Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Í
norðurhluta Sýrlands vex
uppreisnarmönnum ásmegin.
Í liðinni viku lögðu þeir und-
ir sig herflugvöll skammt frá
Aleppo. Sigrar uppreisnar-
manna í Norður-Sýrlandi marka ef
til vill ekki straumhvörf í átök-
unum í landinu, en sýna að það
fjarar undan stjórninni. Stjórn-
arherinn beitir sér hins vegar af
hörku í kringum Damaskus, höf-
uðborg landsins. Hart hefur verið
barist í útborgum hennar og hefur
flugherinn meira að segja varpað
sprengjum í úthverfum. Það hlýtur
að teljast veikleikamerki þegar
stjórnvöld varpa sprengjum á eigin
höfuðborg. lokaði að sögn vitna
leiðum inn í borgina.
Lakhdar Brahimi, sérlegur
friðarerindreki Sameinuðu þjóð-
anna og Arababandalagsins, er
ekki bjartsýnn um að pólitísk lausn
muni finnast í Sýrlandi. Þegar
franska blaðið La Croix spurði
Brahimi hvort endir blóðsúthelling-
anna í Sýrlandi væri í sjónmáli var
svarið stutt: „Ekki í augnablikinu.“
Tveggja ára átök
Um miðjan mars verða tvö ár liðin
frá því að uppreisnin í Sýrlandi
hófst. Þegar Bashar al-Assad tók
við af föður sínum, Hafez al-Assad,
vöknuðu vonir um að hann myndi
innleiða umbætur í landinu og feta
í átt til lýðræðis. Þegar uppreisnin
hófst varð hins vegar strax ljóst að
hann var staðráðinn í að halda
völdum og vílaði ekki fyrir sér að
beita valdi. Alþjóðasamfélagið, sem
hafði skorist í leikinn í þágu upp-
reisnarmanna í Líbíu og hjálpaði
þeim að steypa ógnarstjórn
Moammars Gaddafis, var hins veg-
ar ekki tilbúið að gera slíkt hið
sama í Sýrlandi.
Mótmælin í Sýrlandi hverfðust í
upphafi um kröfu almennings um
frelsi og að spilltur einræðisherra
færi frá völdum. Þegar átök brut-
ust út varð hins vegar breyting þar
á og ýmis öfl bókstafstrúarmanna
og íslamista skárust í leikinn.
Næsta þjóðarmorð?
Skömmu fyrir áramót spáði Peter
Galbraith, fyrrverandi sendiherra
Bandaríkjamanna, sem bæði rann-
sakaði fjöldamorð Saddams Huss-
eins á Kúrdum í Írak og varð vitni
að þjóðernishreinsunum í gömlu
Júgóslavíu, því á fundi í helfarar-
safninu í Washington að líkast til
yrði „næsta þjóðarmorð í heim-
inum framið gegn alavítum í Sýr-
landi“.
Alavítar ráða lögum og lofum í
stjórnkerfi Assads, en eru hins
vegar í minnihluta í Sýrlandi, um
12% íbúa landsins. Trúarbrögð
þeirra eru af meiði trúarbragða
sjíta og þeir sættu ofsóknum af
hálfu súnníta þar til Hafez al-
Assad komst til valda 1970. Hann
barði niður andóf án miskunnar og
sonur hans fór sömu leið.
Í upphafi andófsins fyrir tveimur
árum réðst Assad gegn mótmæl-
endum. Því næst sigaði hann hern-
um á þorp þar sem stjórnarand-
stæðingar voru við stjórn. Í stað
þess að reyna að hafa uppi á and-
ófsmönnum var öllum refsað. Stór-
skotalið létu sprengjum rigna yfir
svæði súnníta og skriðdrekum var
beitt gegn þeim. Þá hafa sveitir
þjóðvarðliða, sem kallast shabiba
og eru hliðhollar Assad, framið
grimmileg fjöldamorð. Flest eru
fórnarlömbin almennir borgarar úr
röðum súnníta. Einnig hefur
stjórnin látið vopn í hendur víga-
liða þar sem búa drúsar, kristnir
menn og sjítar. Réttlætingin fyrir
þessu er að þessir hópar þurfi að
verjast og vernda helga staði. Sha-
biba-sveitirnar urðu til með svip-
uðum hætti áður en þær urðu að
drápssveitum. Í grein í The New
York Times í nóvember bendir
Simon Adams, framkvæmdastjóri
mannréttindasamtaka, sem nefnast
Global Center for the Responsibi-
lity to Protect, á að með þessum
hætti hafi Assad tryggt að súnnítar
muni leita hefnda gegn þessum
hópum falli stjórn hans.
