Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 Hofsjökulsþjóðgarður Umhverfis- og auðlindaráðherra falið að vinna að því, í samvinnu við skipulagsyfirvöld og hugsanlega rétthafa, að stofna Hofsjökulsþjóðgarð sem hafi innan sinna marka Hofsjökul og aðliggjandi svæði. Ráðherra kynni Alþingi stöðu málsins fyrir lok vorþings 2013 og stefnt verði að formlegri stofnun þjóðgarðsins árið 2014. Þingsályktunartillaga. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Marshall, Atli Gíslason, Mörður Árna- son, Álfheiður Ingadóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Skúli Helgason, Jón Bjarnason, Þór Saari. Ekki komið á dagskrá. Tóbak í apótek „Velferðarráðherra falið að vinna 10 ára aðgerðaáætlun um tóbaks- varnir þar sem einn liðurinn verði að sala á tóbaki verði takmörkuð við apótek.“ Þingsályktunartillaga. Siv Friðleifsdóttir, Þuríður Backman, Ásta R. Jóhannesdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Eygló Harðardóttir. Ekki komið á dagskrá. Fáninn á björtum sumarkvöldum Tíminn sem íslenski fáninn má vera við hún verði rýmri yfir björtustu sumarmánuðina. Enn fremur verði notkun fánans við markaðssetningu á íslenskri framleiðslu aðgengilegri en áður. Lagafrumvarp. Siv Friðleifsdóttir, Lúðvík Geirsson, Árni Johnsen, Álfheiður Ingadóttir. Til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Orkufyrirtæki ekki ljósmyndabanki Fyrirtæki á orkusviði geti ekki stundað eða tekið þátt í starfsemi á sviðum sem ekkert eiga skylt við kjarnastarfsemi fyrirtækjanna og tilgang þeirra. Reynslan sýni að ekki fari vel að orkufyrirtæki taki þátt í starfsemi sem er óskyld orkurekstri. Þó að mismunandi sé hvernig þau hafi nýtt rúmar heim- ildir laga til reksturs og fjárfest- ingar hafi Orkuveita Reykjavíkur gengið hættulega langt. Fyrirtækið hafi farið út í alls óskyldan rekstur og greitt það dýru verði. Dæmi um það séu fjárfestingar í rekstri net- og fjarskiptafyrirtækja, fiskeldi, risarækjueldi, hörverksmiðju og ljósmyndabanka. Lagafrumvarp. Guðlaugur Þór Þórðarson, Kristján Þór Júlíusson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Ásbjörn Óttarsson, Birgir Þórarinsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Illugi Gunnarsson, Pétur H. Blöndal, Árni Johnsen. Ekki komið á dagskrá. Gæludýravegabréf „Gæludýravegabréf: Skilríki sem staðfestir að gæludýr hafi fengið allar nauðsynlegar bólusetningar til að hægt sé að ferðast með það innan landa Evrópusambandsins og aftur til Íslands.” Tilgangurinn að liðka fyrir því að fólk geti ferðast með gæludýr sín til útlanda og aftur heim án þess að þau séu einangruð í sóttvarnarstöð. Lagafrumvarp. Helgi Hjörvar, Ólína Þorvarðardóttir, Magnús Orri Schram. Ekki komið á dagskrá. Engin vegalömb „Búfé skal aðeins beitt innan girðingar.” Markmið laganna er að efla land- vernd og sjálfbæra búfjár- beit. Lögin öðlist ekki gildi fyrr en 1. janúar árið 2023. Frumvarpið er tileinkað Herdísi Þorvaldsdóttur. Lagafrumvarp. Mörður Árnason, Birgitta Jónsdóttir. Bíður fyrstu umræðu. Hægri beygja á móti rauðu ljósi „Ökumanni sem hyggst beygja til hægri við gatnamót á umferðarljósum er heimilt að beygja á móti rauðu ljósi nema sérstaklega sé tekið fram að það sé óheimilt. Hann skal þó ætíð stöðva ökutæki sitt eins og við stöðvunarskyldu og veita umferð sem kemur úr öðrum áttum forgang.“ Lagafrumvarp. Árni Johnsen, Björgvin G. Sigurðsson, Jón Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Pétur H. Blöndal. Ekki komið á dagskrá. Búsáhaldabyltingin rannsökuð Skipuð verði sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis sem rannsaki hvort athafnir einstakra þingmanna á tímabilinu frá október 2008 til febrúar 2009, í tengslum við svokallaða búsáhaldabyltingu, hafi brotið í bága við ákvæði laga og leggi nefndin eftir atvikum mat á hvort þeir hafi bakað sér refsiábyrgð. Nefndin verði skipuð þremur sérfræðingum á sviði sakamála- réttarfars, refsiréttar og stjórnskipunarréttar. Þingsályktunartillaga. Gunnar Bragi Sveinsson, Vigdís Hauksdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson. Ekki komið á dagskrá. Sjómannaafsláttur Sjómönnum verði áfram tryggður sjómannaafsláttur. Í rökstuðningi segir að helstu ástæður þess að sjómönnum hafi verið veittur sérstakur afsláttur séu að þeir sinni erfiðum störfum sem séu þjóðhagslega mikilvæg og þeir dvelji langtímum saman frá heimili sínu og fjölskyldu vegna vinnu sinnar. Sjómannaafslátturinn hafi verið hluti af samfélagssáttmála stjórnvalda við sjómenn í áratugi, sem núverandi ríkisstjórn hafi afturkallað einhliða án nokkurs samráðs eða viðræðna við sjómenn. Lagafrumvarp. Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Kristján Þór Júlíusson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Gunnar Bragi Sveinsson. Ekki komið á dagskrá. Þjóðhagsstofa Þjóðhagsstofa starfar á vegum Al- þingis. Hún skal fylgjast með árferði og afkomu þjóðarbúsins, vinna að hagrannsóknum og vera Alþingi til ráðuneytis í efnahagsmálum. Einnig skal hún vera sveitarfélögum, aðilum vinnumarkaðarins, fræði- mönnum, fag- og fræðistofnunum og öðrum aðilum til aðstoðar, eftir því sem efni standa til. Lagafrumvarp. Eygló Harðardóttir. Ekki komið á dagskrá. Minni fái meira Lagt er til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að stærri stjórn- málasamtök fái hærri fjárframlög en þau sem minni eru. Þá verði framlög lögaðila til stjórnmála- samtaka bönnuð og fjárframlög einstaklinga takmörkuð við 200 þús. kr., þó þannig að framlög hærri en 20 þús. kr. skuli gera opinber innan þriggja daga frá því að þau voru móttekin. Lagafrumvarp. Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir. Til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Húsmæðraorlof afnumið Afnám laga um orlof húsmæðra á þeim grundvelli að þau séu tíma- skekkja.Tilgangur laganna var að lögfesta viðurkenningu á þjóðfélags- legu mikilvægi ólaunaðra starfa og veita húsmæðrum orlofsréttindi líkt og launþegum. Lögin gerðu því ráð fyrir því að ríkissjóður og sveitar- félög veittu fé til orlofsnefnda sem skipulegðu orlof húsmæðra. Rétt til orlofsins á sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Lagafrumvarp. Guðrún Erlingsdóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús Orri Schram, Ólína Þorvarðardóttir,Valgerður Bjarnadóttir. Ekki komið á dagskrá. Griðasvæði hvala Griðasvæði hvala í Faxaflóa verði stækkað, frá Eldey í suðri að ysta odda Snæfellsness í norðri, og enn fremur tryggt griðasvæði hvala fyrir Norðurlandi þar sem hvalaskoðun hefur verið vaxandi atvinnugrein. Enn fremur setji atvinnu- vega- og nýsköpunarráðherra heildstæðar reglur um framkvæmd og skipulag hvalaskoðunar. Þingsályktunartillaga. Mörður Árnason, Birgitta Jónsdóttir og Árni Þór Sigurðsson. Ekki komið á dagskrá. Handverksdeild í Listaháskólanum Mennta- og menningarmálaráð- herra falið að koma upp íslenskri handverksdeild í Listaháskóla Íslands. Þingsályktunartillaga. Árni John- sen, Björgvin G. Sigurðsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Gunnarsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurður Ingi Jóhannsson,Tryggvi Þór Herberts- son,Vigdís Hauksdóttir. Ekki komið á dagskrá. Þingmál í biðflokki SKAMMT ER TIL LOKA KJÖRTÍMABILSINS OG FYRIRSÉÐ AÐ MÖRG ÞINGMÁL VERÐA EKKI AFGREIDD. EINS OG VENJULEGA ERU ÞAÐ EINKUM ÞING- MANNAMÁLIN SEM SITJA Á HAKANUM. FRAMKVÆMDAVALDIÐ FÆR SÍNU FRAM. LÖGÐ HAFA VERIÐ FRAM 87 ÞINGMANNAFRUMVÖRP, EN EINUNGIS TVÖ VERIÐ AFGREIDD SEM LÖG. ÞÁ HAFA VERIÐ LAGÐAR FRAM 124 TILLÖGUR TIL ÞINGSÁLYKTUNAR, EN EINUNGIS ÞRJÁR VERIÐ SAMÞYKKTAR. HÉR ER VELT UPP NOKKRUM ÞINGMANNAMÁLUM SEM HÆPIÐ ER AÐ VERÐI AFGREIDD ÚR ÞVÍ SEM KOMIÐ ER. ÞAR KENNIR ÝMISSA GRASA. * „Gott dæmi um afar snjallan listamann í handverki er Sigga á Grundí Árnessýslu. Hún er í röð fremstu listamanna þjóðarinnar með út-skurði sínum í tré, en listamenn á þessu sviði skipta hundruðum á Íslandi.“ Árni Johnsen í greinargerð með tillögu um handverksdeild í LHÍ Þjóðmál PÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.