Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 ✝ GuðmundurSigurvin Hannibalsson fædd- ist í Þernuvík í Ög- urhreppi 17. febr- úar 1937. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja mánudag- inn 25. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Hannibal Guðmundsson, f. 24.4. 1907, d. 9.12. 1984, og Þorsteina Jóns- dóttir, f. 16.11. 1914, d. 27.11. 2004. Systkini Sigurvins eru Guðríður, f. 3.3. 1938, d. 9.10. 2009, Jón, f. 17.6. 1939, d. 23.9. 1998, Guðmundína Lilja, f. 28.6. 1940, Haukur, f. 18.9. 1941, Hulda, f. 4.2. 1943, Ásdís, f. 20.3. 1944, Bragi, f. 9.12. 1945, Sigríð- ur Halldóra, f. 17.12. 1947, Sig- rún, f. 21.4. 1950, Margrét f. 25.1. 1952, Fjóla, f. 22.4. 1953, Jóhann, f. 27.7. 1954, Rebekka, f. 13.2. esdóttir og Jónas Aðalsteinsson er bjuggu á Brúarlandi í Þist- ilfirði. Börn Arnþrúðar frá fyrra hjónabandi eru Kristjana Sól- veig, f. 1965, Jónas Aðalsteinn, f. 1967, og Sylvía Kristín, f. 1981. Sigurvin ólst upp á Hanhóli í Bolungarvík frá sjö ára aldri. Hann stundaði nám við Héraðs- skólann í Reykjanesi við Djúp í tvo vetur. Var nemandi við Iðn- skólann í Reykjavík, á samningi hjá Stálsmiðjunni og lauk próf- um í plötu- og ketilsmíði. Tók vél- stjórapróf frá Vélskólanum í Reykjavík 1964. Sigurvin var vél- stjóri á bátum 1964-67, stundaði verslunarstörf í Reykjavík 1967- 68, stundaði viðgerðir á þunga- vinnuvélum á verkstæði Reykja- víkurborgar 1968-70, starfaði í skipasmíðastöð Kockums í Malmö 1969, var vélstjóri á Gretti, dýpkunarskipinu, síðar einn af stofnendum heildversl- unarinnar Gos hf., Reykhóla- skips hf. og Dýpkunarfélags Siglufjarðar hf. Hann var vél- stjóri á Sunnuberginu og Lundey frá Vopnafirði og bjó þar síðustu árin. Útför Sigurvins fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 4. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 14. 1956, og Þorsteinn, f. 10.9. 1961. Sigurvin kvænt- ist 17.9. 1960 Sig- rúnu Jónasdóttur, f. 25.7. 1942. For- eldrar hennar voru Fanney Jónasdóttir og Jónas Jónasson er bjuggu í Reykja- vík. Þau slitu sam- vistum. Sigurvin og Sigrún eignuðust fjögur börn: 1) Svala, f. 31.12. 1960, maki Jón Hjálmar Jónsson. Þau eiga 3 börn. 2) Hannibal, f. 15.2. 1965. Hann eignaðist þrjú börn með Angélica Camtú Dá- vila. 3) Arnór, f. 6.6. 1967, maki Aina Iren Årsheim. Hann á þrjú börn og tvö barnabörn. 4) Harpa, f. 20.4. 1972, maki Pálmar Hall- dórsson. Þau eiga tvö börn. Sigurvin kvæntist 15.8. 1998 Arnþrúði Margréti Jónasdóttur, f. 27.1. 1948. Foreldrar hennar voru Anna Guðrún Jóhann- Elsku Sivi minn, nokkur fátæk- leg orð til þín. Ég vil þakka fyrir öll skemmtilegu árin okkar sam- an, öll ferðalögin innanlands sem utan og allt sem við vorum búin að bralla saman. Þetta var ævintýri líkast, þú varst algjör demantur. Þetta skrifar Dúan þín eins og þú kallaðir mig alltaf. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Ég hlakka til að hitta þig aftur, guð geymi þig. Ástarkveðja. Þín eiginkona, Arnþrúður Margrét. Elskulegur pabbi minn er nú fallinn frá. Ég á margar góðar minningar um hann. Hann var góður faðir og mikið fyrir börn. Ég man eftir því þegar við löbb- uðum á dagheimilið, þegar ég var lítil. Mér fannst hann svo stór og hönd mín hvarf í lófa hans, þegar hann leiddi mig og skrefin hans voru svo stór að ég þurfti að hlaupa alla leiðina. Við