Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Qupperneq 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Qupperneq 42
M aður sér fleiri og fleiri með fjölnota poka,“ segir Ró- bert A. Skúlason, versl- unarstjóri Bónuss á Smáratorgi. Hann telur að það færist í aukana að fólk noti fjölnota inn- kaupapoka. „Við merkjum það ekki á minni sölu á plastpokunum en maður sér sífellt fleiri með þessa fjölnota poka í innkaupakerrunum. Ég held að það sé meira um þá núna en fyrir nokkrum árum.“ Hjörtur Fjeldsted, vaktstjóri hjá Krónunni í Árbæ, tekur undir þetta og segist verða var við að frekar margir taki fjölnota poka með sér út í búð. „Það kemst um það bil tvöfalt meira í fjölnota pokana heldur en plastpokana. Þeir eru líka betur byggðir svo þeir slitna síður,“ segir Hjörtur. Fjölnota pokar séu því fljótir að borga sig upp og nokkuð ljóst að það sé mun hagstæðara að nota fjöl- nota poka heldur en kaupa plastpoka í hverri ferð. Kostir einfaldra breytinga Spara má töluverða fjármuni og leggja sitt af mörkum til umhverfisverndar með því að gera einfaldar breytingar á dag- legu lífi. Til dæmis felur plastpokanotkun í sér gríðarlega sóun, bæði út frá um- hverfislegu sjónarmiði og fjárhagslegu. Samkvæmt bæklingi sem gefinn var út af Landvernd og umhverfisráðuneyti árið 2008 og ber nafnið Skref fyrir skref, telja sérfræðingar að Íslendingar noti um 16 milljónir plastpoka á ári. Það ger- ir um 125 poka á heimili, en gera má ráð fyrir að talan hafi lækkað á liðnum árum með aukinni notkun fjölnota poka. Venjulegur plastpoki hefur langan nið- urbrotstíma í náttúrunni að ógleymdum kostnaðinum við að kaupa plastpoka í hverri innkaupaferð. Fjölnota innkaupapokar eru vafalítið mun hentugri til þess að bera vörur heim úr búðinni heldur en hinir hefð- bundnu plastpokar sem seldir eru við kassann í verslunum. Morgunblaðið/G.Rúnar Fjölnota inn- kaupapokar eða innkaupanet geta vel komið í stað plastpokanna. SPARAÐU MEÐ FJÖLNOTA POKUM Fjölnota pokar ódýrari SÍFELLT FLEIRI VIRÐAST NOTA FJÖLNOTA INNKAUPAPOKA ÞEGAR FARIÐ ER AÐ VERSLA. SLÍKIR POKAR RÚMA MEIRA MAGN EN VENJU- LEGIR PLASTPOKAR, ERU STERKARI OG SLITNA SÍÐUR. AUK ÞESS ER ÓDÝRARA AÐ NOTA FJÖLNOTA POKA EN PLASTPOKA. Guðrún Óla Jónsdóttir goj9@hi.is *Fjármál heimilannaMatur sem endar í ruslinu er ekki góð fjárfesting fyrir heimili sem vilja halda um budduna Ein algengasta leiðin sem fjölskyldur nota til að ná fram sparnaði er að fylgjast með verði matvöru og þannig spara umtalsverðar upphæðir með því að kaupa rétt inn á heimilið. En það er til önnur leið til að hagræða í mat- arinnkaupum. Við skoðum ruslið. Samkvæmt nýlegri breskri rannsókn er talið að allt að 30 prósent matvöru fari í ruslið á hverju heimili og því gætu verið umtals- verðar upphæðir til að spara í ruslinu. Það er ekki nægjanlegt að horfa á verðmiðann ef þú ætlar að spara því ef matvöru er síendurtekið hent áður en hennar er neytt eða áður en hún klárast þá þarf að endurskoða hvað verið er að kaupa. Fyrsta skrefið er að spyrja sig í hvert sinn sem matur endar í ruslinu af