Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Page 36
yrðu fáanlegir þegar árið 2019.
Google hefur um skeið unnið að
gerð bíls sem keyrir sig sjálfur,
án aðstoðar bílstjóra. Fyrirtækið
hefur þegar náð talsverðum ár-
angri í þessar þróun, en prufubíl-
ar Google hafa staðið sig ansi vel
í umferðinni og hafa nú ekið um
500.000 km án óhappa, ef frá er
talin aftanákeyrsla þar sem öku-
mannslaus Google-bifreið stór
kyrrstæð á rauðu ljósi. Tæknin
byggist á skynjurum sem nema
umhverfið og halda hæfilegri fjar-
lægð frá næstu bílum miðað við
ökuhraða. Upplýsingar um vegi og
hámarkshraða fær ökutölvan frá
GPS-gagnagrunni sem kortakerfi
Google byggist á. Nú þegar hafa
þrjú ríki Bandaríkjanna, Flórída,
Nevada og Kalifornía, breytt lög-
um sínum til þess að heimila öku-
mannslausa bíla, þó einungis í til-
raunaskyni og aðeins ef ökumaður
Þ
ótt tæknin sé handan við
hornið eru enn ýmsar lög-
fræðilegar og heimspeki-
legar spurningar sem á
eftir að svara áður en þessi tækni
kemst á markað. Anthony Levan-
dovski er einn fimmtán verkfræð-
inga sem starfa hjá Google við að
undirbúa framleiðslu bíls sem
keyrir sig sjálfur. Hann var einn
mælenda á ráðstefnu Samtaka
verkfræðinga í bílaiðnaðinum í
Bandaríkjunum um síðastliðin
mánaðamót. Í erindi hans kom
fram að Google gerir ráð fyrir að
sjálfkeyrandi bíll (það er freist-
andi að tala um sjálfkeyrandi
sjálfrennireið) sem Google hefur
unnið að um skeið verði orðinn
klár fyrir markað eftir þrjú til
fimm ár. Þá segir í skýrslu sem
KPMG vann fyrr Rannsókn-
arstofnun umferðarmála í Banda-
ríkjunum að ökumannslausir bílar
er við stýrið til að grípa inn í ef
eitthvað fer úrskeiðis.
Fleiri að þróa
ökumannslausa bíla
Google er ekki eina fyrirtækið
sem vinnur að þessari tækni.
Volvo hefur náð þónokkrum ár-
angri á þessu sviði, en auk þess
hafa bæði Audi, Toyota og Nissan
verið að prufa sig áfram með öku-
mannslausa bíla. Þegar eru á
Google,
keyrðu mig
heim
EF FRAM HELDUR SEM HORFIR VERÐUR BÍLSTJÓRINN ORÐ-
INN MEÐ ÖLLU ÓÞARFUR INNAN FÁRRA ÁRA. ÞAÐ
MYNDI VÆNTANLEGA DRAGA VERULEGA ÚR UMFERÐ-
ARSLYSUM, SEM FLEST ERU VEGNA MANNLEGRA MISTAKA.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013
Græjur og tækni
Svissneska risafyrirtækið Nestlé hefur verið leiðandi í notkun á
kaffivélum sem nota kaffi í lofttæmdum hylkjum sem stungið er í
vélina og viðeigandi vatnsmagn valið. Það er þó ekki það eina við
vélarnar heldur nota þær líka sjóðandi vatn undir þrýstingi sem
skiptir miklu. Fyrirtækið selur tvær slíkar vélar, Nespresso og
Dolce Gusto með nokkrum undirtegundum. Hylki í fyrrnefndu
gerðina er aðeins hægt að kaupa á netinu og þar sem vélin er seld
en hylki í þá síðarnefndu má fá víða í verslunum.
Dolce Gusto-vélarnar eru fimm sem stendur; Piccolo Ge-
nio, Melody 2, Circolo og Creativa. Þær eru mistækni-
legar, sú síðastnefnda tölvustýrð, og líka misjafnar í
útliti, sjá til að mynda meðfylgjandi mynd af þeirri
vél sem ég fékk lánaða til að fjala um, Circolo.