Íslamistum vex ásmegin
Hann segir að eftir því sem borg-
arastyrjöldin hafi dregist á langinn
hafi hugmyndafræðileg samsetning
stjórnarandstöðunnar breyst. „Við
erum ein þjóð í einu landi,“ sé
reyndar enn kjörorð hins Frjálsa
hers Sýrlands, en vígorðið „kristna
menn til Berút, alavíta í gröfina“
heyrist ekki lengur aðeins kyrjað á
jaðri hreyfingarinnar. Uppreisnar-
liðið hefur einnig framið óhæfuverk
og þau hafa færst í vöxt eftir því
sem stjórnarliðar hafa farið fram
af meiri hörku. Human Rights
Watch og fleiri mannréttinda-
samtök hafa staðfest tilfelli þar
sem uppreisnarmenn hafa tekið af
lífi sýrlenska hermenn og alavíta
fyrir meint samstarf við stjórnvöld.
Öfgamenn í uppreisnarliðinu
berjast ekki aðeins gegn Assad,
heldur vilja gera trúarlegar hreins-
anir í landinu. Kristnir Sýrlend-
ingar eru þegar farnir að óttast um
hlutskipti sitt og horfa til Íraks þar
sem kristnir menn hafa flúið átök
og hryðjuverk. Adams bendir á að
fyrir átökin hafi verið 80 þúsund
kristnir menn í borginni Homs. Nú
séu að hermt er færri en 400 eftir.
Ástandið í Sýrlandi er orðið
hrikalegt. Í skýrslu til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, sem lak til
fjölmiðla, segir friðarerindrekinn
Brahimi að sýrlenskar „borgir líti
út eins og Berlín 1945“. Talið er að
um 90 þúsund manns hafi látið lífið
í átökunum í Sýrlandi, tala flótta-
manna er komin í 700 þúsund og
gæti náð milljón innan nokkurra
mánaða, innanlands eru um tvær
milljónir manna á vergangi og tug-
ir þúsunda í haldi. Brahimi óttast
að grannríkin, þar á meðal Jórd-
anía og Líbanon, muni sligast und-
an flóttamannastraumnum.
„Mér þykir miður ef ég hljóma
eins og biluð plata,“ sagði Brahimi
öryggisráðinu. „En í alvöru talað
sé ég ekki hvernig ég á að hefja
mál mitt eða ljúka því nema með
því að segja að ástandið er slæmt
og fer versnandi, landið er að leys-
ast upp fyrir allra augum; það er
engin hernaðarlausn á þessari deilu
– að minnsta kosti ekki nema
leggja eigi Sýrland algerlega í rúst
og ganga milli bols og höfuðs á sýr-
lensku þjóðinni; Sýrlendingar geta
ekki hafið friðarferli af eigin ramm-
leik, nágrannar þeirra geta ekki
hjálpað þeim; aðeins alþjóða-
samfélagið getur hjálpað.“
Uppreisnarmenn eru farnir að
þrengja að höfuðborginni. Vígi
hersins eru í borgunum, en á
landsbyggðinni er stjórnin búin að
missa tökin. Í grein í nýjasta tölu-
blaði Der Spiegel segir að í strjál-
býlinu sé löglaust land. Uppreisn-
armenn hafi skorið á birgðaleiðir
og víða líði stjórnarhermenn mat-
arskort og þurfi að fara sparlega
með skotfærin. Stjórnarherinn
kosti hins vegar öllu til að verja
höfuðborgina. Undanfarna sex
mánuði hafa uppreisnarmenn látið
að sér kveða í útborgum Damaskus
á borð við Duma og Daraja. Bar-
dagar fari fram 600 metra mið-
borginni – gamla bænum.
Susanne Koebl, blaðamaður Der
Spiegel, ók frá Beirút til Damas-
kus. Hún segir að margar götur í
borginni séu draugalegar, útveggir
eyðilagðra húsa teygi sig upp í
Sýrland
rústir
einar
LÍKIN HLAÐAST UPP Í SÝRLANDI, BORGIR LANDSINS HAFA
VERIÐ LAGÐAR Í RÚST OG MILLJÓNIR MANNA ERU Á VER-
GANGI. ENGIN LEIÐ ER AÐ SJÁ FYRIR ENDANN Á BORG-
ARASTYRJÖLDINNI OG FULL ÁSTÆÐA ER TIL AÐ ÓTTAST
AÐ FALLI STJÓRN ASSADS TAKI VIÐ BLÓÐUGT UPPGJÖR.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Andstæðingar sýrlenskra stjórnvalda veifa göml-
um sýrlenskum fánum, sem liðsmenn uppreisnar-
manna undir merkjum hins frjálsa hers Sýrlands
nota, í mótmælaaðgerðum eftir föstudagsbænir í
bænum Aleppo fyrr í mánuðinum.
Damaskus
Deraa
Homs
Hama
Latakia
Idlib
Aleppo
Tyrkland
Írak
Jórdanía
Lí
ba
no
n
Ísr
ae
l
Miðjarðar-
haf Helstu
þjóðfélagshópar
Alavítar
Súnnítar
Drúsar
Kúrdar
Kristnir menn
Kortið endurspeglar ekki skiptingu þjóðfélagshópa í helstu þéttbýliskjörnum landsins.
Alþjóðamál