hverju við erum að henda honum. Al- gengustu svörin við þeirri spurningu eru að við borðum ekki þann mat sem við kaupum, hendum afgöngum eða við kaupum of mikið í einu. Einnig að við verslum óund- irbúið af handahófi og við kaupum mat sem endist ekki þann tíma sem hann þarf að endast. Einfaldar leiðir til að snúa vörn í sókn eru að útbúa matseðil fyrir vikuna og kaupa inn eftir honum. Gera magninnkaup og nýta frystinn til að geyma brauð, mjólk, kjöt og fisk sem síðan er affryst daginn fyrir neyslu. Áætla líftíma á mat og ekki kaupa of mikið af ferskum vörum eins og ávöxtum því þeir eiga að klárast á örfáum dögum. Miðaðu magn við dag- setningar svo vörurnar klárist áður en þær renna út. Frystu afganga því þeir gætu nýst sem skyndibiti beint í ör- bylgjuofninn eða sem nesti í vinnu eða skóla. Ef þú skráir niður það sem hent er gætir þú séð hvað þú kaupir of mikið af eða geymir of lengi. Nýttu þér það síðan næst þegar þú gerir innkaupalista. Matarinnkaup eru sá þáttur sem hvað auðveldast er að ná góðum sparnaði í og með því að fylgjast með neysluvenjum á þennan hátt gætu sparast töluverðar upphæðir á ári. Höfundur heldur úti vefnum www.skuldlaus.is SPARAÐ MEÐ RUSLI HAUKUR HILMARSSON Aurar & krónur Á netinu má leita uppi vandaðar vefsíður þar sem sparnaðarráð fyr- ir heimilið er að finna. Þá eru þar líka uppskriftir að ódýrum heim- ilismat sem gefa hugmyndir um hvernig má nýta afganga og það sem til er í ísskápnum í að gera dýrindisrétti. Ein slík íslensk er Fa- cebook-síðan Ódýrar mat- aruppskriftir og sparnaðarráð og þeir sem langar að æfa dönsk- una ættu að skoða síðuna nojsom - fra holdning til handling sem einnig fyrirfinnst á Facebook og inniheldur frábær sparnaðarráð. Sniðugt er að nota alla afganga sem finnast í ísskápnum – skella þeim í eldfast mót; hræra egg og smá mjólk saman og baka eggjaköku í ofninum. SPARNAÐARRÁÐ GEFINS Á NETINU Facebook-sparnaður Íslenskar, danskar og breskar sparn- aðarsíður er að finna á Facebook. AFP Plastpokar sem seldir eru við afgreiðslukassa í versl- unum kosta jafnan 20 krón- ur stykkið. Ef farið er í stóra innkaupaferð má gera ráð fyrir að þurfa nokkra poka. Sé miðað við tölur sem teknar voru saman 2008 um að hvert heimili noti að meðaltali 125 plastpoka á ári er kostnaðurinn við pokakaupin 2.500 krónur árlega. Fyrir fjölskyldu sem gerir stór- innkaup tvisvar í viku og kaupir til þess fimm poka í senn fer kostnaðurinn upp í 10.400 krón- ur árlega. Verð á fjöl- nota pokum er mismunandi, allt eftir gæð- um, þykkt og vörumerki. Í flestum mat- vöruverslunum má fá fjölnota poka. Í Bónus kostar slíkur poki 179 krónur, í Krón- unni kostar pokinn 198 krónur og í Víði má fá fjöl- nota poka á 250 krónur. Margir verða uppiskroppa með poka til að setja í rusla- fötuna þegar skipt er yfir í fjölnota poka. Það má leysa með því að kaupa poka á rúllum. Rúlla með 25 gráum ruslapokum í sömu stærð og innkaupapokar kostar 379 krónur (í Krónunni) eða um 15 krónur stykkið. Tíu pokar á viku kosta 10.400 á ári
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.