Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Síða 33
Suðusúkkulaði, um það bil 1⁄3
plata á hvern gest
súkkulaðikaka að eigin vali
vanilluís
Nóa-kropp
karamellusósa
Bræðið suðusúkkulaðið kvöldið áður. Látið það bíða í 10-15 mínútur
en gætið þess að það sé enn fljótandi. Blásið upp litlar blöðrur og
þekið þær til hálfs með súkkulaðinu. Látið blöðrurnar bíða í hálftíma í
ísskáp og þekið þær svo aftur með súkkulaði. Látið blöðrurnar
standa í ísskápnum yfir nótt. Sprengið þær daginn eftir. Fyllið súkku-
laðiblöðrurnar með ís, súkkulaðiköku, Nóa-kroppi og karamellu-
sósu. Fólki er auðvitað frjálst að fylla skálarnar með því sem hugurinn
girnist og þetta getur hentað vel fyrir þá sem eru til dæmis með
mjólkurofnæmi, þá er hægt að setja eitthvað annað í þá skál.
Blöðru-
eftirréttur
Morgunblaðið/Golli
17.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
2 stórar sætar kartöflur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
1 bolli hrásykur
1 tsk. lyftiduft
½ bolli smjör
¼ tsk. salt
Bakið kartöflurnar í ofni við
180°C í 30 mínútur.
Flysjið kartöflurnar og maukið.
Bætið öðru hráefni út í og bland-
ið vel saman. Setjið í eldfast mót
og bakið í 20 mínútur.
TOPPURINN
4 tsk. smjör
¼ bolli púðursykur
1½ bolli kornflex
½ bolli saxaðar kasjúhnetur
Bræðið smjörið. Myljið kornflexið og
bætið því út í smjörið ásamt púð-
ursykri og hnetum. Dreifið yfir kart-
öfluréttinn.
Bakið aftur í 20 mínútur við
180°C.
Efsta lagið er meðal annars úr púður-
sykri, kasjúhnetum og kornflexi.
Sætur
kartöfluréttur
10 sneiðar beikon
20 stk. döðlur, steinlausar
20 stk. möndlur
½ camembert
„hot pepper jelly“ og „apple cran-
berrry chutney“ frá Stonewall
Kitchen
Forhitið ofninn í 170°C.
Troðið möndlu inn í hverja döðlu.
Skerið beikonsneiðarnar langsum í
tvennt og vefjið hálfri beikonsneið utan
um hverja döðlu. Bakið í sjö mínútur.
Skerið camembertost í litla bita, setjið á
hverja döðlu ásamt sultunum. Bakið í
aðrar sjö mínútur. Borðist volgt.
Döðlur
og beikon
Drykkurinn er einkar fallegur á litinn – í senn vor- og páskalegur.
Grænn og
góður drykkur
1 epli
1 pera
1 mangó
½ tsk. ferskt engifer
2 bollar spínat
3 bollar eplasafi
Flysjið eplið, peruna og
mangóið.
Saxið engiferinn smátt og
setjið allt saman í blandarann.
Hrærið í spað. Hellið í glös og
skreytið með súraldinsneið-
um. Drekkið kalt og ferskt.