Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Síða 13
vetrarhimininn, hvað eftir annað
heyrist drunur frá stórskotaliði og
gelt í vélbyssum. Nokkur hundruð
metrum lengra eru verslanir opnar
og hægt að kaupa mynddiska og
skartgripi, ferðatöskur og fatnað á
basörum. Embættismenn ganga er-
inda sinna eins og allt sé með
felldu. En svo er ekki. Áður ríkti
stjórnin í krafti óttans. Nú þurfa
embættismenn, yfirmenn úr hern-
um, lögregluforingjar og aðrir þeir,
sem hliðhollir eru stjórninni, að
fara með gát. Þeir eiga á hættu að
vera færðir brott með vopnavaldi
og haldið föngnum, oft svo vikum
skiptir. Mörg fórnarlambanna eru
pyntuð og síðar sleppt gegn lausn-
argjaldi. Mannræningjarnir segjast
vera á vegum hins Frjálsa hers
Sýrlands, en engin leið er að segja
til um hvort það er rétt eða um
ótínda glæpamenn er að ræða.
Reyndar virðist spilling breiðast
út meðal uppreisnarmanna. Í við-
tali við AFP í liðinni viku sagði
Abu Mahmoud, einn leiðtoga upp-
reisnar manna sumir uppreisnar-
foringjar hefðu makað krókinn
„með skammarlegum hætti á
kostnað sannra uppreisnarmanna“
sem féllu á vígstöðvunum. „Hinni
raunverulegu byltingu í Sýrlandi er
lokið,“ sagði Mahmoud og bætti
við: „Okkar fallega bylting hefur
verið tekin herskildi af þjófum og
spillingaröflum.“ Fullyrti hann að
þeir létu greipar sópa um tómar
íbúðir og hús fólks, sem hefði flúið
átökin, og seldu góssið í Tyrklandi,
„bíla, rafmagnstæki, vélar, elds-
neyti, fornmuni, allt hugsanlegt“ og
taldi upp hina ábyrgu foringja.
Í Daraja, vígi uppreisnarmanna,
er gefið út neðanjarðarblað á net-
inu sem heitir Enab Baladi eða
Þrúgur míns lands. Þar hefur eyði-
leggingunni í Daraja verið lýst og
má sjá orrustuþotur varpa sprengj-
um á Daraja og skriðdreka fara
um og skjóta af handahófi á húsin í
bænum.
Grípa hvert hálmstrá
Koebl ræddi við fimm unga upp-
reisnarmenn, þrjár konur og tvo
karla. Hún spurði konurnar hversu
róttækar þær væru. „Í upphafi fór-
um við í kröfugöngu með blóm í
þágu umbóta. Stjórnvöld buðu til
hringborðsviðræðna, eftir það vissu
þeir hverjir voru í forustu hjá okk-
ur og handtóku þá. Við erum
íhaldssamar, en viljum ekki stofna
kalífat. Við þráum lýðræði,
mennsku.“
Baráttan gegn her, sem leggur
eigið land í rúst, og beiskja yfir því
að engin hjálp hafi borist frá
Vesturlöndum hefur sett mark sitt
á viðmælendur Koebl. Þeir rétt-
læta mannrán með því að þeir
þurfi með einhverjum hætti að fá
vini og ættingja leysta úr haldi og
spyrja hvað í ósköpunum þeir eigi
að gera í því þótt öfgamenn á borð
við liðsmenn Jabhat al-Nusra, sem
haldið er fram að tengist armi
hryðjverkasamtakanna al-Qaeda í
Írak, berjist í þeirra röðum. „Við
erum fórnarlömb, við deyjum, við
grípum hvert hálmstrá.“
Nú hafa uppreisnarmenn sam-
eiginlegt markmið, en hvað gerist
falli stjórnin? „Þá berjumst við
gegn al-Nusra,“ segir einn viðmæl-
enda Koebl. „Þetta er bara upphaf-
ið á löngu ferli.“
Al-Nusra kom fram á sjónar-
sviðið í janúar í fyrra og hefur að
markmiði að stofna íslamskt ríki og
stjórna í krafti sjaríalaga. Víst er
talið að samtökin hafi fengið bæði
liðsmenn og vopn frá Írak. Hinir
írösku vígamenn munu vera meðal
þeirra reyndustu og vígfimustu í
liði uppreisnarmanna. Fyrir áramót
viðurkenndu Bandaríkjamenn hið
nýstofnaða Þjóðarbandalag sýr-
lenskra uppreisnar- og andspyrnu-
afla og fetuðu þar í fótspor stjórna
arabaríkja við Persaflóa, Tyrk-
lands, Bretlands og Frakklands og
sögðu að það væri hinn „lögmæti
fulltrúi sýrlensku þjóðarinnar“.
Bandaríkjastjórn skar sig hins veg-
ar úr að því leyti að hún lýsti einn-
ig yfir því að al-Nusra væri hryðju-
verkasamtök í tygjum við al-Qaeda.
Þá er komin fram önnur minni
íslamistahreyfing undan skugga al-
Nusra. Ahrar al-Sham er byggð
upp af innfæddum og boðar um-
burðarlyndari útgáfu af íslam en
al-Nusra. Liðsmenn Ahrar al-Sham
neita til dæmis að því er virðist að
taka þátt í sjálfsmorðssprengju-
árásum öndvert við al-Nusra, sem
hefur lýst ábyrgð á flestum slíkum
árásum í Sýrlandi á hendur sér.
Félagar í Ahrar al-Sham hafa látið
að sér kveða í átökum upp á síð-
kastið og munu hafa uppskorið
peninga frá ríkjum við Persaflóa.
