Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Page 8
Ef einhver lumar á jólaplöttum, árgerð 1928,
frá Bing og Gröndahl; af kirkjugestum á leið
í Dómkirkjuna, gæti sá hinn sami orðið
ríkur. Ef til vill hangir slíkur platti
uppi á vegg í einhverri íslenskri
stofu, nú eða rykfellur í geymsl-
unni. Á uppboðssíðunni ebay.com
er þessi gerð jólaplatta frá
danska postulínsframleiðand-
anum til sölu og er ásett verð
um 7.000 dollarar eða um
900.000 íslenskar krónur. Platt-
inn er sagður sjaldgæfur en
safnarar vakta ebay.com og sam-
kvæmt þessu er spurning hvort
einhver vilji skipta á stofustássinu
og fé.
Nokkrir af jólaplöttum Bing
og Gröndahl eru eftirsóttir
meðal safnara um allan heim.
Dómkirkjuplatti á
900.000 á ebay.com
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Esko Aho, fyrrverandi forsætisráðherra Finn-lands, vitnaði á Viðskiptaþingi í vikunni íummæli íshokkíleikmannsins Wayne
Gretzky um muninn á góðum leikmönnum og þeim
bestu. Gretzky á að hafa sagt að munurinn væri sá
að góðir leikmenn færu þangað sem pökkurinn
væri en þeir bestu þangað sem pökkurinn stefndi.
Með þessari samlíkingu fylgdi ráðgjöf Esko Aho
til þjóða sem vildu vera í forystu um að sækja fram í
krafti sérstöðu, sjálfstæðis og eigin styrkleika.
Fara ekki endilega sömu leið og hinir eða þangað
sem flestir væru, heldur hafa hugrekki til að gera
áætlanir um vöxt og uppbyggingu á eigin for-
sendum. Þetta sagði hann sérstaklega mikilvægt
fyrir smærri þjóðir sem stæðu á stórum tímamót-
um, líkt og Ísland.
Esko Aho talaði um framtíðina og Ísland af mik-
illi bjartsýni. Það sama verður því miður ekki sagt
um alla íslenska stjórnmálamenn. Stundum virðist
jafnvel sem þeir sem forystu eiga að hafa fyrir upp-
byggingu, vexti og von í landinu telji það frekar
skyldu sín að tala kjarkinn úr þjóðinni. Sumir þess-
ara forystumanna hafa haldið því fram að þjóðin
hljóti að vera skyni skroppin sjái hún ekki að hún
geti ekki ráðið eigin ráðum. Aðrir hafa sagt kröfur
um fleiri tækifæri og lífskjör sem standist sam-
anburð við nágrannaþjóðir okkar, dæmi um óhóf og
græðgi sem helst megi líkja við sjúklega löngun í
stöðugt sykurát.
Það er nauðsynlegt að tala gegn slíkri svartsýni.
Ísland á skilið raunverulegt tækifæri til að skipa
sér í hóp með þeim allra bestu og Íslendingar eiga
skilið tækifæri til menntunar, atvinnu og kaup-
máttar sem gefur fjölskyldum von um betri tíma.
Sem þjóð þurfum við að sameinast um að gefa okk-
ur sjálfum slíkt tækifæri og kosningarnar í vor eiga
að snúast um nákvæmlega það. Í aðdraganda
þeirra þurfum við því að ræða hvort við viljum nýta
reynslu fortíðar og viðfangsefni samtíðar til að gera
betur í framtíðinni eða hvort við viljum í gremju og
grimmd dvelja í skotgröfum sem löngu eiga að
heyra sögunni til; hvort við viljum efla okkur sem
sjálfstæða, öfluga og dugandi þjóð eða ganga til liðs
við misskilið erlent skjól sem á nóg með eigin
vandamál. Við þurfum líka að ákveða hvort við vilj-
um breyta stjórnmálunum og samfélaginu til góðs
með því að vinna saman og gera það besta fyrir sem
flesta eða hvort við viljum áfram hlusta á efasemdir
um einmitt það.
