Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Qupperneq 38
Bergur Ebbi Bendiktsson, lög-
fræðingur og hluti af grínhópn-
um Mið-Íslandi, á það til að
kaupa of lítil föt.
Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Best er að kaupa
heilar gínur
segir Bergur.
Einu sinni munaði litlu að Bergur
hefði keypt Tag Hauer úr á 700
þúsund krónur.
Bergur velur Guðmund Jörundsson
fatahönnuð fram yfir Hugo Boss.
BERGUR EBBI GRÍNISTI
Best er að kaupa
heilar gínur
BERGUR EBBI BENEDIKTSSON Í MIÐ-ÍSLANDS-HÓPNUM
ER MIKILL SMEKKMAÐUR. TÖFFARI AF GUÐS NÁÐ. MIÐ-ÍSLAND
ER MEÐ UPPISTAND ALLAR HELGAR Í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM
ÞAR SEM HLÁTURTAUGARNAR ERU KITLAÐAR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Hver hafa verið bestu fatakaupin þín?
Það eru ekki til góð fatakaup. Við eigum að
vera með nagandi samviskubit í hvert skipti
sem við kaupum föt. Guð skapaði okkur nakin
en Eva stóðst ekki freistingar djöfulsins og í
kjölfarið varð skömmin til og þess vegna þurf-
um við sífellt að hylja líkama okkar. Að vera
stoltur af fatakaupum er svipað eins og að
vera stoltur af vanmætti sínum, en slíkt nefn-
ist dramb og er ávísun á siðferðislega hnignun
manneskjunnar.
En þau verstu?
Ég á það til að kaupa of lítil föt. Ég var lít-
ill eftir aldri og það tognaði ekki úr mér fyrr
en ég var 16 ára. Ég er enn fastur í þessu.
Stundum kaupi ég peysur með ermum sem ná
varla yfir olnboga. Ég er enn að lenda í því að
vakna um miðjar nætur og hrökkva í kút yfir
hvað ég er með langa fætur og hendur.
Stundum er þetta allt komið í hnút undir
sænginni.
Hvar kaupir þú helst föt?
Ég veit það ekki. Þau koma bara til mín. Ég
held hreinlega að ég sé með þetta allt í láni.
Hver er flottasta búð
sem þú hefur komið í?
Ég fór einu sinni inn í úradeildina í Ka-
DeWe í Berlín, en það er stærsta verslunarhús
borgarinnar, og var að skoða Tag Heuer og
eitthvert gúmmelaði. Það kom upp að mér
eldri maður í jakkafötum og spurði hvort ég
vildi leggjast á bekk á meðan hann sýndi mér
úrin. Mér leið eins og ég væri að ganga í Vís-
indakirkjuna og var mjög nálægt því að kaupa
mér ca. 700 þúsund króna úr.
Manstu eftir einhverjum
tískuslysum sem þú tókst þátt í?
Ég var með eyrnalokk þegar ég var 13 ára.
Silfraðan hring. Það er ógeðslega ljótt. En
sem betur fer var ég enn barn á þessum tíma
og fólk hefur bara haldið að ég ætti smekk-
lausa foreldra.
Hvað hefurðu helst í
huga þegar þú velur föt?
Í hvert skipti sem ég klæði mig hugsa ég
eftirfarandi: Hvað ef það kæmi maður upp að
mér núna og rétti mér brúnt umslag? Í um-
slaginu væri bankatékki upp á 8 milljónir evra
og farseðill til München ásamt litlum miða
sem á stæði: „taktu við þessu lítilræði, góur-
inn, eina skilyrðið er að þú mátt ekki skipta
um föt næstu þrjú árin.“
Litadýrð eða svarthvítt?
Í fimm ár dreymdi mig stöðugt í svarthvítu
og nefni ég þetta tímabil ævi minnar jafnan
„radíó-tímabilið“. Þegar mig byrjaði að
dreyma aftur í lit tók ég eftir því að „rauð“
brögð, til dæmis jarðarberjabragð og kirsju-
berjabragð, voru orðin gul og minntu frekar á
sítrónu og vanillu. Í dag tala ég um það sem
„orange-tímabilið“ því skilin á milli guls og
rauðs máðust út og urðu að einhverskonar
appelsínugulu suði, sem ég gat einmitt heyrt
skýrt og greinilega ef það var alger þögn í
kringum mig. En sem sagt … bíddu … hver
var aftur spurningin?
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða
mottó, þegar kemur að fatakaupum?
Maður á að kaupa föt hratt og algerlega
eftir tilfinningu. Ef maður byggði fatakaup sín
eingöngu á rökhugsun þá ætti maður bara tvo
eiturefnagalla og eitt par af támjóum skóm.
Svo er ég með annað ráð. Best er að kaupa
heilar gínur. Ganga inn í búð og benda á gínu
og kaupa það sem hún klæðist.
Hvaða þekkta andlit finnst
þér með flottan stíl?
Ég hef alltaf öfundað einræðisherra. Þeir
virðast komast upp með að klæðast mjög
þægilegum og stílhreinum fötum. Undirmenn
þeirra, til dæmis æðstu yfirmenn hersins og
ráðherrar í ríkisstjórninni, eru yfirleitt í
óþægilegum ullarjakkafötum með hundrað
þungar medalíur utan á sér, en einræðisherr-
ann sjálfur er yfirleitt í kragalausri mussu og
með gott hár.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Ég hef aldrei skilið tískuheiminn eða hvern-
ig maður velur sér uppáhaldshönnuð. Ég veit
til dæmis að Hugo Boss er ekki nettur gaur
sem hannar föt heldur þýskur klæðskeri sem
dó árið 1948 og vann sér það helst til frægðar
að hafa saumað föt á nasistaflokkinn. Í dag
sitja hins vegar hundruð hönnuða sveittir í
ítölsku vöruhúsi og hanna eitthvað í „anda“
gamla nasistans. Ég veit ekki með hverjum
maður á að halda í þessum málum. Ekki
nema ég velji einhvern sem ég þekki. Guð-
mundur Jörundsson er íslenskur fatahönn-
uður sem ég veit fyrir víst að hannar fötin sín
sjálfur og fötin eru mjög flott.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á
verðmiðann, hvaða flík eða
fylgihlut myndirðu kaupa?
Ég hef oft pælt í þessu. Segjum sem
svo að ég ætti endalaust af peningum.
Þá væri ég væntanlega einnig mjög
valdamikill og að öllum líkindum
einnig siðferðislega brenglaður. Ef
við gefum okkur að ég væri bæði
ríkur, valdamikill og siðspilltur þá
myndi ég ganga um í pelsi úr lif-
andi minkum og með a.m.k. þrjár
skammbyssur á mér sem fylgihluti.
Ef þú fengir aðgang að tímavél
sem gæti flutt þig aftur til árs
að eigin vali og þú fengir dag til
að versla, hvaða ár myndirðu
velja og hvert færirðu?
Ég væri frekar til í að ferðast
aftur í tímann til að selja fólki föt
en að kaupa þau. Það væri til
dæmis gaman að selja Júlíusi Ses-
ar FILA-jogginggalla því hann
myndi pottþétt vera mikið í
honum.
*Föt og fylgihlutir Það er ekki seinna vænna að huga að sundfatnaði fyrir vorið nú þegar sól fer að hækka á lofti »40