Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Page 24
*Heimili og hönnunHönnuðurinn Sigga Heimis segir álið hafa mikla möguleika sem efniviður í fallega hluti »26Skápur eftir Peter Andersson, munstrið er hönnun10-gruppen og framleiðsla í höndum Sundling.
The Woods. Hönnun Stokkes
Austad og Andreas Engesvik.
Hai-stóll eftir Luca Nichetto fyrir
One Nordic Furniture Company.
Sérstaklega falleg karafla og glös
sem heita Frost og er þetta
hönnun Front fyrir Stelton.
Ný lína frá Minus Tio.
Stílhreint skrifborð,
Tati frá Asplund.
HÖNNUNARSÝNING Í STOKKHÓLMI
Það nýjasta
norræna
HÖNNUNARSÝNINGIN Í STOKKHÓLMI ER GÓÐ
TIL AÐ FÁ YFIRSÝN YFIR ÞAÐ NÝJASTA Í NORRÆNNI
HÖNNUN. HÉR ER BROT AF ÞVÍ BESTA.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Collect 2012-skápur með
leðri með hreistursáferð.
Hönnun A2 designers.
S
ýningin Stockholm Furniture and Light Fair var haldin um
síðustu helgi samhliða hönnunarviku þar í borg en þarna
má sjá allt það besta sem er að gerast í norrænni hönnun
um þessar mundir.
Hönnuðurinn Sigga Heimis þekkir vel til sýningarinnar og þykir hún
skemmtileg. „Hún er ekkert mjög stór, það eru til stærri sýningar eins
og Mílanó-sýningin í apríl. En hún er mjög meðfærileg og fókuserar svo
vel á norræna hönnun. Þetta er góð sýning til að sjá hvað Norðurlöndin
eru að gera og mjög vönduð sýning. Hún er vel unnin og ekki verið að
kasta til höndunum. Ég hitti líka svo marga kollega en ég bjó þarna í
mörg ár. Þetta var virkilega gaman og fróðlegt,“ segir Sigga, sem var í
Stokkhólmi á dögunum ásamt fleiri íslenskum hönnuðum eins og greint er
frá á næstu opnu.
Sænski bloggarinn Emma Fexeus, sem er með emmas.blogg.se, eitt
elsta og mest lesna hönnunarblogg Norðurlandanna, fór á sýninguna. Hún
valdi gripina sem skreyta síðuna hér á meðal þeirra athyglisverðustu á
sýningunni. Emma hefur sérstaklega gott auga fyrir hönnun og því vert
að taka mark á skoðun hennar. Fleiri hluti til viðbótar má finna á
Facebook-síðu hennar www.facebook.com/EmmasDesignblogg.
Caravaggio-vegglampi.
Hönnun Cecilie Manz
fyrir Lightyears.