Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Síða 6
Silvio Berlusconi er kominn áskrið. Ekki er nema vika íkosningar á Ítalíu og Berl-
usconi, sem hrökklaðist úr embætti
við þannig aðstæður – Ítalía á
barmi gjaldþrots og hann með rétt-
arhöld yfir höfði sér vegna skatta-
mála og kynlífshneykslis – að talið
var að hann myndi aldrei eiga aft-
urkvæmt í pólitík, saxar jafnt og
þétt á forskot andstæðinganna.
Um miðjan janúar munaði 12 pró-
sentustigum á hægra bandalagi Ber-
lusconis og vinstra bandalagi Piers
Luigis Bersanis. Fyrir viku var for-
skot Bersanis komið niður í fimm
prósentustig. Vinstri menn höfðu
tapað fjórum prósentustigum og
hægri menn bætt þremur við sig.
Lofar endurgreiðslu skatta
Berlusconi, sem er 76 ára gamall,
hefur stormað inn í kosningabarátt-
una með loforðum. Hann byrjaði á
að heita því að fasteignaskattur,
sem Mario Monti forsætisráðherra
lagði á íbúðir og einbýlishús, yrði
lagður af. Auk þess myndi Berlusc-
oni endurgreiða þann fasteigna-
skatt, sem þegar hefði verið inn-
heimtur. Sjöundi hver Ítali fengi
peninga beint í vasann.
Fleiri loforð hafa bæst við. Berl-
usconi ætlar að leggja niður vöru-
skatt og segir að þannig muni hann
búa til fjórar milljónir starfa. Þá
kveðst hann ætla að náða þá, sem
hafa dregið undan skatti.
Það mun koma í ljós þegar talið
verður upp úr kjörkössunum á Ítal-
íu hvort atlaga Berlusconis tekst.
Skoðanakönnunin, sem áður var
vitnað til, var sú síðasta fyrir kosn-
ingar. Bannað er með lögum á Ítal-
íu að gera skoðanakannanir síðustu
tvær vikurnar áður en gengið er að
kjörborðinu.
Endurkoma Berlusconis skýtur
andstæðingum hans skelk í bringu.
Monti, sem leitt hefur sérfræð-
ingastjórn Ítalíu síðan síðla árs
2011, er nú í framboði. Hann segir
að Evrópusambandið óttist að Berl-
usconi snúi aftur til valda og telji að
það myndi hafa neikvæð áhrif á evr-
una. „Evrópusambandið óttast end-
urkomu hans vegna þess að það
hefur fengið nóg af skortinum á aga
í fjármálum og getuleysi til að taka
ákvarðanir, sem hvort tveggja
stefnir evrusvæðinu í hættu,“ sagði
Monti.
Gianfranco Rotondi, sem var ráð-
herra í stjórn Berlusconis, kom sín-
um gamla yfirmanni til varnar:
„Monti segir að ESB óttist end-
urkomu Berlusconis. Ég get full-
vissað hann um að Ítalía óttast end-
urkomu Montis.“
Framboð Montis er í fjórða sæti
með um 12% fylgi samkvæmt skoð-
anakönnunum.
Kannanirnar benda til að grínist-
inn Beppe Grillo sé í þriðja sæti
með um 16% fylgi. Grillo er ólík-
indatól, sem dregur til sín mikinn
fjölda á kosningafundum. Fimm
stjörnu hreyfing hans höfðar sér-
staklega til ungs fólks og tekur
einkum fylgi frá vinstri vængnum,
en gerir öllum hefðbundnu flokk-
unum einhverja skráveifu.
Óvænt áhrif páfa
Tilkynning Benedikts XVI. páfa um
að hann hygðist segja af sér um
mánaðamótin hefur yfirskyggt kosn-
ingabaráttuna. Segja greinendur að
Berlusconi
enn kominn
á kreik
SILVIO BERLUSCONI ER KOMINN AFTUR Í STJÓRNMÁLIN.
ÓLÍKLEGT ER TALIÐ AÐ HANN VERÐI FORSÆTISRÁÐHERRA
Á NÝ, EN ERFITT GÆTI ORÐIÐ AÐ MYNDA STERKA STJÓRN
EFTIR KOSNINGARNAR Á ÍTALÍU EFTIR VIKU.
Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, flytur ræðu á kosningafundi flokks síns í Róm 7. febrúar. Hann hef-
ur saxað verulega á forskot bandalags vinstri flokka frá því hann ákvað að gefa kost á sér.
AFP
afsögn páfa, sem í síðustu opinberu
messu sinni gerði hræsnina að um-
talsefni, gæti jafnvel haft áhrif á út-
komu kosninganna og stöðvað sókn
Berlusconis, sem eitt sinn var í
uppáhaldi í Páfagarði en féll úr náð-
inni vegna kynlífshneykslanna.
