Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
H
annes Hólmsteinn
Gissurarson, pró-
fessor í stjórn-
málafræði við Há-
skóla Íslands,
fagnar sextugsafmæli 19. febrúar
næstkomandi. „Þegar ég var ungur
maður fundust mér menn sem
voru sextugir býsna gamlir,“ segir
Hannes og bætir við: „Það sem
heldur mér tiltölulega ungum er að
ég er að kenna ungu fólki og hef
gaman af að blanda geði við það.“
Var leitandi sál
Segðu mér fyrst aðeins frá for-
eldrum þínum og uppeldi.
„Móðir mín var stórkostleg kona
sem sinnti mér mjög vel en ég
held að ég hafi á unga aldri van-
metið föður minn. Hann var ekki
eins sterkur persónuleiki og móðir
mín en hafði marga góða hæfileika.
Hann var mannblendinn, skraf-
hreifinn, afskaplega elskulegur og
góðgjarn, víðsýnn og hófsamur.
Sem barn var ég satt að segja
dálítill prófessor. Móðir mín var
barnakennari að mennt og kenndi
mér að lesa tiltölulega snemma og
síðan lærði ég dönsku af Andrés-
arblöðunum, gekk á eftir móður
minni og þráspurði hana um merk-
ingu einstakra orða. Eftir að ég
lærði að lesa dró ég mig nokkuð í
hlé frá leikjum hinna krakkanna.
Ég hafði ekki áhuga á því sem
þeir voru að gera og steig inn í
heim bókanna. Ég var frekar
ómannblendinn og feiminn en mér
var ekki útskúfað og varð ekki fyr-
ir einelti sem ég tók eftir. Ég var
stilltur, alvörugefinn og þægur
drengur. Mér gekk vel í skóla,
kennarar héldu upp á mig og
námsbrautin var bein og greið. Í
menntaskóla kynntist ég mörgum
af þeim sem enn eru vinir mínir og
á milli okkar er hið þægilega sam-
band sem verður á milli manna
sem hafa þekkst áratugum saman
og þurfa engan að plata. Aðrir í
vinahópi mínum eru þeir sem ég
kynntist í háskólapólitíkinni í
gamla daga og held enn mjög góðu
sambandi við, til dæmis ritstjóri
þíns ágæta blaðs.“
Er eitthvað sem þú hefðir viljað
gera öðruvísi í lífinu?
„Já, ég hefði gjarnan viljað
stunda meira nám í íslensku og
bókmenntum. Ég hefði líka viljað
koma mér upp mun fyrr þeirri
þekkingu og reynslu sem ég bý að
í dag. Núna veit ég nákvæmlega
hvernig ég vil nota tímann og hvað
ég vil gera í tómstundum. Þegar
ég var yngri var ég leitandi sál.
Ég get þó ekki sagt að ég sjái sér-
staklega eftir allri þeirri leit. Ég
tek undir með Ólafi Thors að við
eigum ekki að eyða lífinu í það að
kvíða fyrir eða sjá eftir.“
Finnst þér þú hafa átt góða ævi?
„Já. Ég hef búið við góða heilsu
og frá því í barnaskóla þar til ég
lauk menntaskóla vantaði mig ekki
einn einasta dag í skóla. Ég hef lif-
að mjög innihaldsríku og áhuga-
verðu lífi. Mér hefur gefist kostur
á að kynnast vel mörgum stærstu
öndum 20. aldar, Friedrich von
Hayek, Milton Friedman og Karli
Popper. Einnig öflugum erlendum
stjórnmálamönnum: Berlusconi,
George Bush, Chirac, Thatcher.
Þessir einstaklingar áttu það sam-
eiginlegt að hafa svo mikla útgeisl-
un og aðdráttarafl að andrúms-
loftið breyttist þegar þeir stigu inn
í herbergið. Ég var eitt sinn á ráð-
stefnu með Milton Friedman og
þótt hann væri agnarsmár gat ég
alltaf vitað hvar hann var vegna
þess að í kringum hann var stærsti
hópurinn.“
Kominn með sigg á sálina
Stundum er sagt að fólk mildist
með árunum, þótt það sé örugg-
lega ekki algilt. Hefur þú mildast
með árunum?
