Morgunblaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
BJÓÐUM NOKKRAR
GERÐIR AF
FERMINGARBORÐU
M.
Fjölbreyttir réttir smáréttabo
rðanna
okkar henta bæði í hádegis-
og kvöldveislur.
Steikarhlaðborðin eru alltaf
vinsæl, sérstak-
lega ef um kvöldveislu er að
ræða. Bjóðum
upp á tvær gerðir kaffihlaðb
orða, en einnig
er í boði að panta einstaka h
luta úr þeim. t.d
Kaffisnittur, fermingartertur.
Pinnahlaðborð
eru þægileg og slá hvenær s
em er í gegn.
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
æðisleg
veislan
verður
Ferming
ar-
Góð ferm
ingar-
veisla lifi
r lengi
TapasSmáréttir Kalt borð P
innamatur
SÚPA BRAUÐ OG SM
ÁRÉTTIR
Hádegisveisla á mill
i kl 12 - 14
Verð frá kr. 2.412
TAPASVEISLA 9 RÉT
TIR
Síðdegisveisla 16 -1
9
Verð frá kr. 3.095
TERTU OG TAPASBO
RÐ.
Miðdegisveisla 13 -
15
Verð frá kr. 3.222
STEIKARBORÐ
Kvöldveisla 17 - 20
Verð frá kr. 3.095
FERMINGARKAFFIH
LAÐBORÐ
Miðegisveisla 14 - 1
7
Verð frá kr. 2.090
LÉTTIR FORRÉTTIR
OG
STEIKARBORÐ
Verð frá kr. 3.640
PINNAMATUR
Miðdegisveisla 14-1
7
Verð frá kr. 2.460
KALT HLAÐBORÐ
FISKRÉTTIR
Verð frá kr. 4.687
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur verið óþægilegt að láta
róta of mikið upp í málum sem þú telur að þú
hafir afgreitt fyrir löngu. Góðir hlutir gerast
þegar þú slakar á.
20. apríl - 20. maí
Naut Færni sem nautið tileinkar sér, gerir því
auðveldara að auka tekjurnar fyrr en síðar.
Farðu eftir eigin sannfæringu og óttastu ekki
því heilladísirnar vaka yfir þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Finndu góðar aðferðir til að afla
meiri tekna, því útgjöld eru á næsta leiti sem
þú vilt geta borgað. Settu þér mörk og neit-
aðu að láta ganga yfir þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hagnast í dag, sama hvað þú tekur
þér fyrir hendur. Mundu bara að gera ekki
áberandi upp á milli manna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þroski felur það meðal annars í sér að
fara eins hægt og þarf til þess að maður geti
verið viss um hvert skref. Ekki einblína á það
hver hefur lagt mest af mörkum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Andleg óþreyja verður líkamleg með
tímanum ef ekkert er að gert. Finndu upp-
sprettuna og gakktu hreint til verks; þetta er
misskilningur, sem þú auðveldlega yfirvinnur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Skyndilega hefurðu þörf fyrir að tjá þig,
og vilt helst ræða allar tilfinngar sem fara um
hjartað þitt. Varastu að senda öðrum misvís-
andi skilaboð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Skoðir þú gang mála undanfar-
inn áratug kemstu að því að þú hefur tekið
stakkaskiptum. Hugmyndir þínar eru skyn-
samlegar og raunhæfar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hættu að vantreysta sjálfum þér
því þú ert fullfær um að takast á við hlutina
og hefur nægilega þekkingu. Leyfðu svo
sköpunarþránni að fá útrás – það bæði gleð-
ur og hjálpar þér áfram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Varastu að gagnrýna aðra um of
því þú ert nú sem hvorki betri né verri sjálfur.
Leikaraskapur fellur bara um sjálfan sig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt komast að því að hæfi-
leikar þínir liggja á mörgum sviðum. Láttu því
ekki hanka þig á því að hafa ekki lesið heima
og gefðu þér góðan tíma því miklu skiptir að
árangurinn verði sem bestur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt kunna að meta allan þann
tíma, sem þú hefur fyrir sjálfa/n þig í dag.
Láttu ekkert koma þér á óvart þegar leitað
verður eftir stuðningi þínum við ákveðið mál.
Ég sá karlinn á Laugaveginumþar sem hann tvísté á horn-
inu við Frakkastíginn og var eins
og á báðum áttum. Hann hafði
orð á því, að það væri eitthvað
óhreint á ferli í kringum kotið
uppi á Holtinu:
„Það var vitleysa, vitleysa tóm
þeir vildu fá koss fyrir blóm
því karlrembu vegir
eru krókóttir,“ segir
mín kerling og skellir í góm.
Ég hef alltaf haft gaman af
þessum limrum Kristjáns Karls-
sonar og geri ekki upp á milli
þeirra. En auðvitað eru þær
„braggð-lausar“ nema farið sé
með þær upp á fnjóskdælsku og
kveðið fast að eins og séra Hjört-
ur Pálsson skáld gerir, – segir
„saggði“ fyrir sagði og „þaggði“
fyrir þagði:
Allt sem William Shakespeare sagði,
það sagði hann óðara að bragði.
