Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 15
hann með bestu lyst hjá Maríu.“ Ég veit að þér finnst gaman að borða góðan mat en þú eldar ekki sjálfur. „Nei, ég hef aldrei vanist því. Satt að segja var ég nokkuð dekr- aður af móður minni. Hún var reyndar mikil kvenréttindakona og vildi kenna mér að þvo upp og strauja og annað slíkt en ég er ekki mjög húslegur í mér. Hinu er ekki að leyna að ég er mikill mat- maður. Ég er svo heppinn að elsta systurdóttir mín, Ásta Lilja Steins- dóttir, eldar sérlega góðan mat og einn nánasti fjölskylduvinur minn, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, er meistarakokkur og það liggur við að ég sé í mat hjá honum og fjölskyldu hans einu sinni í viku.“ Lífið í Rio Þú býrð nokkra mánuði á ári er- lendis, í Brasilíu. Af hverju Bras- ilía? „Ég fór fyrst á ráðstefnu í Rio de Janeiro árið 1993 og heillaðist af borginni. Þar er ströndin en líka iðandi líf stórborgar. Smám saman kynntist ég fólki og hóf rannsókn- arsamstarf við stofnanir í Rio og myndaði vísi að rannsóknarsetri þar árið 2007. Ég hef verið tals- vert mikið þar í rannsóknarsam- starfi en auðvitað hef ég ekki held- ur slegið hendi á móti því að njóta lífsins í Rio sem er einn skemmti- legasti staður í heimi. Þar á ég góðan vinahóp. Í honum eru að- allega efnaðir Bretar og Banda- ríkjamenn en líka menn frá öðrum þjóðum, allir talsvert eldri en ég. Þetta eru menn sem sumir myndu kalla alkóhólista, en þeir hafa ekk- ert annað að gera en að velja um hvort þeir eigi að fara á ítalska eða franska veitingastaði á kvöldin eða hvort þeir eigi að drekka Man- hattan eða Dry Martini á undan matnum. Þessi hópur er kannski ekki mjög andlega gefandi en það getur verið þægilegt að umgangast menn sem eru ekki að velta fyrir sér öðru en því hvernig þeir eigi að stunda lífsnautnir.“ Þegar fólk fer að eldast fer það oft að velta fyrir sér tilgangi lífsins og trúmálum. Ert þú trúaður? „Ég myndi svara því svipað og minn gamli lærimeistari Hayek, að ég væri dálítill efahyggjumaður sem veðjar samt á kristna trú. Ég útiloka ekki að Guð sé til og því er betra að vera hans megin.“ Hver er þá tilgangur lífsins? „Ég tel að tilgangurinn með líf- inu sé ekki sæla eða ánægja því að betra er að vera óánægður Sókrat- es en ánægt svín, eins og John Stuart Mill benti á. Ef lífið á sér einhvern tilgang þá er hann fólg- inn í lífinu sjálfu. Auðvitað er ham- ingja mjög mikilvæg en því harðar sem við keppum að hamingjunni því frekar mun hún hörfa undan. Hamingjan er miklu frekar upp- gjör okkar við lífið þegar við horf- um um öxl og segjum: Ég lagði upp á fjallið og komst ofarlega, jafnvel á tindinn; ef ég hrasa, þá stend ég alltaf upp aftur; ég get skilið sáttur við. Í mínum bókum heitir þetta að vera hamingju- samur.“ Hannes Hólmsteinn Giss- urarson Þegar ég var yngri var ég leitandi sál. Ég get þó ekki sagt að ég sjái sér- staklega eftir allri þeirri leit. Morgunblaðið/Kristinn 17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985 • Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 Halló, Vetur. við bjuggum okkur undir komu þína með skynvæddu fjórhjóladrifi. *B es ti 4 x4 bí ll ár si ns sa m kv æ m tT ot al 4 x4 M ag az in e. HALLÓ. MEIRA NÝTT. www.honda.is/cr-v Með CR-V erum við vel undirbúin þegar snjórinn kastar til okkar tækifærum. Skynvætt stöðugt vaktandi fjórhjóladrif reiknar út þörfina á gripi og dreifir aflinu aðeins í þau dekk sem þurfa þess. Á meðan brekku-hraðastjórnandinn hjálpar þér að halda fullri stjórn og mýkt niður brekkuna, án þess að þú þurfir að bremsa. Fjórða kynslóð Honda CR-V setur ný viðmið í ferðaþægindum, gæði innréttinga og gagnsemi í akstri. Náðu taki á vetrinum. Lifðu meira nýtt, keyrðu Honda CR-V. Besta 4x4 bíl ársins*.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.