gerðum margt skemmti- legt saman, ég fékk stundum að fara í stuttar ferðir með pabba á skipunum sem hann vann á. Við fórum upp á Akranes og til Bol- ungarvíkur. Pabbi var mikið fyrir ferðalög og útivist, hann kenndi okkur systkinunum á skíði og skauta. Hann kenndi okkur líka að tefla og að leysa ýmsar þrautir. Börnin mín voru mjög hrifin af afa sínum, sérstaklega þegar þau voru lítil og hann átti enn heima í Blesugróf, það var gaman að koma í stóra garðinn hjá afa og ömmu og leika. Pabbi fór líka oft með barna- börnunum í heita pottinn sem hann smíðaði sjálfur og steypti. Pabbi var líka snjall að setja saman vísur við hin ýmsu tæki- færi. Ein af mörgum sem ég held upp á er vísa sem pabbi gerði, þegar ég var 18 ára, þá bjó ég í Blesugróf en foreldrar mínir og systkini bjuggu á Reykhólum. Ég var í próflestri og bækurnar voru á eldhúsborðinu, ég var eitthvað svo löt og leið að lesa og var alveg að gefast upp og skrifaði smá ljóð á miða eftir Stein Steinarr og límdi á vegginn og fór svo bara út. Á meðan ég var úti kom pabbi og sá bækurnar á borðinu, hann sá líka miðann á veggnum og skildi strax hvað ég var að hugsa. En vísan sem ég skrifaði var þessi: Að sigra heiminn er eins og að spila á spil. með spekingslegum svip og taka í nefið, (Og allt með glöðu geði er gjarnan sett að veði.) Og þó þú tapir, það gerir ekkert til því það var nefnilega vitlaust gefið. (Steinn Steinarr) Þegar ég kom heim aftur vissi ég ekki að pabbi hefði verið þarna fyrr en ég allt í einu sá að það var búið að líma annan miða á vegginn og ný vísa komin og þar stóð: Tækifærin gríptu greitt gamlir ýtar kveða annars færðu aldrei neitt annað en að streða. Ég hélt þá bara áfram að læra fyrir prófið. Elsku pabbi minn, ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Ég vil þakka Dúu, konunni þinni, fyrir hve hún hugsaði vel um þig í veikindum þínum. Svala Sigurvinsdóttir. Við systkinin minnumst Sigur- vins með sorg í hjarta og þakklæti er við hugsum til allra samveru- stundanna sem við áttum gegnum árin. Það eru dýrmætar minning- ar sem við munum aldrei gleyma. Sifi eins og við yfirleitt kölluð- um hann var sjómaður i húð og hár og alltaf þegar leiðir lágu saman var spjallað um báta og aflabrögð. Sifi var mjög vel lesinn og vissi allt milli himins og jarðar. Efst í huga okkar systkinanna er þakklæti, hvað þú reyndist mömmu vel. Það var okkur dýr- mætt að sjá hvað ykkur leið vel saman. Þið ferðuðust mikið sam- an innanlands og utan en best fannst þér þó alltaf að vera á þín- um æskuslóðum fyrir vestan og varst trúr þínum heimahögum. Fyrir nokkrum mánuðum dró svo ský fyrir sólu er Sifi veiktist af illvígum sjúkdómi, í veikindum sínum sigldi hann fleyi sínu af æðruleysi í gegnum öldudalina eins og sannur íslenskur sjómað- ur. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Kristjana, Jónas og fjölskyldur. Elsku Sivi pabbi, ég ætla að þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Ég var svolítið afbrýði- söm þegar þú fluttir til okkar mömmu, ég var búin að eiga mömmu mína svo lengi ein. En þú varst alltaf svo blíður og góður við mig að ég fór smá saman að elska þig jafn mikið og mömmu mína. Ég mun sakna þín mikið, hafðu þakkir fyrir allt og allt. Þín stjúpdóttir, Sylvía Kristín. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku afi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Ávallt saknað, aldrei gleymdur. Þínir afastrákar, Arnar Már, Sævar Guðmundur, Gunnar Jón, Hrannar Rafn, Ólafur Freyr og Almar Örn. Nú er hann Sigurvin, vinur minn og mágur, laus undan þeim þrautum sem fylgdu krabbamein- inu sem hann greindist með í ágúst síðastliðnum. Ég hitti þenn- an góða mann fyrst þegar Dúa systir mín kynnti hann fyrir stór- fjölskyldunni heima á Brúarlandi. Hún hafði þá verið ekkja í 12 ár og nú fundið rétta manninn. Síðan hefur hann verið virkur þátttak- andi í gleði okkar og daglegu amstri. Sigurvin passaði vel í fjöl- skylduna, sérstaklega fyrir kon- urnar. Hann var svo rólegur, gat lesið í blöðunum þó að mikil læti væru stundum í kringum okkur frænkurnar. Hann hafði mörg áhugamál og mikið voru þau hjónakornin búin að ferðast, bæði innanlands og úti um allan heim. Á jólum voru þau oft á Kanaríeyj- um enda mjög samrýmd. Eyvind- ar- og Höllu-ferðirnar, sem þau kölluðu svo, voru innanlandsferðir þeirra á gamla rauða jeppanum sem þau gjarnan sváfu í eða höfðu fellihýsið með í för. Eftirminnileg Guðmundur Sigur- vin Hannibalsson ✝ Kristín Þórð-ardóttir fædd- ist á Eyrarbakka 29. maí 1943. Hún andaðist á heimili sínu 24. febrúar 2013. Foreldrar hennar voru Guð- rún Árnadóttir frá Akri á Eyrarbakka, fædd 4. október 1920, látin 4. des- ember 1979, og Þórður Kristjánsson, fæddur á Bíldudal 12. október 1919, and- aðist 17. júní 1995. Systkini Kristínar sammæðra eru Magn- ús Kristjánsson, f. 1955, og Árni Kristjánsson, f. 1962. Systkini Kristínar samfeðra eru Gunnar Ellert Þórðarson, f. 1943, Ros- mary Kristín Sigurðardóttir, f. 1945, Sæmundur Hafsteinn Þórðarson, f. 1948, Kristján Sig- urður Þórðarson, f. 1953, Gunn- ar Þórðarson, f. 1954, og Árni Þór Þórðarson, f. 1963. börn eru Ísfold Sara Viðars- dóttir, f. 30. janúar 2002, Ófeigur Nói Viðarsson, f. 3. mars 2004, og Ísidór Úlfur Örn Viðarsson, f. 11. september 2011. Kristín og Sævar bjuggu í Reykjavík sín fyrstu búskaparár þar til 1982 er þau fluttust í Mývatnssveit. Þar bjuggu þau í Helluhrauni 11 til ársins 1995 er þau fluttust aftur til Reykjavíkur á Lágholtsveg 6 og hafa búið þar síðan. Kristín lauk gagnfræðaprófi í Kópavogi og vann síðan við hin ýmsu störf meðal annars á saumastofu, sem skipsþerna á Gullfossi og á pósthúsinu í Póst- hússtræti Reykjavík í um 10 ár. Kristín var heimavinnandi hús- móðir fyrstu búskaparár þeirra þar sem Sævar eiginmaður hennar stundaði sjómennsku en eftir að þau fluttust í Mývatns- sveit ráku þau þar saman versl- un þar sem Kristín vann við af- greiðslu og rekstur í 12 ár. Eftir að þau fluttust aftur til Reykja- víkur vann Kristín við hin ýmsu störf á Landspítalanum, aðallega á skurðstofudeild. Kristín verður jarðsungin í Fossvogskirkju í dag, 4. mars 2013, og hefst athöfnin klukkan 15. Kristín ólst upp í Akri á Eyrarbakka hjá Guðrúnu móður sinni og afa sínum Árna Helgasyni til tíu ára aldurs. Krist- ín fluttist til Reykja- víkur 1953 ásamt móður sinni og stjúpa sínum Krist- jáni G. Magnússyni og bjó á heimili þeirra þar til hún hóf sambúð og hjónaband með Jóhannesi Elíassyni. Þau slitu samvistum 1968. Kristín giftist Sævari Erni Kristjánssyni 9. júní 1973. Saman eignuðust þau tvö börn 1) Krist- ján Örn Sævarsson, f. 7. júlí 1974. Hans börn eru Sævar Örn Krist- jánsson, f. 16. maí 1995, og Dag- ur Ari Kristjánsson, f. 24. ágúst 2000. 