Morgunblaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 40. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vinningshafinn í dásamlegu losti
2. Geturðu ekki bara drepist?
3. Brúðkaup Önnu Mjallar
4. Kannastu við munina?
High Life, tímarit breska flug-
félagsins British Airwaves, telur hina
íslensku Lucky Records eina af sex
bestu plötuverslunum heims, í sam-
antekt sem finna má á vef þess, ba-
highlife.com. Sex plötuverslanir eru
nefndar, m.a. í borgunum Vín, Seúl og
Jóhannesarborg. Verslunina rekur
Ingvar Geirsson í Reykjavík.
Morgunblaðið/Heiddi
Lucky Records ein af
þeim bestu í heimi
Hjónin Anna
Mjöll Ólafsdóttir
og Luca Ellis
halda í kvöld tón-
leika á Café Ros-
enberg, Klappar-
stíg 27 og hefjast
þeir kl. 21. Anna
Mjöll hefur komið
fram sem djass-
söngkona í Los Angeles um árabil og
Ellis hefur starfað með þekktum tón-
listarmönnum í sömu borg og einnig
brugðið sér í hlutverk Franks Sinatra
í söngleikjum.
Anna Mjöll og Ellis
syngja á Rosenberg
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP
hóf DUST 514-orrustu í Norður-
ljósasal Hörpu í gær og mun hún
einnig standa yfir í dag. Gestir geta
prófað nýjan tölvuleik fyrirtækisins,
DUST 514 sem var fyrir skömmu
gerður aðgengilegur almenningi í
sk. Beta-prufuútgáfu.
Viðburðurinn er hluti
af UT-sýningunni sem
hófst í gær í Hörpu
en á henni kynna
tölvu- og tækni-
fyrirtæki starf-
semi sína.
DUST 514-orrusta í
Norðurljósasal
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 talsverð rigning SA-lands, en annars væta með
köflum. Hiti 3 til 8 stig.
Á sunnudag Suðaustan 8-15 m/s og rigning SA-lands, hægari NV-læg eða breytileg átt
og slydda eða rigning V-til og síðar él. Annars úrkomulítið. Hiti 0 til 5 stig.
Á mánudag og þriðjudag Austlæg átt, fremur hæg og sums staðar dálítil él, en bjart-
viðri N-til. Hiti kringum frostmark, en vægt frost til landsins.
Þór Þorlákshöfn fagnaði góðum sigri
gegn Stjörnunni, 105:100, þegar liðin
áttust við í Dominos-deild karla í
körfuknattleik í Þorlákshöfn í gær-
kvöld. Þór komst með sigrinum upp
að hlið Snæfells í annað sætið. Þá
vann Tindastóll afar dýrmætan sigur
í botnbaráttunni þegar liðið hafði
betur á heimavelli sínum gegn
Fjölnismönnum. »2
Stjörnumenn lágu fyrir
Þór í Þorlákshöfn
Handknattleiksmaðurinn
Hannes Jón Jónsson er
byrjaður að spila á ný með
liði sínu í Þýskalandi eftir
að hafa gengist undir að-
gerð vegna krabbameins
fyrr í vetur. Hann er á fullu í
lyfjameðferð en æfir nú
og spilar með Eisenach.
„Ég hef verið mjög hepp-
inn og hugsa vel um sjálf-
an mig,“ segir Hannes. »1
Hannes í lyfja-
meðferð en spilar
Ísland er á hættusvæði þegar kemur
að veðmálasvindlinu í fótboltanum.
Hingað koma leikmenn sem fá ekki
mikið borgað og eru fyrir vikið auð-
veldustu fórnarlömb svindlaranna,
sem leita þá uppi sem liggja best við
höggi og reyna að freista þeirra með
háum fjárhæðum á þeirra
mælikvarða. Og
hver segir að
íslenskur
íþróttamaður á
samskonar
róli sé ekki
jafnauðveld
bráð? »4
Ísland er á hættusvæði
fyrir veðmálasvindlið
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Börn og unglingar í Breiðholtinu
hafa einsett sér að bæta og breyta
ímynd hverfisins með jákvæðum og
uppbyggilegum hætti. Breiðholtið
hefur lengi verið í hlutverki ljóta
andarungans meðal úthverfa
Reykjavíkur þrátt fyrir að þar sé að
finna, líkt og í öðrum hverfum, fjöl-
breytta byggð, nálægð við ein bestu
útivistarsvæði höfuðborgarinnar og
öflugt barna- og unglingastarf.
