Morgunblaðið - 04.03.2013, Page 11
Ljósmyndir/Eeva Nyyssonen
Norður-Laos Börn verða snemma sjálfbjarga í Laos, hér eru ung börn að róa á bát í grænni á.
sé aðallega rangt ef það á sér stað
opinberlega en ekki innan veggja
heimilisins. Það sé viðurkenndara ef
því sé haldið leyndu. Það var al-
menn skoðun unglinganna að heim-
ilisofbeldið væri bara leiðinlegur
fylgifiskur hjónabandsins sem flest-
ir hafa vanist.
„Þessu þarf að breyta. For-
varnarstarfið okkar gengur að
miklu leyti út á að fræða og ræða
við unglingana. Við viljum hafa
áhrif á viðhorf í mótun,“ segir Guð-
rún.
Efla þarf forvarnirnar
Ríkisstjórnin í Laos er að opna
augun fyrir vandamálinu. Með að-
stoð félagasamtaka safnar ríkis-
stjórnin tölfræðilegum upplýs-
ingum um heimilisofbeldi í landinu.
Nú er verið að skoða umfang vanda-
málsins en við fyrstu sýn virðist
vandamálið útbreitt og algengt.
Móta þarf vinnuhópa sem starfa að
bættri lagaumgjörð og betri stuðn-
ingi fyrir konur. Segir Guðrún að
með samhentu átaki sé hægt að fá
betri mynd af stöðunni og í fram-
haldi efla forvarnir og stöðva of-
beldið.
Íslendingur í Laos
Guðrún hefur mikið dálæti á
ferðalögum og hefur starfað á sviði
þróunarmála um árabil. Hún kom
fyrst til Laos sem ferðamaður árið
2009 og féll þá fyrir landi og þjóð.
Það var svo fyrir tilviljun að í starfi
sínu fyrir Sameinuðu þjóðirnar
hefði henni boðist starf í Laos.
„Ég starfaði við þróunarmál í
Líberíu í tvö ár og síðar í Suður-
Súdan, þegar mér var boðið starfið
hjá UN Woman í Laos. Ég var til í
að komast í friðsælla umhverfi til
tilbreytingar. Á þeim slóðum sem
ég hafði verið á, var nokkuð um
átök og ófrið. Laos er einstaklega
rólegt og fallegt land,“ segir Guð-
rún.
Guðrún telur að um þrír Ís-
lendingar búi í Laos. Hún býr í höf-
uðborginni og segir að vel fari um
sig. Það sé ekki mikið um að vera í
borginni en hún reyni að finna sér
skemmtilega líkamsrækt, fari út að
borða og hitti reglulega vini og
kunningja. „Það er mikið um út-
lendinga hér í Laos og við reynum
að hittast oft. Við njótum útivistar,
borðum saman og reynum að hafa
gaman þó það sé tiltölulega lítið um
að vera,“ segir Guðrún. Starfs-
samningur hennar rennur út í
ágúst 2013 og er óvíst hvað tekur
við hjá henni. „Ég hef ekki búið á
Íslandi í um níu ár. Ætli það sé ekki
að koma tími á mig að flytja heim?“
Götulíf Fjölskyldufólk fer oft í göngur við árbakka Mekong í Vientiane.
Lan Xang Avenue Aðalbreiðgatan í Vientiane, höfuðborg Laos.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013
af öllum bíllyklum
í mars*
*T
ilb
oð
ið
gi
ld
ir
ím
ar
s
20
13
af
bí
lly
kl
um
og
vi
nn
u
eð
a
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
.25 Afsláttur
Tilboð á bíllyklum í mars
a n
bi
rg
ði
r
en
da
st
.%
Vantar nokkuð
aukalykil?
Líttu við
Smíðum og forritum flestar gerðir
bíllykla, eitt landsins mesta úrval.