Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Matur og drykkir
V
ið vinkonurnar ákváðum að hittast og fara yfir nýafstaðið
brúðkaup en ein í hópnum, Ásta Björg, gifti sig fyrir
tveimur vikum,“ segir Guðrún Heimisdóttir, sérfræðingur
hjá Arion banka og gestgjafi í Hafnarfirði eitt þriðjudags-
kvöld. Æskuvinkonur Guðrúnar hafa verið saman í saumaklúbbi,
sem þær kalla reyndar nammiklúbb, í um 13 ár. Þær voru allar
saman í grunnskóla og Guðrún segir að reyndar mætti kalla
nammiklúbbinn hollustuklúbb í dag því undanfarið hefur aukin
áhersla verið lögð á gæðafæði.
„Ég er reyndar ekki mikil matarboðsmanneskja en maðurinn
minn er þeim mun sterkari á því sviði og við erum gott tvíeyki
þegar við fáum matargesti.“ Skálar úr suðusúkkulaði sem Guðrún
útbjó fyrir boðið sýna reyndar að henni er margt til lista lagt en
skálarnar eru útbúnar þannig að blöðrur sem blásið hefur verið ör-
lítið í eru þaktar bráðnu suðusúkkulaði til hálfs og stungið inn í ís-
skáp. Daginn eftir eru blöðrurnar sprengdar og eftir standa dýr-
indis skálar sem hægt er að borða og má fylla af alls kyns
gúmmelaði.
„Við reynum að hittast reglulega og í þetta skiptið var kjúklingur
og æðislegur kartöfluréttur sem ég mæli með í aðalrétt. Við hjónin
vorum búin að prófa okkur áfram með eftirréttinn í nokkra daga og
ég var afar sátt við útkomuna.“ Guðrún og Margrét Lilja hjálpast að við að raða forréttinum á bakka.
MATARBOÐ Í HAFNARFIRÐI
Nammi-
klúbburinn
María Kristín Gröndal, Margrét Lilja
Pálsdóttir, Guðrún Heimisdóttir,
Rannveig Þorvaldsdóttir og
Ásta Björg Davíðsdóttir.
GUÐRÚN HEIMISDÓTTIR OG ÆSKUVINKONUR
HENNAR AF SELTJARNARNESI HITTAST REGLULEGA
OG BORÐA SAMAN GÓÐAN MAT.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
1 kg kjúklingabringur
½ bolli möndlumjöl
½ bolli kókosmjöl
¼ tsk. sjávarsalt
2 egg
2 msk. kókosolía
Blandið saman möndlumjöli, kók-
osmjöli og sjávarsalti í skál. Hrærið
eggin saman í annarri skál. Skerið kjúk-
linginn í sneiðar, dýfið honum í eggið og
veltið upp úr mjölinu. Brúnið kjúkling-
inn upp úr kókosolíu á heitri pönnu.
Raðið í eldfast mót og bakið í ofni við
180°C í 20 mínútur.
Kjúklingurinn
Hvítar sósur passa vel með kjúklingnum, Guðrún
mælir með saffransósu og grænum Ora-baunum.
Tilvalinn forréttur.