Í samstarfi við félagsmiðstöðvar
hverfisins, skóla og ungmennaráð
Breiðholts hafa unglingar hverfisins
skipulagt góðgerðarviku og rennur
allur ágóði vikunnar til Ljóssins
sem er endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir fólk sem hefur
fengið krabbamein.
Metnaðarfull söfnun
Kári Sigurðsson, umsjónarmaður
verkefnisins, segir metnaðinn mik-
inn hjá unglingunum. „Þau hafa
bakað kökur og snúða í frítíma sín-
um og selt, unnið fyrir Vetrarhátíð
Reykjavíkur og fengið styrki frá
fyrirtækjum í Breiðholtinu í söfnun
sinni fyrir Ljósið.“ Allur ágóði af
rekstri skólasjoppunnar í Hóla-
brekkuskóla rennur líka til söfn-
unarinnar að sögn Kára.
„Góðgerðarvikan endar svo með
góðgerðarballi á laugardagskvöldið
en fyrr um daginn býðst öllum ung-
lingunum að taka þátt í smiðjum fé-
lagsmiðstöðvanna þar sem þau geta
lært að dansa, búa til sushi og
margt fleira,“ segir Kári sem bendir
á að búið sé að selja 250 miða
á ballið og allur ágóði
rennur auðvitað til
Ljóssins.
Þó að góðgerðar-
ballið sé endapunktur
viðburðaríkrar viku má
segja að hápunkturinn
hafi verið í gærkvöldi
þegar keppnin Breiðholt’s Got Tal-
ent var haldin. Þar sýndu ungmenn-
in hæfileika sína í fjölbreyttum at-
riðum og auðvitað fengu allir sinn
skammt af uppbyggilegum ábend-
ingum frá dómurum keppninnar.
„Við látum neikvæðar athugasemdir
og dóma alveg eiga sig. Þessu er
fyrst og fremst ætlað að fá fjöl-
breytt atriði, skemmta okkur og ýta
undir það að unglingarnir láti ljós
sitt skína. Auðvitað gerum við líka
smá grín að atriðum og reynum að
hafa stemninguna létta og skemmti-
lega.“
Í fyrra var fullt út úr dyrum í
Breiðholtsskóla þar sem keppnin er
haldin og á því var engin breyting
nú. Ellefu atriði tóku þátt í keppn-
inni í ár.
Bæta ímynd Breiðholtsins
Söfnuðu fyrir
Ljósið í góðgerðar-
viku í Breiðholti
Hæfileikakeppni Keppnin Breiðholt’s Got Talent er orðin árlegur viðburður í Breiðholtinu og komast færri að en
vilja. Ellefu atriði kepptu um hylli dómaranna og að venju var fullt út úr dyrum þar sem keppnin fer fram.
Hluti af því að breyta ímynd Breiðholtsins er að geta gert grín að
sögusögnum og umtali um hverfið. Þannig hafa leikmenn í
Leikni sungið um uppruna sinn í gettóinu og unglingar í hverf-
inu hafa snúið merkingunni upp í jákvæðari tón. „Stundum er
best að gera grín að þessu öllu saman og fást við neikvæðni
með jákvæðum viðbrögðum,“ segir Kári Sigurðsson, um-
sjónarmaður góðgerðarviku Breiðholtsins. Að hans sögn
leiðist börnum og unglingum hverfisins slæmt umtal um
hverfið og það hafi verið hvatinn að góðgerðarvikunni,
viku sem ætlað er að breyta og bæta ímynd Breiðholtsins
sem að sögn unglinganna er frábær staður og enginn
eftirbátur annarra hverfa borgarinnar.
Gera grín að gömlum mýtum
ÞAÐ ER GOTT AÐ BÚA Í BREIÐHOLTINU
Kári Sigurðsson