Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Síða 9
17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur
munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur
tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur
það úr streitu í amstri hversdagsins.
Þetta er örugglega að verða20 ára gamall draumur,“segir Hrefna Hrund Er-
lingsdóttir sem lét nýverið verða
af því að fara í nafnabreytingu.
Hrefna Hrund, sem áður hét
Hrund Erlingsdóttir, segir að
löngunin til að taka upp Hrefnu-
nafnið hafi nánast alltaf verið til
staðar, en 10 ár séu síðan hún
fór að hugsa um nafnabreyt-
inguna fyrir alvöru. Hún var þó
ekki tilbúin til að taka skrefið
fyrr en nú.
Hrefnu-nafnið kemur frá ömmu
hennar sem hét Jónína Hrefna
Magnúsdóttir, en var aldrei köll-
uð annað en Hrefna. Hrefna var
að sögn Hrefnu Hrundar ein-
staklega hlý og góð kona og fyr-
irmynd allra sem hittu hana.
Hrefnu Hrund hefur oft verið
líkt við ömmu sína og segist oft
hafa verið kölluð „Litla Hrefna,“
auk þess sem hún segir að
margir hafi kallað sig Hrefnu án
þess að vita af löngun hennar til
að bera nafnið.
Ástæða þess að hún ákvað svo
að fara út í langþráða nafna-
breytingu var sú að faðir henn-
ar, Erling Magnússon, tjáði
henni fyrir skemmstu að hann
hefði lengi séð eftir því að hafa
ekki nefnt hana Hrefnu. Ástæða
þess að hún fékk ekki nafnið við
skírn var sú að eldri frænka
hennar hafði fengið nafnið og því
þótti ekki ástæða til að bæta við
fleiri Hrefnum. En eftir þetta
samtal varð ekki aftur snúið og
fljótlega var eiginnafnsbreytingin
gengin í garð.
Hrefna Hrund segir þó fleira
spila inn í: „Mér hefur aldrei
líkað neitt voðalega vel við
Hrundar-nafnið, sérstaklega ekki
þegar ég var yngri því það rím-
ar náttúrlega allt við Hrund …“
Hún viðurkennir að henni hafi
liðið eins og hún væri að gera
eitthvað sem hún mætti ekki og
tók sér tíma í að fullvissa sig
um að foreldrar hennar yrðu
ekki ósáttir með nafnabreyt-
inguna, en hún segir þau hafa
stutt hana sem og allir í kring-
um sig.
Hún telur að þetta muni hafa
jákvæð áhrif á sjálfsmyndina og
það sé góð tilfinning að sjá
nafnið á prenti. Fyrsta bréfið
hafi til dæmis verið einkar kær-
komið enda bar það með sér
staðfestinguna á nafnabreyting-
unni. Framundan sé svo að end-
urnýja vegabréf, ökuskírteini og
fleira, svo ekki verði misskiln-
ingur vegna breytingarinnar.
Aðstandendur og vinir hafa
undanfarið spurt hvað þeir eigi
að kalla hana núna. Hrefna
Hrund segir það ekki skipta
máli og gerir ráð fyrir því að
þeir sem þekktu hana sem
Hrund muni halda áfram að
kalla hana Hrund en framvegis
muni hún þó kynna sig sem
Hrefnu Hrund.
Hrefna Hrund er stolt af nafninu sínu enda segir hún Hrefnu ömmu sína hafa verið sérstaklega hlýja og góða konu.
Morgunblaðið/Golli
„AMMA VAR FYRIRMYND ALLRA SEM HITTU HANA“
Hét Hrund, heitir
nú Hrefna Hrund
HÚN ÁKVAÐ AÐ FARA Í NAFNABREYTINGU ÞVÍ HENNI HEFUR ALLTAF FUNDIST HÚN
HEITA HREFNA OG SEGIR MARGA HAFA KALLAÐ SIG ÞVÍ NAFNI ÞRÁTT FYRIR AÐ HÚN
HAFI ALLTAF KYNNT SIG SEM HRUND, ÞAR TIL NÝLEGA.
Jónína Sif Eyþórsdóttir jse4@hi.is
* Ástæða þess að hún ákvað svo að faraút í langþráða nafnabreytingu var súað faðir hennar, Erling Magnússon, tjáði
henni fyrir skemmstu að hann hefði lengi
séð eftir því að hafa ekki nefnt hana Hrefnu.