til venjulegt fólk, sem vill
hafa gaman af því að æfa og ná ár-
angri, og ég verð að segja að það er
minni áhersla á útlitið hjá okkur. Í
því sambandi má nefna að það eru
ekki einu sinni speglar í æfingasöl-
unum hjá okkur.
Loks bendir Gunnhildur á að það
er ekkert sem heitir “átaks-
námskeið“ í Metabolic-þjálfuninni.
„Við leggjum áherslu á að hreyfing
er lífstíll, sem er ekkert mál þegar
æfingarnar eru fjölbreyttar,
skemmtilegar og í kjölfarið árang-
ursríkar. Í janúar erum við að kynna
nýjung sem nefnist Metabolic Lif-
estyle Club, og þar erum við að
kenna fólki að breyta um lífsstíl í
þriggja mánaða löngu námskeiði þar
sem blandast saman líkamsrækt og
heilsumarkþjálfun. Í þessu pró-
grammi eru þátttakendur í vikulegu
einn-á-einn viðtali við þjálfara sam-
hliða Metabolicþjálfun. Þar erum við
erum að leggja fólki fyrir verkefni og
skrefa þau nær markmiði sínu. Með
smá breytingu í hverri viku er hægt
að breyta hugsunarhættinum til
betri vegar og breyta um leið lífs-
stílnum til lengri tíma, ólíkt átaks-
námskeiðum sem eru til 4 eða 6
vikna og síðan ekki söguna meir. Ég
var sjálf vön að fara á átaks-
námskeið, og formið var óttalegt jójó
um leið, en það er ekki það sem Me-
tabolic gengur út á,“ segir Gunn-
hildur að endingu. „Þvert á móti er-
um við að kenna fólki nýjan og betri
lífsstíl.“
jonagnar@mbl.is
Lífstíll „Við leggjum áherslu á að hreyfing er lífstíll, sem er ekkert mál þegar æfingarnar eru fjölbreyttar,
skemmtilegar og í kjölfarið árangursríkar,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir hjá Metabolic.
Nýr og
betri lífsstíll
Metabolic er íslenskt æfingakerfi hannað af Helga Jónasi
Guðfinnssyni, en hann er einn aðalhöfundur að ÍAK-
einkaþjálfaranáminu. Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir á
Metabolic ásamt Helga og hún segir frá kerfinu.
Gunnhildur Erla
Vilbergsdóttir
MIKLU MEIRI
HOLLUSTA
Láttu skynsemina ráða og byrjaðu daginn á
bragðgóðum og miklu hollari morgunverði.
Í græna Skráargatinu er lykillinn að hollara mataræði. Merkið var fyrst tekið upp í Svíþjóð árið 1989
og hefur síðan öðlast sess sem norræna hollustumerkið, nú síðast á Íslandi. Vörur merktar Skráargatinu
uppfylla strangar kröfur um hollustu. Þess vegna er Fitness merkt með Skráargatinu.ÍSL
E
N
SK
A
SI
A
.IS
N
AT
61
02
8
09
.2
01
2
GRÆNA
SKRÁARGATIÐ
Hjálpar þér að velja
hollasta kostinn.
FÆRRI
KALÓRÍUR.
MEIRA
AF TREFJUM.
41%
MINNI SYKUR
en í sambærilegum
heilsukornflögum.
50%
HEILKORNA.
MIKILVÆG
NÆRINGAR-
EFNI.