Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 10

Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 María Skúladóttir mas74@hi.is Guðrún segir að sem ferða-menn um Laos verði fólkekki vart við að það sétalsvert um ofbeldi gagn- vart konum og börnum í landinu. Landið sé friðsælt og fólk glaðvært. Þegar skoðað er undir yfirborðið á mannlífinu komi hins vegar í ljós að heimilisofbeldi er vel falið vandamál sem bæði íbúar og ríkisstjórn hafa lokað augunum fyrir allt of lengi. Guðrún hóf störf hjá UN Wom- an í Laos í ágúst 2012 og er verkefni hennar að vinna með öðrum fé- lagasamtökum og ríkisstjórn Laos í að breyta lagasetningu og fé- lagslegum stuðningi fyrir konur sem búa við heimilisofbeldi. Hún er fyrsti sérfræðingurinn hjá UN Woman í Laos til að fá starfstitilinn ending violance against women offi- cer. Segir Guðrún að þörfin sé brýn þar sem viðhorfið í landinu um við- urkennt heimilisofbeldi sé rótgróið. Konur, sem búa við ofbeldi frá eiginmönnum sínum, eru sagðar valda fjölskyldum sínum skömm og smán ef þær segja frá ofbeldinu. Einungis eitt athvarf er í höfuðborg Laos, Vientiane, fyrir konur sem eru þolendur heimilisofbeldis. Liður í starfi Guðrúnar er að skipuleggja heimsóknir í grunn- skóla í landinu og fræða unglinga um heimilisofbeldi. Segir Guðrún það hafa komið sér verulega á óvart að unga fólkið í landinu hafi svipaða sýn á ofbeldið og eldra fólkið. Ung- mennin telja að það sé rangt, en það Sársaukinn falinn á bak við glaðværð „Það tengja allir fallega og friðsæla Laos við allt annað en heimilisofbeldi. Við þurfum að vekja athygli á því sem gerist innan veggja heimilisins,“ seg- ir Guðrún Sif Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá UN Woman í Laos. Guðrún vinnur að því að breyta þeim rótgrónu viðhorfum Laosa að ofbeldi gagnvart konum sé einn af fylgifiskum hjónabandsins. Útlönd Guðrúnu Sif líkar vel að ferðast, hér er hún við byggingu SÞ í Laos. Höfundur Paxel123.com, Anna Mar- grét Ólafsdóttir leikskólastjóri, hlaut nýlega verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á netinu. Þykir síð- an skemmtileg og búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi þróun- ar. Vefurinn er ætlaður nemendum á leik- og grunnskólaaldri sem eru að stíga sín fyrstu skref í orð- og hug- takanotkun tengdri móðurmáli og stærðfræði. Markmiðið er að örva stærðfræði- og móðurmálslæsi með skemmtilegum og krefjandi tölvu- leikjum. Stafarugl, mynstur og form er meðal þess efnis sem tölvuleikir- nir snúast um. Á heimasíðunni segir að leikirnir geti einnig hentað vel við sérkennslu, þ.m.t að vinna með börn- um af erlendum uppruna. Síðan er aðgengileg á átta tungumálum og bjóða leikirnir upp á mismunandi erf- iðleikastig. Vefsíðan www.paxel123.com Krefjandi og skemmtilegir leikir Áður fyrr var eðlileg hreyfinghluti af okkar daglega lífi, enkyrrseta einkennir nú- tímann. Við keyrum flestra okkar ferða, helst upp að dyrum; lyftur á milli hæða; hlutir í þægilegri hæð og nálægð; fjarstýringar svo við þurf- um ekki að standa upp úr sófanum; margs konar tæki og tól okkur til hagræðis. Leikir barnanna eru að færast yfir á skjáinn; þar geta þau farið í eltingaleik, bolta, ferðalög og fjársjóðsleit með því að hreyfa að- allega augun og puttana. Þessi þæg- indi skapa ákveðin vanda sem við leysum með því að aka á tiltekna staði til að kaupa okkur líkamlega áreynslu. Markaðurinn hvetur okkur til að „hlaupa og kaupa“, „fá núna, borga seinna“. Í mataræði er vinsælt „skyndi“- þetta og hitt, „fljótvirkt“, „auðmelt“, „einfalt“, helst í duft- formi. Erum við í svona mikilli tíma- þröng? Vinnum við stundum lengur en ella til að fjármagna dótið sem á að gera lífið þægilegra: „Ég hef ekki tíma til að vera með þér, barnið mitt, því ég þarf að vinna fyrir tölvunni svo þú hafir einhverja afþreyingu á meðan ég er í vinnunni.“ Úps! Rousseau tjáði ótta sinn um að mannkynið færi sér að voða með uppfinningum sínum og tækni. Hann taldi að maðurinn ætti að tengjast náttúrunni og lifa í sem fyllstu samræmi við eðli sjálfs sín. Hann þráði einfaldara og eðlilegra líf, þar sem maðurinn væri herra kunnáttu og tækni, en ekki þræll þeirra. Menn hafi upphaflega verið góðir, meðan þeir voru í náttúru- ástandinu, en svo spillst af menning- unni – fremur en öfugt, sem var ríkjandi viðhorf þess tíma. Viljum við afturhvarf til fortíðar, burt með tækni, framfarir og hrað- ann? Tæplega. Í sumum tilvikum höfum við farið til baka; beinir, breiðir og sléttir vegir reyndust sums staðar hættulegir og við gerð- um þá aftur hlykkjótta, þrönga og með hraðahindrunum. En við erum þakklát fyrir að eiga t.d. bráða- móttöku og að þangað liggi „beinn og breiður vegur“ fyrir hraðskreið- an sjúkrabíl. Við kunnum einnig að meta að geta sest upp í stálfugl sem flýgur með okkur til Langtburtistan. Er kannske farsælt að hafa í heiðri gildin fjölbreytni, meðalhóf og jafnvægi? Líf í takt við okkar innra eðli og frumþarfir eins og næringu, hreyfingu og hvíld; samneyti og tengsl við fjölskyldu og vini og að finna sig gildandi þátttakanda í sam- félaginu? Nútíminn er flóknari og valkost- irnir fleiri, tökum við því ekki fagn- andi að eiga um margar leiðir að velja? Það er jú gaman að njóta ævin- týra völundarhússins – í þeirri trú að maður rati á meðalveginn aftur! Eðli (viti) okkar fjær?  Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafarþjón- usta, Skeifunni 11a, Reykjavík, www.heils- ustodin.is. Heilsustöðin Heiðdís Sigurðardóttir sálfræðingur Morgunblaðið/Kristinn Gefum okkur tíma Það er afar áríðandi í erli hversdagsins að gefa sér tíma til að staldra við og spjalla saman. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Tökum á skulda- og greiðsluvanda heimilanna Í þágu heimilanna › Verðtrygging á húsnæðis- og neytendalánum verði ekki almenn regla › Auðveldum afborganir af húsnæðis- lánum með skattaafslætti › Fellum niður skatt þegar greitt er inn á höfuðstól húsnæðislána í stað þess að greiða í séreignarsjóð › Leyfum skuldsettum íbúðareigendum að hefja nýtt líf án gjaldþrots › Afnemum stimpilgjöld Markvissar og raunhæfar aðgerðir í þágu heimilanna sem má koma í framkvæmd án tafar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.