Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Qupperneq 28
*Matur og drykkir Hægt er að útbúa súkkulaðiskálar með því að blása í blöðrur, þekja með súkkulaði og kæla »32
E
inar Geirsson, matreiðslumeistari á veit-
ingastaðnum Rub 23 á Akureyri, og annar
eigenda staðarins, ákvað að setja sushi-
pítsu á matseðilinn haustið 2008 – fljót-
lega eftir að staðurinn var opnaður. „Ég sá svip-
aða útfærslu í Ameríku skömmu áður en
heimfærði réttinn á okkar vísu, þannig að upp-
finningin er algjörlega mín,“ segir hann.
Einar segir að rétturinn hafi ekki beinlínis ver-
ið vinsæll fyrsta kastið! „Ég þreifaði mig áfram,
hægt og rólega. Var aðallega í því að gefa fólki að
smakka vegna þess að nánast enginn pantaði rétt-
inn; menn voru dálítið smeykir við nafnið; ímynd-
uðu sér flatböku með hráum fiski. Mörgum þótti
það reyndar fáránlegt að bjóða upp á sushipítsu
og mér var eindregið ráðlegt að skipta a.m.k. um
nafn á réttinum. Mér fannst það hins vegar flott
og var viss um að eftir því yrði tekið.“
Eftir að fólk komst upp á lagið hefur sala á
sushipítsu aukist gríðarlega, jafnt og þétt á hverju ári og hún er vinsæl bæði sem forréttur
og aðalréttur á Rub 23-stöðunum tveimur, á Akureyri og í Reykjavík. Einar segir þá Krist-
ján Þóri Kristjánsson, hinn eiganda staðarins, ekki hafa stefnt að því í upphafi að sushi yrði í
því öndvegi á staðnum sem raunin er, en vinsældir margskonar sushirétta aukist sífellt.
Sushipítsan á Rub 23 er
girnileg og gríðarlega
vinsæl, bæði á Akureyri
og í Reykjavík.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
2 Eftir að seinna noriblaðið er lagt ofan ágrjónin og þrýst saman er skorið í fernt.
1Hrísgrjón eru fyrst sett á þarablaðið (nori)þannig að blaðið sé alveg hulið.
SUSHIPÍTSAN GRÍÐARLEGA VINSÆL Á RUB 23
Sumir voru hálf-
smeykir í fyrstu
Árni Þór Árnason matreiðslumaður t.v. og
Einar Helgi Sigurðsson matreiðslunemi.
7 Pítsan er síðan skorin í átta bita. Sá fjöldihentar vel sem forréttur fyrir einn.
5 Bleikja, kryddjurtamauk, mangó-chilí-sultaog hvítlauksolía hrærð vel saman í skál.
4 Þá er pítsubotninn djúpsteiktur í 1-2 mín-útur, þar til hann er orðinn gullinbrúnn.
3 Því næst er sushiinu dýft ofan í tempuradeig.
8 Að síðustu er chilimajones, sojasósa, vor-laukur og rauð paprika sett ofan á pítsubitana.
6 Nokkuð þykku lagi af bleikjutartarnum erþví næst smurt ofan á ræmuna af pítsunni.
ÞEGAR EINAR GEIRSSON BAUÐ FYRST UPP Á SUSHIPÍTSU ÞORÐU FÁIR AÐ
PANTA HANA. HÚN HEFUR SÍÐAN RÆKILEGA SLEGIÐ Í GEGN.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
SUSHIPÍTSUBOTN
2 noriblöð; nori er pressaður þari,
sem fæst orðið í mörgum versl-
unum
100 g sushigrjón (soðin)
Tempuradeig; fæst líka víða sem
duft sem vatni er blandað saman við
Setjið grjónin á annað noriblaðið þann-
ig að það sé alveg hulið, leggið síðan hitt
noriblaðið ofan á grjónin og pressið létt
með höndunum, skerið í fjóra hluta, dýfið
síðan í tempuradeigið og djúpsteikið.
BLEIKJUTARTAR Á SUSHIPÍTSU
100 g bleikja, fínt skorin
1 tsk kryddjurtamauk (steinselja,
kóríander, basilíka)
1 tsk mangó-chilí-sulta
½ tsk hvítlauksolía
Öllu blandað saman og sett ofan á
djúpsteikta sushipítsubotninn.
Svo er pítsan toppuð með chilimajo-
nesi (hrærið saman majones og chili),
sætri sojasósu, vorlauk og rauðri papr-
iku.
Sushipítsa í forrétt fyrir fjóra