Morgunblaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 4
SVIÐSLJÓS
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Stóra stríðið í næstu kosningum
verður því á milli Sjálfstæðisflokks-
ins og Samfylkingarinnar – af stærð
og styrk þessara flokka mun framtíð
íslensks samfélags ráðast,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar og forsætisráð-
herra, á setningarfundi landsfundar
flokksins í gær.
Jóhanna sagðist í ræðu sinni þakk-
lát fyrir stuðninginn sem hún hefði
fengið í störfum sínum sem formað-
ur og stolt af því að sinn flokkur
hefði verið fyrstur íslenskra stjórn-
málaflokka til að fela konu að gegna
embætti forsætisráherra fyrir fjór-
um árum. Hún sagði flokkinn hafa
gengið í gegnum sögulegan örlaga-
tíma þjóðarinnar, tíma átaka, reiði,
upplausnar, ólgu, tortryggni og ör-
yggisleysis í samfélaginu. En einnig
tíma árangurs, uppbyggingar, end-
urreisnar, breytts verðmætamats,
aukinna fjölskyldutengsla og tíma
endurmats. Jóhanna sagði ríkis-
stjórnina hafa lokið við 180 af 222
verkefnum samstarfssáttmála ríkis-
stjórnarinnar nú í lok kjörtímabils.
Ríkisstjórnin hefði sýnt að jafnað-
armenn gætu stýrt ríkisfjármálum
og efnahagsmálum af ábyrgð, gætu
tryggt frið á vinnumarkaði, aukið
kaupmátt og byggt upp öflugt at-
vinnulíf og fjölbreytt í sátt við um-
hverfi og náttúru.
Jóhanna sagði ríkisstjórnarsam-
starfið ekki hafa gengið áfallalaust
fyrir sig og oft hefði ríkt mikil óein-
ing innan samstarfsflokksins, of
margir hefðu gefist upp og það hefði
valdið skaða. Hún þakkaði samstarf-
ið við Steingrím J. Sigfússon, for-
mann VG, og sagði það traust.
Fjölmörgum verkum ólokið
Hún nefndi verkefni sem þyrfti að
ljúka á kjörtímabilinu. Auk breyt-
inga á fiskveiðistjórnun og stjórnar-
skrá nefndi hún nýtt almannatrygg-
ingakerfi, áætlun um afnám gjald-
eyrishafta, endurskipulagningu
fjármálakerfisins, mál tengd skulda-
vanda heimilanna, baráttu við kyn-
bundinn launamun, innleiðingu ný-
skipunar auðlindamála innan
Stjórnarráðsins, fjölgun starfa, mót-
un trúverðugrar stefnu í atvinnu- og
efnahagsmálum til framtíðar og
framgang fjárfestingarverkefna sem
í undirbúningi væru.
Jóhanna ræddi lyktir Icesave-
málsins og sagði að þær væru ekki
áfellisdómur yfir þeim ríkisstjórnum
sem setið hefðu frá haustinu 2008.
„Ríkistjórnin gat ekki leyft sér að
taka mikla áhættu í málinu enda um
gríðarlega hagsmuni þjóðarinnar að
tefla,“ sagði Jóhanna og spurði:
„Hver hefði kostnaður samfélagsins
orðið við að taka áhættuna og segja
strax í upphafi: Við borgum ekki?“
Hún sagðist ekki hefðu viljað bera
ábyrgð á þeirri vegferð.
Nýr formaður kynntur í dag
Um 1.100 landsfundarfulltrúar
eiga sæti á landsfundinum og hann
stendur fram á sunnudag. Í dag fyrir
hádegi verða úrslit tilkynnt í kjöri til
nýs formanns Samfylkingarinnar, en
kosið var milli Árna Páls Árnasonar
og Guðbjarts Hannessonar. Óhætt
er að segja að eftirvænting ríki um
úrslitin en allir flokksmenn gátu kos-
ið rafrænt og kosningu lauk í upphafi
vikunnar. Síðdegis í dag verður kosið
um næsta varaformann, en þær
Oddný G. Harðardóttir og Katrín
Júlíusdóttir hafa lýst yfir framboði.
Fyrir landsfundinum liggja drög
að fjölmörgum tillögum að ályktun-
um flokksins ásamt tillögum að laga-
breytingum, meðal annars tillaga um
stofnun þriggja manna sáttanefndar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Setningarræða Jóhanna Sigurðardóttir setti landsfund Samfylkingarinnar, sem haldinn er undir yfirskriftinni „Á réttri leið“. Fundinum lýkur á morgun.
Segist stolt í lok ferilsins
Boðar stríð við Sjálfstæðisflokkinn 1.100 fulltrúar á landsfundi Samfylking-
arinnar Nýr formaður kynntur í dag Jóhanna segir 180 af 222 verkum lokið
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
Segja má að landsfundur Sam-
fylkingarinnar sé upptaktur
flokksins fyrir komandi þing-
kosningar og mátti þess glöggt
heyra merki í ræðu Jóhönnu
Sigurðardóttur, fráfarandi for-
manns og forsætisráðherra.
Mjög skýrt kom fram hver
höfuðkeppinautur flokksins
væri í komandi kosningum.
