Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 Í Sunnudagsblaðinu í dag er rætt við unga konu sem hefur alltaf fundist hún eiga að bera nafn ömmu sinnar, þrátt fyrir að vera skírð öðru nafni. Í stað þess að dvelja við þá hugsun ákvað hún, komin á þrítugsaldur, að bæta hreinlega nafni ömmu sinnar heit- innar framan við sitt eigið skírn- arnafn. Hún ákvað semsagt að gera eitt- hvað í málinu í stað þess að sitja heima og væla yfir því að hafa ekki verið skírð nafninu. Svona framtakssemi er alltaf skemmtileg, sérstaklega af því við erum svo gjörn á að láta hlutina eiga sig ef þeir eru of flóknir. Eða bara ef þeir líta út fyrir að geta orðið flóknir. En oft er einfaldara en það virðist að hætta að væla og hjóla í verkefnin. Taka lífinu – og sjálfum sér – bara passlega alvar- lega og velja sér það að sjá ekki vandamál í einföldum verkefnum. Lífið má líka alveg vera skemmtilegt. Í blaðinu í dag leit- um við álits fjölmargra á því hvert sé besta íslenska sælgætið, skoð- um hvernig fólki finnst best að bæta sætindum í líf sitt. Allt er gott í hófi er sagt ... en sumt er gott í aðeins meira magni en hinu alræmda hófi. Rúsínur og kexkúl- ur hjúpaðar súkkulaði hljóta til dæmis að falla í þann flokk. Í sam- antekt blaðsins í dag skiptir engu hvort rætt er við þingmann, tón- listarmann, prest eða forseta- frambjóðanda; allir hafa skoðun á því hvaða sælgæti þeir/þær vilja helst inn fyrir sínar varir. Lífið getur verið sætt og súrt og verkefnin sem okkur eru falin mis- skemmtileg. En eins og marg- tuggin klisja býður okkur ættum við frekar að líta á vandamálin sem á daga okkar drífur sem verkefni. Hver svo sem verkefni helgar- innar eru þá er engin ástæða til að láta sér leiðast eða leyfa sér að súrna yfir smámunum. RABBIÐ Hættum að væla Eyrún Magnúsdóttir Krakkar hér uppi á Íslandi velta líklega ekki mikið fyrir sér lönguföstu eða öðrum gömlum góðum venjum úr kaþólskum sið eða hvers konar brögðum sem kennd eru við trúna. Eða hvað? Getur verið að langafasta yngstu kynslóðarinnar sé óvart staðreynd, a.m.k. í einhverjum tilfellum, sem nammibind- indi? Ekki er loku fyrir það skotið að einhverjir í það minnsta dragi verulega úr sætindaneyslu að öskudeginum liðnum, einfaldlega vegna þess að þeir fái upp í kok af slikkeríi þann dag! Dæmi eru um að börnin beri heim nokkur kíló sælgætis eftir söngferðalagið. Öskudagurinn hefur löngum verið í hávegum hafður á Akureyri en siðurinn skemmtilegi hefur sem betur fer náð fótfestu um allt land ungum og flestum fullorðnum til ómældrar gleði. Þessar vösku stúlkur þeystu um Akureyri á miðvikudaginn á heimatilbúnum fákum og sungu lagið skemmtilega, Ég sé um hestinn, með miklum tilþrifum. skapti@mbl.is AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ÉG SÉ UM HESTINN MIÐVIKUDAGURINN Í SJÖUNDU VIKU FYRIR LÖNGUFÖSTU – ÖSKUDAGURINN – ER SANNKÖLLUÐ HÁTÍÐ BARNANNA. EITTHVAÐ ER UM AÐ FORELDRAR OG BÖRN LEGGI MIKIÐ Í BÚNINGAGERÐ OG SÖNGÆFINGAR. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Listamannsspjall með Ívari Valgarðssyni. Sýningin Til spillis. Hvar? Í Hafnarhúsinu. Hvenær? Sunnudag kl. 15. Listamannsspjall Hvað? Hinir árlegu Bergþórutónleikar. Hvar? Í Hofi. Hvenær? Laugardag kl. 20:30. Nánar: Eyjólfur Kristjánsson, Stefán Hilmarsson og Ellen Kristjánsdóttir í broddi fylkingar. Bergþórutónleikar Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Úrslitaleikirnir í bikarkeppninni í körfubolta. Keflavík – Valur (konur) og Stjarnan – Grindavík (karlar). Hvar? Laugardalshöllin. Hvenær? Laugardagur kl. 13:30 og 16. Báðir sýndir beint á RÚV. Bikarúrslit í körfu Hvar? Seyðtún, Hveragerði. Hvað? Opið hús. Að því loknu munu Hildi- gunnur Birgisdóttir og Unnar Örn, sem bæði eiga verk á sýningunni TÓMINU, ræða við gesti í Listasafni Ár- nesinga um verk sín og þátttökuna í sýningunni. Hvenær? Sunnudag kl. 14. Opið hús í Seyðtúni Hvar? Listasafn ASÍ. Hvað? Sýning á nýjum verkum mynd- listarkonunnar Eirúnar Sigurðardóttur. Hvenær? Laugardaginn kl. 16. Eirún sýnir í ASÍ Hvað? Camerarctica á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Hvar? Norðurljósasalur Hörpu. Hvenær? Sunnudaginn kl. 19.30. Camerarctica * Forsíðumyndina tók Golli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.