2) Viðar Örn Sævarsson, f. 15. september 1977. Sambýlis- kona hans er Sara Kristjáns- dóttir, f. 13. maí 1981. Þeirra Elsku mamma mín, nú ertu far- in burtu frá okkur. Það er svo ör- stutt síðan ég talaði við þig og strauk þér um kinnina og kyssti þig. Þú varst orðin lífshættulega veik en tókst því með þvílíkri ró og sátt að ég gat ekki ímyndað mér að þetta væri raunveruleiki. Rétt eftir miðjan janúar hringdi pabbi í mig og sagði mér að þið hefðuð fengið alvarlegar fréttir. Þú greindist með krabbamein. Þessi sjúkdómur sem er alls staðar og líklegast flestar fjölskyldur fá að kynnast í einhverri mynd. Margir verða heilir að nýju, sumir verða alvarlega veikir í langan tíma. Þú varðst mikið veik en í stuttan tíma. Eins og alltaf hugsaðir þú um alla hina áður en þú hugsaðir um þig. Hamingja annarra gerði þig alltaf hamingjusama. Ef þú vissir að fólkinu þínu leið vel þá leið þér vel. Þegar við vorum litlir strákar í Mývatnssveitinni þá varstu mikið heimavinnandi. Þú passaðir að við værum hreinir, saddir og ef við vorum leiðir eða meiddum okkur þá huggaðir þú okkur. Ef einhver var að rífast þá stilltirðu til friðar því þú þoldir ekki ósætti. Allt sem þú lagðir hönd á gerðir þú hundr- að og fimmtíu prósent samvisku- samlega. Þú kenndir mér t.d. að það að vera alvöru húsmóðir er ekki bara að vera heima hjá sér á meðan tíminn líður hjá, þú varst að störfum allan daginn bæði vegna þess að þú varst skyldu- rækin en líklega mest af því að þú þoldir ekki að sitja auðum hönd- um. Í vinnu varstu alveg eins. Öll störf sem þú komst að vannst þú ekki bara fullkomlega heldur líka af heilindum því ef það var eitt- hvað sem þú hafðir í hávegum þá var það heiðarleiki og ekkert særði þig eins mikið og óheiðar- leiki. Þú varst heldur ekki kona orðanna innantómra heldur varstu kona gjörðanna og lést verkin tala allt þitt líf. Þú valdir vini þína vel og þeir vita allir hverjir þeir eru því þeim sýndirðu líka þá sömu ást, traust og virð- ingu sem þú sýndir öllum sem þú elskaðir. Ef eitthvað bjátaði á eða það var eitthvað sem þurfti að segja þá spurðirðu alltaf hvað það væri. Þú sást alltaf það sem orðin sögðu ekki. Ég elskaði líka að spyrja þig um æskuna í Akri. Sögurnar sem þú sagðir mér af Árna afa þinum og Guðrúnu mömmu þinni, Finnu frænku og Dæju, Leifu og litlu frænkum þínum. Þú hefur alltaf verið kletturinn okkar og passað okkur strákana þína og seinna barnabörnin þín sem ég veit að þú elskaðir svo mikið. Ég veit að þú áttir góða stund með henni frænku þinni daginn áður en þú fórst. Kærleikur þinn til fólksins þíns var svo stór að enginn mun nokkurn tíma geta fyllt upp í það skarð sem nú myndast þegar þú ert fallin frá, elsku mamma mín. Ég á alltaf eftir að hugsa til þín, elsku mamma mín, og segja börn- unum mínum frá því hvernig þú varst, hvað þú sagðir en líklega mun ég aldrei nokkurn tíma geta sagt þeim hvað þú hugsaðir því þú varst kona gjörðanna en ekki orðanna og oft sögðu augun það sem munnurinn þagði yfir. Elsku mamma mín, nú kveð ég þig að sinni en mun halda minn- ingu þinni lifandi svo lengi sem ég lifi, ég elska þig og við öll. Viðar Örn Sævarsson. Með depurð í huga kveð ég í dag mína kæru mágkonu en jafn- framt með þakklæti fyrir langa samveru og þá vináttu sem aldrei bar skugga á. Stína kom