„Ég er ekki viss um að skoðanir
mínar hafi breyst því ég tel að
þær hafi frá upphafi verið til-
tölulega hófsamlegar, þótt mörgum
finnist hið gagnstæða. Það sem
hefur frekar gerst er að ég kippi
mér ekki lengur eins upp við and-
stöðu og ósanngirni og ég gerði
áður fyrr. Með öðrum orðum: Ég
er kominn með sigg á sálina.“
Var erfitt fyrir þig að vera svo
umdeildur?
„Ég held að mjög margir hefðu í
sömu sporum komist í miklu meira
uppnám en ég. Haustið 2004 stóð
ég til dæmis andspænis því að
höfðað var mál á hendur mér
vegna bóka minna um Halldór
Laxness sem voru skrifaðar í
óþökk Laxness-fjölskyldunnar og á
sama tíma var ég dreginn fyrir
dóm í Lundúnum. Þetta kostaði
mig stórfé, samtals um 30 millj-
ónir. Við bættist að hafin var mikil
herferð gegn mér í Háskóla Ís-
lands. Þetta var ekki skemmtilegur
tími. Ég stóðst prófið og komst
óskaddaður frá því en auðvitað tók
þetta á.“
Þú ert mjög vinnusamur maður.
Færir vinnan þér ánægju?
„Við hliðið mitt ég heimanbúinn
stend,
á himni ljómar dagsins gullna
rönd.
Sú gjöf mér væri gleðilegust send
að góður vinnudagur færi í hönd.
Þessi einfalda staka eftir Jón
Helgason prófessor er kjörorð mitt
í lífinu.“
Á nokkur skábörn
Margir velta fyrir sér einkalífi
þínu. Ætlarðu einhvern tímann að
tjá þig um það?
„Ég hef ekkert á móti því að tjá
mig um einkalíf mitt en ætla ekki
að gera það í Morgunblaðinu. Í
þessu viðtali hef ég rætt um fjöl-
skyldu mína en ég held að ég
geymi aðra kafla í einkalífi mínu
fyrir bækur sem ég ætla að skrifa
síðar meir og yrði ekki hissa á að
myndu sæta tíðindum. Öll þurfum
við að glíma við vanda tilverunnar
og ég hef gert það á minn hátt og
get miðlað öðrum af því. Ég hef
hugsað mér að skrifa bækur um
reynslu mína af ýmsum toga.
Einnig ætla ég að skrifa bók um
minnisstæða menn sem ég hef
kynnst og sögulega viðburði sem
ég hef orðið vitni að.“
Finnst þér verra að vera barn-
laus?
„Já og nei. Í raun og veru á ég
börn. Systur mínar eiga dætur
sem eru hálfgerðar fósturdætur
mínar og Aníta Ylfa Jónsdóttir,
dóttir fráskilins vinar míns sem
leigði lengi hjá mér, er sömuleiðis
eins konar fósturdóttir mín. Þannig
að ég á nokkur skábörn. Það er
góð viðbót við manns eigið líf að
geta stutt aðra og fengið stuðning
frá öðrum. Þetta minnir mig á það
að þegar ég var ungur drengur þá
bjó vinafólk foreldra minna í næstu
íbúð. Nágrannakonan hét María
Haraldsdóttir og hún var mér eins
og önnur móðir. Mér þótti allt gott
sem María gerði. Þegar ég vildi
ekki matinn heima hjá móður
minni fór ég yfir til Maríu til að fá
mat hjá henni. Móðir mín laum-
aðist þá til Maríu með matinn sem
ég hafði ekki viljað og ég borðaði
Hamingjan
er uppgjör
við lífið
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON, SEM VERÐUR
SEXTUGUR Í NÆSTU VIKU, RÆÐIR UM BARNÆSKU
OG VINNUSEMI. EINNIG TALAR HANN UM SKÁBÖRN-
IN SEM HANN Á OG LÍFIÐ Í BRASILÍU. ERFIÐIR TÍMAR
OG HAMINGJAN BERAST EINNIG Í TAL.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
* Öll þurfum við að glíma við vandatilverunnar og ég hef gert það á minnhátt og get miðlað öðrum af því. Ég hef
hugsað mér að skrifa bækur um reynslu
mína af ýmsum toga.
Svipmynd