Ef hann vantaði orð
sem lá aldrei við borð
gekk hann út og skaut sig og þagði.
Allt sem William Shakespeare sagði,
það sagði hann óðara að bragði.
Ef hann sagði ekki orð,
sem lá alltaf við borð,
var ástæðan sú að hann þagði.
Og rétt er að láta þessa limru
eftir Kristján fylgja í kjölfarið.
„Andartak, ef ég hef tíma,“
sagði íslenskumaður í Lima.
Það falaði hann stúlka
sem lá breidd upp á búlka
eða bekk, ef þú kannt ekki að ríma.
Og nú tel ég rétt að taka
nokkrar vísur úr vísnasafni, sem
ég fékk úr fórum föður míns.
Fyrst verður fyrir mér þessi átak-
anlega staka eftir Guðríði í Múla-
koti:
Heyrðu drottinn, sárt ég syng
með sorgarkvaki löngu
sendu björg á Bleikaling
börnunum mínum svöngu.
Hér kveður við annan tón:
Grettir át í málið eitt
nautsmagál og kletti feitt.
Flotfjórðung og fiska tólf,
fjóra limi og endikólf.
Og svo þessi hringhenda:
Greyskinnsanginn Glosi minn
gengur svangur bæinn
fjarska banginn út og inn
endilangan daginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Karlrembu vegir
eru krókóttir
Í klípu
„HANN HLÝTUR AÐ VERA EITTHVAÐ
BILAÐUR, ÉG ER STEINHÆTTUR
AÐ VEIÐA KONUR MEÐ HONUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ ERUM EKKI YFIR OKKUR
HRIFIN AF VEISLUÞJÓNUSTUNNI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá að þú hefur
náð athygli hans.
VERKSTÆÐI
TJALDSVÆÐI
HVAÐ ER AÐ, LEIFUR
ÓHEPPNI?
ÆI, ÉG ER BARA EINHVERNVEGINN EKKI
Í STUÐI TIL AÐ SKEMMTA MÉR Í KVÖLD.
NÝJA MYNDIN MÍN ER
EINSKONAR STEF VIÐ
SÍGILDAR VARÚLFAMYNDIR.
HÚN ER UM STELPU
FRÁ HÚSAVÍK SEM
BREYTIST Í KÚ.
HÚN BYRJAR
Á BAULI
SEM FÆR
MANN TIL
AÐ SKJÁLFA.
HÚN FÆR POTT-
ÞÉTT ÓSKAR.Víkverji fékk staðfestingu á sann-færingu sinni í nýlegri rann-
sókn – og því ber ávallt að fagna
eins og gefur að skilja. Þannig er
mál með vexti að Víkverja hefur
aldrei nokkurn tíma liðið vel á lík-
amsræktarstöð enda má varla
segja að hann hafi stigið fæti þang-
að inn svo heitið geti. Að öllu gríni
slepptu þá hefur Víkverji kannski
farið einu sinni inn á líkamsrækt-
arstöð. Í þetta eina skipti fylltist
hann einhvers konar ónotakennd
við að horfa á fullan sal af fólki
hamast eins og hamstra á hjóli með
tilheyrandi líkamslykt og óþægi-
lega mikilli nærveru. Víkverji fann
strax að þangað væri fátt fyrir
hann að sækja.
x x x
Í kóreskri rannsókn sem Víkverjilas um var andlegt ástand há-
skólakvenna á þrítugsaldri skoðað,
þar sem þær æfðu annars vegar í
líkamsræktarsal og hinsvegar í
skógi. Í stuttu máli má segja að í
ljós kom að röskleg ganga í skógi
jók ánægju og minnkaði streitu en
áhrifin við að ganga í líkamsrækt-
arsal voru öfug, það er aukin
streita og minnkuð ánægja. Þess
ber þó að geta að hvers kyns
hreyfing er alltaf góð, hvort sem
hún er innan- eða utandyra. En við
gönguna í skógi losnar um steitu
og einstaklingurinn kemst í gott
skap.
x x x
Hér á landi má segja að annarvorboði sé kominn þegar
fyrstu sólargeislar vorsins taka að
ylja Frónbúum, ekki lóan, gott fólk,
heldur her manns sem hefur drösl-
að göngubrettum, spinninghjólum
og öðrum ámóta tækjum út úr lík-
amsræktarstöðinni. Þarna púlar
fólkið því það langar mikið til að
sameina útiveruna og líkamsrækt-
ina. Jú, mikið rétt, það er víst ekki
hægt að fara hreinlega út að
ganga, hlaupa eða hjóla undir
hækkandi sól vorsins því það er bú-
ið að fjárfesta í rándýrum kortum
sem veita aðgang að herlegheit-
unum. Víkverji veit nefnilega ekki
hvort hann á að hlæja eða gráta
þegar sú sýn blasir við honum sem
gjarnan birtist í fjölmiðlum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn
leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.
(Jóhannesarguðspjall 10:11)