í fjöl- skyldu okkar fyrir nær fjörutíu ár- um þegar hún giftist Sævari bróð- ur mínum og ávallt var hjónaband þeirra og sambúð líkust stöðugu góðviðri og miklu sólfari og blíðu. Fyrstu árin bjuggu þau í Reykjavík þar sem Sævar stund- aði sjóinn en Stína sinnti heimilinu og sonum þeirra tveimur, en eftir að Sævar hætti sjómennsku fluttu þau að Mývatni og bjuggu þar í tólf ár. Þar vann Sævar við virkj- anir á svæðinu, en Stína rak ferða- mannamarkað, sem nýlunda var á þeim tíma. Stína var í mörgu sér- stök kona, hún var einstök hús- móðir svo að orð fór af, handa- vinnukona og smekkvís og í öllu grandvör og vinnusöm með af- brigðum. Lífið á Mývatni var þeim gjöf- ult og gott og þar eignuðust þau marga góða og trygga vini, sem enn voru þeim innanhandar þegar Stína undir lokin háði sína snörpu en skammvinna baráttu við illvíg- an sjúkdóm. Hin seinni árin fluttu þau hjón- in til Reykjavíkur, þegar dreng- irnir voru farnir að heiman, en Sævar að vinna við Sogsvirkjun og Stína á Landspítalanum við hin ýmsu störf. Um miðjan janúar greindist hún með illkynja sjúkdóm, sem dró hana til bana á aðeins fimm vikum. Af einstakri umhyggju og alúð önnuðust hana þeir feðgarnir þrír, þar til hún sofnaði svefninum langa. Bergdís Kristjánsdóttir. Af hverju, hvers vegna, hvern- ig, því og ef eru spurningar sem hafa herjað stíft á hugann síðustu daga, eða frá því í byrjun janúar þegar elskuleg vinkona okkar Kristín Þórðardóttir veiktist, og við kveðjum hér í dag. Stína var heilsteypt, trú og trygg persóna. Við kynntumst fyrir rúmum 30 ár- um þegar við bjuggum öll í Mý- vatnssveit og með okkur tókst ein- staklega góð og sterk væntumþykja og vinátta, sem aldrei hefur borið skugga á. Það væri skemmtilegt aflestrar ef allt sem við höfum brallað sam- an yrði fært til bókar, samveru- stundir, veislur, bústaðaferðir og sérstaklega öll okkar skemmti- legu ferðalög jafnt innanlands sem utan, alltaf jafn gaman. Alltaf öll til staðar jafnt í sorg sem gleði. Þessar dýrmætu minningar er gott að eiga og ber að þakka. Við biðjum algóðan föður að taka vel á móti henni og biðjum hann jafn- framt um að styrkja og blessa þau öll sem sárt syrgja í dag. Elsku Sævari og fjölskyldunni allri vottum við okkar dýpstu sam- úð. Ykkar vinir, Jónína, Guðrún, Arnaldur og Þorsteinn. Elskulegur ferðafélagi og vin- kona til margra áratuga hefur nú kvatt og kom það okkur virkilega á óvart, hversu brátt það bar að; hún Stína, sem alltaf var svo lífs- glöð og uppörvandi, með sinn smitandi hlátur. Á kveðjustund sem þessari er söknuður yfir því að missa þig út úr vinahópnum, margs er að minnast og þakka, en minninguna um þig munum við geyma. Við kynntumst Stínu í gegnum eiginmann hennar Sævar, sem var bekkjarbróðir minn í Vélskóla Ís- lands. Við minnumst Stínu sem einstaklega ljúfrar konu sem var líka heppin að fá þann lífsföru- naut, sem henni bar. Þessi ár- gangur bekkjarbræðra kom því á að fara í ævintýraferðir á 5 ára fresti ásamt eiginkonum eitthvað út í heim og í þessum ferðum náð- um við að kynnast ennþá betur og oftar en ekki var Stína til í að slá á strengi glens og gamans. Sé hana Kristín Þórðardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR LJÓSMÓÐIR frá Bolungarvík, Digranesheiði 9, lést á Hrafnistu, Boðaþingi síðastliðinn miðvikudag, 27. febrúar. Rafn H. Steindórsson, