Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Page 18
Þ
að var í febrúar árið 2012 sem mér
bauðst af fara í vettvangsrannsókn á
vegum Háskólans í Lundi til Víet-
nams og Kína. Markmiðið var tví-
þætt, annarsvegar að afla upplýsinga frá
stofnunum og skólum varðandi aðgang heim-
ila að lánsfé og hins vegar að fara út í sveit-
ina og taka viðtöl við fólkið og sjá hvort það
upplifði aðgang sinn að lánsfé á sama hátt
og stofnanirnar telja það gera.
Ferðin hófst í Hanoi, höfuðborg Víetnams.
Við komuna þangað kom strax í ljós að um
fjölmenna borg er að ræða.
Af þeim 90 milljónum sem búa í Víetnam
búa um 2,6 milljónir í Hanoi og er hún
næstfjölmennasta borg landsins (Ho Chi
Minh eða Saigon er stærst með 4,9 millj-
ónir).
Þrátt fyrir góðan undirbúning kom menn-
ingarsjokkið strax fyrsta daginn, fólksfjöld-
inn og mótorhjólafjöldinn var fullmikill fyrir
litla Hafnfirðinginn. Það fyrsta sem ég
þurfti að læra var að gleyma öllu sem ég
hafði lært um umferðareglurnar því að í
Hanoi virðist reglan vera sú að keyrt er af
stað og ekki er stoppað fyrr en komið er á
leiðarenda. Skiptir þá ekki máli hvort notast
er við umferðargötur eða gangstéttir og sem
gangandi vegfarandi þarft þú að passa upp á
að vera ekki fyrir því ekki er dregið úr
hraðanum þó svo að þú sért fyrir.
Asísk borg undir evrópskum áhrifum
Þrátt fyrir þessa byrjunarörðugleika er
óhætt að segja að Hanoi sé gríðarlega
áhugaverð borg með ríka sögu sem nær allt
aftur til 7. aldar. Enn má sjá áhrif frá
Frökkum sem gerðu borgina að franskri ný-
lendu árið 1882 og hélst það allt fram til
1945. Franska er enn töluð sem annað
tungumál hjá mörgum innfæddum og bygg-
ingarstílnum á mörgum byggingum svipar til
gotneska stílsins sem er áberandi í Evrópu.
Þrátt fyrir frönsk áhrif er Hanoi samt
sem áður asísk borg, að ganga um gamla
bæinn og upplifa markaðina með viðeigandi
prútti, framandi matseld og framúrskarandi
kaffi er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma.
Í Hanoi er mikið af veitingastöðum sem
kallast „Bia Hoi-bars“ sem eru litlir veit-
ingastaðir staðsettir við götur borgarinnar.
Þar er hægt að borða og drekka heima-
bruggaðan bjór á vægu verði. Það var ein-
mitt á einum slíkum sem ég fékk einn besta
bjór sem ég hef smakkað og þann lang-
ódýrasta, á þessum stöðum greiðir maður
Davíð Ellertsson
segir að þrátt
fyrir undirbúning
hafi mann-
mergðin valdið
menningarsjokki.
LEYNDARDÓMAR VÍETNAMS
Heppinn að
kynnast
heimafólki
DAVÍÐ ELLERTSSON ALÞJÓÐAHAGFRÆÐINGUR LÆRÐI MARGT Á
ÞRIGGJA VIKNA FERÐ UM VÍETNAM. HANN REKUR FERÐASÖGUNA FYRIR
LESENDUM SUNNUDAGSBLAÐS MORGUNBLAÐSINS.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Ferðalög og flakk
H Ú S G AG N A H Ö L L I N • B í l d s h ö f ð a 2 0 • Re y k j a v í k • s í m i 5 5 8 1 1 0 0 O P I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a rd . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7
ASPEN La-z-boy stóll. Áklæði í mörgum
litum. Einnig til í svörtu, vínrauðu, brúnu
eða hvíttu leðri. B:80 D:85 H:102 cm.
87.990
VERÐ: 109.990
NORMAN La-z-boy stóll.
Brúnt áklæði.
B:74 D:70 H:103 cm.
99.990
VERÐ: 124.990
PINNACLE La-z-boy stóll.
Vínrautt, svart, natur eða rúat-
rautt leður. B:80 D:85 H:104 cm.
139.990
VERÐ: 179.990
RIALTO La-z-boy stóll.
Grátt og ljóst áklæði.
B:80 D:85 H:104 cm.
103.990
VERÐ: 129.990
HARBOR TOWN La-z-boy stóll. Ljós-
grár, rauðbrúnn og grænn. Einnig svörtu
og brúnu leðri. B:70 D:70 H:102 cm.
103.990
VERÐ: 129.990