Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Side 34
V
ínylplötur eru aftur orðnar töff. Og plötuspil-
arar þar með líka. Hægt er að fá notaða plötu-
spilara á Barnalandi fyrir lítinn pening eða nið-
ur í fimm þúsund þegar þetta er skrifað. Hins
vegar er einnig hægt að fá spilara á yfir 100 þúsund krón-
ur á sömu síðu. Flestallar raftækjabúðir bjóða plötu-
spilara til sölu og er verðið á þeim eins mismunandi
og þeir eru margir.
Skálmöld, Retro Stefson og Ásgeir
Trausti hafa öll gefið út sínar plötur á
vínyl og eru bæði tónlistarmennirnir
sjálfir og aðdáendur þeirra ánægðari
með gripinn í þeirri útgáfu enda
hljómurinn betri, umslagið þykkara og mynd-
irnar stærri.
Að hlusta á vínyl er eins og að hlusta með
augunum. Athöfnin að setja plötu á fóninn er
líka mun hátíðlegri en að ýta á play. Tilfinningin
er önnur og það er saga á bak við hvern tón.
Sigurður Geirdal, betur þekktur sem Silli Geirdal, bassaleikari í
þungarokksbandinu Dimmu og einn færasti hljóðmaður landsins, er
mikill aðdáandi vínyls.
„Ég veit ekki af hverju, en mér finnst vínyll bara hljóma betur,
þ.e. tónlistin hljómar betur af vínyl. Svo er formið líka bara svo
skemmtilegt og þegar hulstur er vel hannað er bara svo margt að
skoða.“ Hann bendir einnig á að þótt tækninni hafi fleygt fram
skynji mannseyrað hljóm vínylsins betur. „Tæknilega er margt sem
ætti að benda til þess að stafræna formið sé betra, en senni-
lega eru eyrun okkar bara svo ófullkomin að við skynjum
analog bara betur. Svo er aftur annað að þegar kemur
að því að ferðast með tónlist finnst mér mp3-spilarinn
minn betri en ferðaplötuspilarinn og hljómurinn betri.“
Hvert sem horft er hefur sala á vínylplötum farið upp á
við. Í Svíþjóð fór salan upp um 92% árið 2010 og Frakkar seldu
milljón vínylplötur í fyrra miðað við 200 þúsund árið 2008. Heild-
arsalan árið 2006, þegar vínylplatan rakst á botninn, var 36 milljónir
platna. Árið 2011 var salan hins vegar 116 milljónir.
VÍNYLPLÖTUR SELJAST BETUR NÚ EN FYRIR NOKKR-
UM ÁRUM ÞEGAR TALIÐ VAR AÐ ÞÆR HEYRÐU SÖG-
UNNI TIL. SILLI GEIRDAL HLJÓÐMAÐUR TELUR AÐ
EYRAÐ NEMI HLJÓM VÍNYLSINS BETUR EN HLJÓM ÚR
TÆKI SEM SPILAR TÓNLIST Á STAFRÆNU FORMI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
*Græjur og tækniBílar sem keyra sjálfir gætu verið það sem koma skal. Google prófar nú slíkar sjálfrennireiðar »36
LENCO
Verð 24.995 krónur. Fæst í
Heimilistækjum.
LENCO
Verð 59.995 krón-
ur. Fæst í Heim-
ilistækjum.
VÍNYLPLÖTURNAR STANDAST TÍMANS TÖNN
CROSLEY
Verð 49.900 krónur.
Fæst í My Concept store.
NAD
Verð 69.995 krónur.
Fæst í Heimilistækjum.
PIONEER PL-990
Verð 49.900 krónur. Fæst í Ormsson.
ION QUICKPLAY LP
Verð 10.999 krónur. Fæst í BT
Vínyllinn
að sigra
heiminn
ION VERTICAL
Verð 11.999 krónur. Fæst í BT. Getur staðið á vegg.
ION LP2GO
Verð 9.999 krónur. Fæst í BT.
KÖNIG
Verð 29.995 krónur.
Fæst í Elko.
KÖNIG
Verð 19.995 krónur. Fæst í Elko.
Silli Geirdal