Ísland er og á að vera land tækifæranna. Verk-
efni okkar er að gefa Íslandi tækifæri til að vera
áfram slíkt land og það gerum við best með því að
trúa á okkur sjálf, hvert annað og þá framtíð sem
sameiginlega bíður okkar. Þá þurfum við engu að
kvíða – því líkt og íshokkíleikarinn Gretzky og
finnska þjóðin munum við ná árangri og nýta styrk-
leika okkar og sérstöðu til að skora – okkur öllum
til heilla.
Gefum Íslandi tækifæri
* Ísland á skilið raunveru-legt tækifæri til að skipasér í hóp með þeim allra bestu
og Íslendingar eiga skilið tæki-
færi til menntunar, atvinnu og
kaupmáttar sem gefur fjöl-
skyldum von um betri tíma
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is
Björn Þorláksson
Ferð í Mývatnssveit
fyrirhuguð á morgun,
þar á ég marga helgi-
staði, s.s. Hverfjall,
Grjótagjá og Dimmu-
borgir. Mun seint komast frá því að
sækja í dýnamík náttúrunnar um-
fram aðra dýnamík, þótt mann-
heimar og mannanna verk líki mér
einnig almennt ágætlega! Guð
blessi náttúru Íslands og forði
henni frá eyðileggingu skammsýnna
manna.
Sigurður
Ragnar Eyj-
ólfsson Hjól-
hestaspyrna á
Laugardalsvelli
sláin inn, sig-
urmark í efstu
deild karla -
check.
Dagur
Sveinn Dag-
bjartsson,
Kristinn V. Jó-
hannsson,
Gunnar Gylfa-
son og félagar. Þetta er klárlega
hjólhestaspyrna og ekki bakfalls-
spyrna Dagur og ef þú vilt þá get ég
kennt þér þetta, karlinn minn! En
þú þarft þrotlausar æfingar á hverj-
um degi í langan tíma til að ná
þessu, karlinn minn!
Edda Sif
Pálsdóttir
@EddaSif-
Palsd Fattaði
seint í gærkv.
þegar ég taldi
allar áhyggj-
urnar saman að
ég hlýt að vera
með kvíð-
aröskun. Fylltist
eðlilega miklum
kvíða í kjölfar-
ið.
Daníel Geir Moritz ? @Danel-
GeirMoritz
Veit ekki alveg með þennan Ste-
ven Lennon gæja. Hann lítur stórt á
sig og virðist ekki vita að hann
sýndi lítið fyrir
meiðslin í fyrra.
Halldór
Halldórsson
@DNADORI
Algjör tómleiki
sem grípur mann
þegar bollu-,
sprengi- og ösku-
dagur eru að baki.
AF NETINU
Ómar R. Valdimarsson, blaðamaður á Bloomberg-
fréttaveitunni, olli miklum ruglingi hjá blaða-
mönnum sem sóttu blaðamannafund hjá FME á
Höfðatorgi á fimmtudag.
Þegar blaðamenn ætluðu að tengjast netinu
með því að skrá sig inn á þráðlausa tengingu
dúkkaði upp nettenging undir heitinu „sex-
ymotherfucker“ sem talið var að væri tenging
FME. Var mikið hlegið að þessu á fundinum og
þótti mörgum sem kerfisstjórar FME hefðu hug-
myndaflug í lagi.
Ekki var hins vegar um nafn á neti FME að
ræða heldur er það þráðlaus 3G-netpungur Ómars
sem heitir þessu skemmtilega nafni. Einhverjir
blaðamenn á fundinum gerðu athugasemdir strax
á fésbók við þessa nafngift og þegar Ómar sá þær
leiðrétti hann þennan misskilning.
Þess má geta að FME er ekki með þráðlaust net
– slíkt passar ekki inn í stofnun sem meðhöndlar
viðkvæm skjöl.
Ómar olli
ruglingi
Ómar R. Valdimarsson kann að gefa net-
tengingum nafn.
Morgunblaðið/Ómar
Vettvangur