Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 26
Garðar Eyjólfsson og Katrín Ólína hafa hannað
marga skemmtilega víkinga. Hér er eitt dæmi.
Álið kveikir
hugmyndabál
ÍSLENSKIR HÖNNUÐIR HAFA EKKI MIKIÐ UNNIÐ MEÐ ÁL HINGAÐ
TIL EN VERKEFNIÐ 13AL+ Á EF TIL VILL EFTIR AÐ BREYTA ÞVÍ.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Borðið er hönn-
un Þóru Birnu.
SÆNSK-ÍSLENSKT SAMSTARFSVERKEFNI
Í
slenskir hönnuðir sýndu þróunarverkefni með ál
sem efnivið á sýningunni 13Al+ á hönnunarviku í
Stokkhólmi sem haldin var samhliða Stockholm
Furniture and Light Fair um síðustu helgi.
Hönnuðirnir Sigga Heimis, Snæbjörn Stefánsson,
Þóra Birna, Garðar Eyjólfsson og Katrín Ólína taka
þátt í verkefninu, sem er unnið í samstarfi við ís-
lenska og sænska álframleiðendur. Til viðbótar voru
Volki, Bryndís Bolladóttir og Á. Guðmundsson með
bás á hönnunarsýningunni.
Sigga Heimis segir verkefnið hafa byrjað í kring-
um Hönnunarmars í fyrra og var sýningin í Stokk-
hólmi forsmekkurinn af því sem hægt verður að sjá á
Hönnunarmars í ár. Hún segir verkefnið skemmti-
lega umfangsmikið og samvinnu við bæði ís-
lensk og sænsk fyrirtæki hafa verið gef-
andi. „Við fórum í leiðangur með
hvað er hægt að gera með
ál og við ál,“ segir hún
bætir við að hönnuðirnir
séu líka búnir að heim-
sækja álver. Hún bendir
á að hönnuðirnir í verkefn-
inu séu með ólíkan bakgrunn,
sem skapi frekari fjölbreytni.
Sigga fór í samstarf við SAPA,
stóran álprófílframleiðanda í Svíþjóð.
„Minn útgangspunktur var að gera eitthvað úr
álprófílum,“ segir hún en úr varð kassalaga
kollur. Hugmyndin kom frá pappakössum. „Álið
er létt og sterkt og það er auðvelt að brjóta
kollinn saman. Kollurinn þolir veður og vind og
getur staðið úti. Hugmyndin var sú að það væri
hægt að nota kollinn í ráðstefnuherbergjum, nota
20-30 kassa bæði sem borð og stóla í stað hefð-
bundinna þungra húsgagna,“ segir hún og bendir
líka á að fólk geti snúið sér á alla kanta á svona
stól.
„Það er svo oft sem ég fæ svo þröngan ramma,
eins og þegar ég teikna fyrir IKEA fæ ég að vita
hvað hluturinn á að kosta, hvað á að nota hann í,
hvernig hann á að vera og liggur við í hvaða lit hann
á að vera. Það er minn veruleiki. Mér fannst því
gaman að búa til hlut sem er opinn og getur gengið
við ýmis tækifæri,“ segir Sigga og bætir við að hún
hafi fengið mikla hjálp frá manninum sínum með
tæknilegu hliðina en hann er verkfræðingur.
Sigga stoppaði ekki þarna því hana langaði líka að
vinna með íslensku fyr-
irtæki. Málmsteypan
Hella býr til pönnuköku-
pönnur og Siggu datt í
hug í „jólageggjuninni í
desember“ að búa til eitt-
hvað tengt þeim. „Ég var
að baka smákökur og
fékk þá hugmynd að búa
til kökukefli sem myndi
passa við pönnuna. Mig
langaði að búa til nytja-
hlut í eldhúsið sem þarf
ekki alltaf að vera að
troða ofan í skúffu,“ segir hún en kökukeflið er sér-
lega fallegt og sómir sér vel á borði.
Hún lét heldur ekki staðar numið þarna. „Mér
finnst svo gaman að vinna úr þessu efni,“ segir Sigga
sem datt í hug í kjölfar kökukeflisins að búa til æf-
ingatæki úr áli, enda fylgir ræktin gjarnan í kjölfar
kökuátsins.
Æfingatæki sem stofustáss
„Venjuleg lóð eru úr stáli en mér datt í hug
að gera lóð úr áli,“ segir hún en állóðin eru
auðvitað miklu stærri og hægt að taka sig
mun betur út með þau en lítil stállóð en lóðin
vöktu hvað mesta athygli af gripunum í Stokk-
hólmi. Þau eru eru falleg á að líta og minna á
skúlptúr og myndu jafnvel taka sig vel út í
stofunni. Þau hafa líka getið af sér nýtt verk-
efni hjá Siggu sem á eflaust eftir að fá góðar
viðtökur en það er lína af heimaæfingatækjum
fyrir stofuna. „Til dæmis sófaborð sem hægt er
að nota sem bekk og mottu sem hægt er að
snúa við og nota þá í jóga. Þetta eru hlutir sem
blandast inn í stofuna án þess að hverfa,“ segir
hún en þetta hljómar spennandi.
Í framhaldi af Hönnunarmars verður haldin
ráðstefna um álhönnunarvörurnar og ætla hönn-
uðirnir sem taka þátt í þessu verkefni að senda
þekkinguna áfram. „Ég held að það eigi eftir að
geta komið skemmtileg flóra út úr þessu og að
verkefnið verði yngri hönnuðum innblástur. Það
er spennandi að leika með þetta hráefni. Ég sé
fyrir mér að það væri gaman að taka þetta lengra
og fara með í skólana til næstu kynslóðar. Þetta er
byrjunin á skemmtilegu ævintýri.“
Iðnhönnuðurinn fjölhæfi
Sigga Heimis.
Ljósmyndir/ Eric Wolf
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Heimili og hönnun
143.500
Borð og 4 stólar
79.900
Havanna, borð
15.900
Havanna, stóll
havanna línan
luktir
Hvítar 400/0