Leiðtogar Ahrar al-Sharam sátu
margir í fangelsi, en voru látnir
lausir þegar Assad náðaði fjölda
fanga 2011. Öfugt við liðsmenn al-
Nusra njóta þeir stuðnings gras-
rótarinnar í norðurhlutanum vegna
þess að þeir eru þaðan.
Reiptog stórvelda
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi fer
ekki fram í tómarúmi. Þar takast á
annars vegar Rússar, Kínverjar og
Íranar og hins vegar Sádar, Kat-
arar, Tyrkir, Bandaríkjamenn og
ríki Evrópusambandsins. Sádar og
bandamenn þeirra hafa hug á því
að koma sítum frá völdum í Sýr-
landi og rjúfa þannig tengsl Írana
við Hezbollah-hreyfinguna í Líb-
anon. Sádar og Tyrkir sjá hag sinn
í því að auka veg súnníta.
Stuðningsmönnum Assads finnst
hins vegar nóg um ítök Vestur-
landa í Mið-Austurlöndum. Þar
fara Rússar fremstir í flokki og
vilja meðal annars tryggja að þeir
haldi herstöðinni í Tartus, einu
flotastöð rússneska sjóhersins við
Miðjarðarhaf. Þeir hafa selt stjórn-
völdum vopn og sætt gagnrýni fyr-
ir. Uppreisnarmenn fá meðal ann-
ars stuðning frá Saudum. Þetta
valdatafl flýtir ekki fyrir lausn
hinnar blóðugu borgarastyrjaldar í
Sýrlandi þar sem almenningur hef-
ur fengið nóg og margir hafa ekki
bara fengið nóg af Assad heldur
einnig sveitum hins Frjálsa hers
Sýrlands og vilja að átökunum linni
áður en landið verður rústir einar.
AFP
* Ástandið er slæmt og fer versnandi,landið er að leysast upp fyrir allraaugum; það er engin hernaðarlausn á þess-
ari deilu – að minnsta kosti ekki nema
leggja eigi Sýrland algerlega í rúst og ganga
milli bols og höfuðs á sýrlensku þjóðinni.
17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Útlitið í Sýrlandi er ekki gott. Refsiaðgerðir Banda-
ríkjamanna virðast beinast að þeim sem síst skyldi,
pattstaða er í átökunum í Damaskus og spilling gref-
ur um sig þar sem uppreisnarmenn hafa náð völdum
af stjórninni. Þetta er niðurstaða skýrslna, sem
bandaríska utanríkisráðuneytið hefur fengið frá
stjórnarandstæðingum, sem vinna með hinum
Frjálsa her Sýrlands.
Greint var frá innihaldi þeirra í dagblaðinu Wash-
ington Post. Þar kemur fram að í Damaskus séu
stjórnarliðar víða með varðstöðvar, en liðsmenn
stjórnarandstöðunnar geti fundið leiðir til að kom-
ast allra sinna ferða. Liðsmenn öfgahreyfingarinnar
Jabhat al-Nusra, sem berst með uppreisnarmönn-
um, borgi fólki fyrir að taka upp vopn og ganga til
liðs við hana.
Þar segir einnig að refsiaðgerðir, sem gripið var til
undir forustu Bandaríkjamanna, hafi misheppnast
líkt og í Írak á síðasta áratug 20. aldar. Fátækt fólk og
millistéttin líði skort á meðan þeir sem eru hollir
stjórninni maki krókinn. „Stjórnin getur sniðgengið
refsiaðgerðirnar með því að nota vörur, sem hvorki
eru bandarískar né vestrænar. … Háttsettir stjórn-
arliðar hafa úthugsað net til að ráðskast með háar
innistæður á reikningum sínum.“ Segir að aðgerð-
irnar hafi valdið gríðarlegum tilflutningi á auði frá al-
menningi til stjórnarliða. Við núverandi aðstæður
þar sem skortur er viðvarandi og verðlag fer hækk-
andi hagnist aðeins kaupsýslumenn, sem njóti vel-
vildar hersins til að verja birgðalestir sínar.
Þá kemur einnig fram að stjórn Assads skammti
eldsneyti og rafmagn markvisst, hygli vinum og refsi
óvinum. Hversu margar klukkustundir rafmagnið sé
á í tilteknum hverfum fari eftir því hversu mikinn
stuðning við stjórnina sé þar að finna. Þar sem
stuðningur er mikill sé jafnvel rafmagn 18 klukku-
stundir á dag, en þar sem hann er minni allt niður í
þrjár klukkustundir. Hörðustu andstæðingarnir fá
ekkert rafmagn og í hverfum þeirra er slökkt á end-
urvarpsstöðvum fyrir farsíma.
Bandaríkjamenn hafa haldið að sér höndum gagn-
vart átökunum í Sýrlandi. Nú er spurt hvort það
muni breytast með nýjum utanríkisráðherra, John
Kerry. Vitað er að Barack Obama Bandaríkjaforseti
geldur varhug við íhlutun í Sýrlandi, kannski vegna
þess að hann óttast að greiða götu íslamista til
valda. „Getum við breytt einhverju?“ spurði hann í
nýlegu viðtali við tímaritið New Republic. Fram hef-
ur komið í The New York Times að í fyrrasumar
kom Obama í veg fyrir að Hillary Clinton, sem nú
lætur af embætti utanríkisráðherra, hrinti af stað
áætlun um að láta valdar sveitir uppreisnarmanna
hafa vopn og veita þeim þjálfun.
REFSIAÐGERÐIR BITNA Á ÞEIM SEM SÍST SKYLDI
Barack Obama John KerryHillary Clinton