Ekki er bara að hylkin tryggi að kaffi haldi
bragðgæðum, heldur gera þau það líka kleift að
hafa til að mynda mjólk með í hylkinu eins og í
cortado eða latte macchiato. Einnig er hægt að
búa til kalda drykki í vélinni og kakó líka, án
þess það komi kaffibragð af. Sumir drykkir eru
svo gerðir með tveimur hylkjum, einu með kaffi
og öðru með mjólk. Dæmi um það er cappuccino
sem er gert þannig að fyrst er kaffihylki sett í og
að því loknu mjólkurhylkið.
Það eru ýmsar gerðir af kaffi, til að mynda uppáhellt bleksvartmeð olíubrák, pressukaffi með korgkryddi eða gæðadropi úrmilljónavél. Það eru líka til gæðavélar til heimilisbrúks, marg-
ar framúrskarandi, en svo er líka hægt að fá sér kaffi á einfaldari
hátt, kannski ekki jafn gott og úr meistaravélinni dýru en býsna
nálægt því engu að síður.
Allir þekkja væntanlega kaffivélar sem
nota kaffigrisjur með möluðu kaffi,
enda eru þær býsna algengar
hér á landi. Kostur við það
er meðal annars hve auð-
velt er að fá sér einn
bolla af kaffi og eins hve
miklu þrifalegra það er
en uppáhelling eða pres-
sukanna. Ókostur er þó
sá sami og með kaffi-
pressur og uppáhellingu því kaffið fer að tapa
bragði um leið og búið er að mala það. Víst get-
ur maður komist hjá því með því að mala nánast
ofan í könnuna, en það er líka önnur leið – pakka
kaffinu inn í lofttæmdar umbúðir um leið og búið er
að mala.
FRAMÚRSTEFNULEG KAFFIVÉL
KAFFIVÉLAR BYGGJAST ALLAR Á ÞVÍ SAMA; HEITT VATN + BRENNDAR OG MALAÐAR KAFFIBAUNIR. ÞEGAR KEMUR
AÐ ÚTFÆRSLUNNI FER ÞÓ HVER FRAMLEIÐANDI EIGIN LEIÐIR EINS OG SJÁ MÁ Á DOLCE GUSTO-KAFFIVÉLUNUM.
Græja
vikunnar
* Með vélinni fylgir sýnishornaf kaffihylkjum, en alls er hægt að
fá tuttugu og átta tegundir af
hylkjum, dæmi: Caffè Lungo, Cap-
puccino, Chai Tea Latte, Chococ-
ino, Espresso, Latte Macchiato,
Mocha, heitt kakó, íste og svo má
telja. Sumar tegundir er reyndar
aðeins hægt að fá í stöku löndum.
* Hylkin kosta sitt og eru dýr-ari en uppáhellt kaffi eða grisjur.
Það er erfitt að gefa nákvæmt
verð á hverjum bolla enda eru
hylkin til sölu í ýmsum verslunum
á mismunandi verði, en hver bolli
kostar 60-70 krónur. Það bjóða
reyndar fjölmörg fyrirtæki vélar
sem nota kaffihylki núorðið og
hver með sína gerð af hylkjum,
nema hvað.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Vélin er óneitanlega óvenju-leg í útliti, í það minnsta þegar
kaffivélar eru annars vegar. Hún
er nánast hringlaga, eins og sjá
má, 19,6 sm á breidd, liðlega 34 á
hæð og 31 sem á dýpt þar sem
vatnstankurinn bungar út að aftan.
TÖLVUSTÝRÐAR BÍLALESTIR
Í Evrópu hafa verið gerðar tilraunir með akstur bílalesta þar sem öku-
maður í fremsta bílnum stjórnar fleiri bifreiðum með aðstoð aksturs-
tölvu. Þannig er hægt að láta marga bíla lúta einni stjórn og fylgja því
sem hinn mannlegi bílstjóri gerir. Þetta gerir kleift að keyra bílana
miklu nær hver öðrum, sem dregur verulega úr loftmótsstöðu og
dragsúg bílanna. Með slíkri tækni mætti draga úr eldsneytisneyslu á
hvern bíl um ein 20%. Síðastliðið sumar lauk Volvo 200 km tilrauna-
leiðangri um hraðbrautir Spánar með aðstoð þessarar tækni.