Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2013, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2013 Sinfóníuhljómsveit Íslands mun halda til Washington í Bandaríkjunum í byrjun mars og leika á norrænu menningarhátíðinni Nor- dic Cool, sem haldin er í Kennedy Center og stendur í tæpan mánuð. Ilan Volkov stjórnar hljómleikum sveitarinnar, sem verða 4. mars, og einleikari verður bandaríski píanóleik- arinn Garrick Ohlsson. Af fjórum verkum sem flutt verða eru tvö íslensk, nýtt verk eft- ir Hlyn Aðils Vilmarsson og „Aeriality“ eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Íslenska dans- flokknum hefur einnig verið boðið að koma fram á Nordic Cool, 27. febrúar. Flokkurinn sýnir „Großstadtsafari“ eftir Jo Strömgren, „Svaninn“ eftir Láru Stefánsdóttur og „Til“ eftir Frank Fannar Pedersen. ÍSLENSK LIST Í WASHINGTON VESTUR UM HAF Sinfóníuhljómsveit Íslands á sviði Kennedy Center í Washington fyrir þrettán árum. Morgunblaðið/Einar Falur Sena úr leikritinu Ráðabruggið, sem er fellt inn í leikdagskrá Snúðs og Snældu í Iðnó á laugardag. Leikhópurinn Snúður og Snælda frumflytur leikdagskrána „Ráðabruggið og Bland í poka“ í Iðnó á laugardag klukkan 16. Höfundar eru leikhópurinn, Sella Páls og Bjarni Ingvarsson. Leikurinn gerist á vistheimili aldraðra. Í til- efni 50 ára afmælis þess hefur hópur vist- manna tekið að sér að æfa upp skemmti- dagskrá sem inniheldur leikritið „Ráðabruggið“, sem er um aldraða konu sem gabbar son sinn til sín, auk nokkurra gam- anþátta þar sem stiklað er milli söngatriða. Bjarni Ingvarsson leikstýrir verkinu, en hann hefur leikstýrt og leikið í fjölda leiksýn- inga og kvikmyndum. LEIKSÝNING Í IÐNÓ RÁÐABRUGGIÐ Í Hollywood er unnið að undirbúningi kvikmyndar sem byggist á ævin- týraheimi skáldsögu Char- les Dickens um Óliver Twist. Kvikmyndin, sem Sony framleiðir, mun heita „Dogde and Twist“ og fjallar um tvo menn sem standa hvor sínum megin við lög og reglu í Lund- únum Viktoríutímans, og inn í söguna bland- ast tilraun til að stela krúnudjásnunum. Óli- ver Twist er annar mannanna en hinn gamall félagi hans úr vasaþjófagenginu. Skáldsaga Dickens kom út árið 1838 og hefur síðan notið mikilla vinsælda. Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir henni, meðal annars af David Lean (1948), Carol Reed (söngleikurinn Oliver, 1968) og Roman Polanski (2005). Nýja myndin byggist á skáld- sögu eftir Tony Lee með sama nafni. FRAMHALD AF SÖGU DICKENS ÓLIVER ELDIST Charles Dickens Björn Thoroddsen heldur upp á 55 ára afmæli sitt með tón-leikum í Salnum í Kópavogi á laugardag klukkan 16. Á tón-leikunum sýnir hann á sér hliðar sem íslenskir tónlistarunn- endur hafa ekki kynnst fyrr, en Björn kemur einn fram með kassagítarinn og leikur flest annað en djass. Leikur hann ýmis þekkt lög, popp, rokk og blús, jafnvel þungarokk, úr smiðju hljómsveita á borð við Bítlana, Deep Purple, Black Sabbath, Police og Who. Björn segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann horfði á sjón- varpsþátt með uppistandaranum Seinfeld, þar sem já verður nei og leikarar gera allt andstætt því sem þeir hugsa. „Fólk þekkir mig hér einkum fyrir ákveðna tegund tónlistar og því ákvað ég að gera eitt- hvað allt annað á þessum tónleikum og koma einn fram,“ segir Björn. Hann segist reyndar hafa komið fram með svona efnisskrá á tónleikum erlendis en viðurkennir að honum finnist meira mál að gera þetta hér, þótt hann þekki öll þessi lög vel. „Þetta eru mörg mín uppáhaldslög gegnum tíðina. Í gamla daga var Black Sabbath mín uppáhaldshljómsveit; þarna er grunnurinn! Ég leik allt á kassagítarinn, þótt þessi tónlist heyrist venjulega ekki á það hljóðfæri, og ég ætla líka að hafa hátt,“ segir hann og hlær. „Gegnum tíðina hef ég leikið marga gítarstíla en engu að síður er maður oft settur í ákveðið hólf, sérstaklega hér heima, en það er gaman að smeygja sér út úr því.