„Við munum fá minni fjölmiðla-
athygli,“ sagði Berlusconi í viðtali
um ákvörðunina og var óánægður
með að missa sviðsljósið.
Sérfræðingar telja ólíklegt að
Berlusconi sigri í kosningunum, en
segja að fylgisaukning hans gæti
torveldað myndun nógu öflugrar
stjórnar til að knýja fram umbætur
á krepputímum á Ítalíu.
„Hin augljósa hætta er að Lýð-
ræðisflokkurinn [sem Bersani leiðir]
og Monti fari í sömu sæng og
stjórnin falli eftir ár eða sex mán-
uði,“ sagði James Walston, prófess-
or við Ameríska háskólann í Róm,
við fréttastofuna AFP.
Sagan sýnir hins vegar að það er
aldrei hægt að afskrifa Berlusconi.
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
HEIMURINN
PÁFAGARÐUR
Benedikt XVI. páfi lýsti yfir því að hann myndi láta af embætti 28. febrúar. Yfirlýsing
Benedikts vakti mikil viðbrögð, enda eru sex aldir liðnar síðan páfi sagði síðast af sér.
Benedikt, sem er 85 ára, las tilkynningu á latínu þar sem sagði að hann hefði ákveðið
að segja af sér vegna aldurs og bætti við að styrkur til sálar og líkama væri nauðsyn-
legur til að gegna starfi páfa. Benedikt stýrði sinni síðustu opinberu messu á öskudag. Kardinálar
frá Austurríki, Brasilíu, Gana, Ítalíu og Filippseyjum þykja koma til greina sem eftirmenn hans.
BANDARÍKIN
WASHINGTON Barack
Obama Bandaríkjaforseti
greindi frá því í
stefnuræðu sinni
að Bandaríkin og
Evrópusamband-
ið hygðust hefja
viðræður um
myndun fríverslunarsvæðis,
sem næði yfir Atlantsála.
Hugmyndin er ekki ný af
nálinni en hefur vaxið fiskur
um hrygg á undanförnum
mánuðum. Búist er við
að viðræðurnar taki í það
minnsta tvö ár.
SUÐUR-AFRÍKA
PRETORÍA Fatlaði íþróttamaðurinn
Oscar Pistorius, sem gat sér frægð með
sigrum á ólympíuleikum fatlaðra og þátt-
töku í ólympíuleikum ófatlaðra, hefur
verið kærður fyrir að skjóta kærustu
sína, fyrirsætuna Reevu Steenkamp, til
bana að heimili hans í Pretoríu. Pistorus
fæddist án dálka í fótum og voru
fæturnir teknir af honum þegar hann
var 11 mánaða. Hann hefur hlaupið á
fjöðrum frá Össuri. Málið hefur vakið
gríðarlega athygli og umræðu.
NORÐUR-KÓREA
PYONGYANG Norður-Kórea gerði sína
þriðju kjarnorkutilraun og var hún fordæmd
um allan heim. Norðurkóresk stjórnvöld
kváðust vera að svara „glannalegum fjand-
skap“ Bandaríkjamanna. Rúmt ár er síðan Kim Jong-Un
kom til valda í landinu. Í upphafi veltu sérfræðingar fyrir
sér hvort möguleiki væri á því að hann myndi innleiða
umbætur í hrjáðu landi, en nú þykir ljóst að hann mun
líkt og Kim Jong-Il faðir hans beita hernum til að tryggja
sig í sessi heima fyrir og láta sig umheiminn einu gilda.
Ítalskur dómstóll ákvað á mánudag í liðinni
viku að fresta öllum vitnisburði í kynlífsmáli
Silvios Berlusconis þar til eftir kosningarnar
eftir viku til þess að forsætisráðherrann
fyrrverandi gæti haldið áfram kosningabar-
áttu sinni.
Berlusconi er gefið að sök að hafa borgað
fyrir kynlíf með stúlku undir lögaldri, Kar-
imu El-Mahroug, sem einnig er kölluð
hjartaþjófurinn Ruby. Í vikunni þar á undan
var meðferð áfrýjunar Berlusconis á dómi
fyrir skattsvik frestað fram yfir kosningar. Gagnrýnendur segja að
Berlusconi sé eingöngu í framboði til að komast hjá fangelsi.
Hjartaþjófurinn Ruby
kemur fyrir rétt.
MEÐFERÐ FRESTAÐ
* Ég, hinn hugrakki og hetjulegi stríðs-maður, lifi aðeins í þágu lands míns.Silvio BerlusconiAlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is