Jóhanna nefndi Sjálfstæðis-
flokkinn eða sjálfstæðismenn 11
sinnum í ræðu sinni og íhalds-
öflin nefndi hún tvisvar.
Ekki einu orði var vikið að
Framsóknarflokknum eða fylg-
ismönnum hans. Björt framtíð
kom einu sinni fyrir í ræðunni
og Hreyfingin einu sinni einnig.
Jóhanna sagði smærri flokka
ekki ná fram neinum breyt-
ingum í ríkisstjórnarsamstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn.
Nefndur ell-
efu sinnum
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við gerðum okkur vonir um að skapa 552 störf með
verkefninu frá og með desember til 1. febrúar. Raunin er
að tekist hefur að skapa ríflega 600 störf síðan verkefnið
hófst 15. janúar en það hafði þá tafist,“ segir Halldór
Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, um eftir-
spurn eftir vinnuafli í átaksverkefninu Liðsstyrkur.
„Verkefnið nær til fólks sem kláraði bótarétt 1. sept-
ember á síðasta ári og þeirra sem klára bótaréttinn á
yfirstandandi ári. Þetta þýðir að við náum til fólks sem
hefur verið atvinnulaust síðan það missti vinnuna 1. sept-
ember 2008. Bótarétturinn er þrjú ár en var framlengdur
í fjögur ár tímabundið í framhaldi af efnahagshruninu.
Atvinnurekendum er boðið að ráða þessa einstaklinga til
starfa og fá í staðinn ákveðna meðgjöf í sex mánuði.
Væntingar okkar eru að þarna verði til ný og varanleg
störf en við leggjum á móti til stofnkostnað og þjálf-
unarkostnað fyrir starfsfólkið. Þrátt fyrir að einhver
starfanna endist aðeins út samningstímann, eða sex mán-
uði, lítum við svo á að einstaklingarnir hafi þá fengið að
spreyta sig og hafi á ferilskránni að hafa gegnt viðkom-
andi starfi og verið virkir á vinnumarkaði.“
Rúmlega 600 störf hafa
skapast í átaksverkefni
Átakið Liðsstyrkur fer vel af stað Greitt með starfsfólki
Byggingarvinna Atvinnuleysi er enn mikið.
Formannskjöri Samfylkingarinnar
verður lýst á landsfundi flokksins
kl. 11.30 í dag en í framboði voru
Árni Páll Árnason og Guðbjartur
Hannesson.
Framboðsfrestur til varafor-
manns rennur út kl. 13 í dag en kos-
ið verður um embættið á milli kl. 15
og 16 og úrslitunum lýst kl. 16.20.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sungið Frá landsfundi í gær.
Úrslit formanns-
kjörs kynnt kl. 11.30
’
Fyrsta meirihlutaríkisstjórn jafn-
aðarmanna og félagshyggjufólks
fékk það meginhlutverk í vöggugjöf að
leiða rústabjörgun samfélagsins, eftir
að bóluhagkerfi frjálshyggjunnar
hrundi. En okkur var einnig ætlað að
innleiða breytingar, leggja grunn að
betra samfélagi í stað þess sem hrundi,
í anda norrænnar velferðar.
’
Ekki dreg ég úr því að markmið
okkar voru háleit og verkefnin ótrú-
lega mörg, en staðreyndin er hinsvegar
sú að nú, þegar líður að lokum kjör-
tímabilsins, hafa yfir 180 af 222 verk-
efnum samstarfssáttmálans náðst í
höfn og flest hin eru í góðum farvegi
eða komin til framkvæmda að miklu
leyti.
’
Ekki dettur mér í hug að halda því
fram að ríkisstjórnarsamstarfið
hafi gengið átakalaust eða áfallalaust
fyrir sig og ég viðurkenni fúslega að of
mikil óeining hefur ríkt innan sam-
starfsflokksins – of margir gáfust upp á
verkefninu, sem valdið hefur ríkisstjórn-
inni skaða.
’
Með nýfenginni niðurstöðu í Ice-
save, þar sem fullnaðarsigur
vannst og fjárhagslegri og efnahags-
legri óvissu Íslands vegna málsins var
endanlega eytt, hafa efnahagslegar
stoðir endurreisnarinnar verið treystar
gríðarlega. Öll hljótum við að fagna
þessari niðurstöðu mjög, enda gefur
hún okkur enn frekari tækifæri til að
sækja fram.
’
Stóra stríðið í næstu kosningum
verður því á milli Sjálfstæðisflokks-
ins og Samfylkingarinnar – af stærð og
styrk þessara flokka mun framtíð ís-
lensks samfélags ráðast.
’
Framtíð aðildarviðræðna Íslands að
ESB mun ráðast af stærð Samfylk-
ingarinnar en aðild er vegvísirinn til
lægri vaxta, stöðugs gjaldmiðils, auk-
innar þjóðarframleiðslu og afnáms
verðtryggingar.
Orðrétt
UNDIR HRAUN
holar@simnet.is
Einstök bók Sigga á
Háeyri um gosið í
Heimaey.
Prýdd fjölda mynda.
1. sætið á metsölu-
lista Eymundsson,
23.-29. janúar.