“ Björn er upptekinn maður og að tónleikunum loknum einbeitir hann sér að undirbúningi tveggja gítarhátíða sem hann stýrir erlend- is í sumar, í Winnipeg í Kanada og Bergen í Noregi, auk þess sem tónleikar eru á döfinni í Bandaríkjunum, Kanada og á Norð- urlöndum. Þá er Björn að leggja lokahönd á plötu sem hann gerir með stórsöngvaranum Kristni Sigmundssyni. efi@mbl.is AFMÆLISTÓNLEIKAR BJÖRNS THORODDSEN „Ég ætla líka að hafa hátt“ „Þarna er grunnurinn,“ segir Björn Thoroddsen um lögin sem hann leikur á afmælistónleikunum í Salnum. Djassarinn hélt upp á Black Sabbath. Morgunblaðið/RAX „ÞETTA ERU MÖRG MÍN UPPÁHALDSLÖG GEGNUM TÍÐINA,“ SEGIR GÍTARLEIKARINN BJÖRN THORODDSEN UM EFNISSKRÁ TÓNLEIKA Í SALNUM. HANN LEIKUR LÖG EFTIR BÍTLANA, WHO OG AC/DC Á KASSAGÍTAR. Menning V erkin verða að vera eftir núlifandi listamenn sem eru menntaðir á sínu sviði, komnir með góðan bakgrunn og þeir verða að vinna af miklum metnaði,“ segir Birna Gunnarsdóttir, starfsmaður Landspítalans. Hún gæti verið að tala um lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk stofnunarinnar, sem vissulega þarf einnig að vera vel menntað og vinna af metnaði, listamenn á sínu sviði, en talið snýst hinsvegar um listaverkin sem mæta gestum og starfsfólki svo víða á göng- um og salarkynnum stofnunarinnar. Í bygg- ingum Landspítalans er nú 601 skráð lista- verk eftir fjölda myndlistarmanna og mynda afar athyglisvert listasafn, sem hefur orðið heildstæðara með hverju árinu, enda verkin keypt að ráði hæfustu sérfræðinga en ætíð í samráði við starfsfólk á þeim deildum þar sem verkunum er komið fyrir. „Verkin eru ekki keypt fyrir fé spítalans heldur á ríkið þessi verk, þau eru keypt fyrir framlög úr Listskreytingasjóði ríkisins,“ segir Birna. Samkvæmt lögum skal verja einu prósenti af byggingarkostnaði nýbygginga til list- skreytinga, innandyra sem utan, en mark- miðið er að fegra opinberar byggingar og um- hverfi þeirra með listaverkum. Landspítalinn hefur frá stofnun Listskreytingasjóðs ríkisins árið 1983 sótt um styrki vegna nýfram- kvæmda, jafnt nýrra bygginga sem end- urbóta, en þær eru tíðar innan veggja stofn- unarinnar. Um árabil hefur það verið hlutverk Birnu að sækja um þessa styrki og halda utan um listaverkaeign spítalans. Kjarvalsverk á tombólu Birna segir framlögin úr Listskreytingasjóði hafa gert spítalanum kleift að prýða vaxandi húsakynnin nýjum verkum eftir marga fremstu listamenn þjóðarinnar, sjúklingum, gestum og starfsfólki til gleði og uppörvunar. Vitaskuld hafa spítalarnir sem í dag eru reknir undir hatti Landspítalans, þar á meðal Borgarspítalinn og þeir á Kleppi og Vífils- stöðum, eignast merk listaverk gegnum tíðina. Á skrifstofu sinni sýnir Birna blaðamanni möppu með myndum af öllum verkunum og dregur fram mynd af glæsilegu málverki Ás- gríms Jónssonar frá árinu 1907. „Ásgrímur gaf þetta verk til Vífilsstaða þegar spítalinn þar tók til starfa,“ segir hún. Og þegar spítalinn þar var lagður niður var verkið flutt á lungnadeildina í Fossvogi, þar sem það er „læst“ á vegginn, eins og önnur listaverk spítalans. „Þetta er einn af okkar dýrgripum, og hér er annar sem einnig var á Vífilsstöðum.“ Hún sýnir mynd af hraunlands- lagi eftir Jóhannes Kjarval í kúbískum stíl sem nú er einnig á lungnadeildinni. „Kjarval gaf þessa mynd á tombólu sem berkla- sjúklingar héldu á sínum tíma,“ segir hún. Í skrám Birnu má sjá að í eigu safnsins eru verk eftir fjölda listamanna, allt frá fyrr- nefndum frumherjum að ljósmyndaverki eftir Ingvar Högna Ragnarsson, sem var vígt í móttöku bráðadeildar í síðustu viku. ALLS ER 601 SKRÁÐ MYNDLISTARVERK Á LANDSPÍTALANUM Sjúklingum, gestum og starfsfólki til uppörvunar ÞEGAR FARIÐ ER UM HINAR MÖRGU BYGGINGAR SEM SAMAN MYNDA LANDSPÍTALANN, BLASA VIÐ ÓTAL LISTAVERK, EFTIR MARGA BESTU LISTAMENN ÞJÓÐARINNAR. BIRNA GUNNARSDÓTTIR HELDUR UTAN UM ÞETTA SAFN. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Birna við verk Harðar Ágústssonar, Straumamót, frá 1975, nærri aðalinngangi Landspítalans. Verk- ið var keypt eftir sameiningu Landspítala og Borgarspítala árið 2000 og má lesa það sem táknmynd sameiningar stofnananna. „Ég held afskaplega mikið upp á verk Harðar,“ segir Birna. Morgunblaðið/Einar Falur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.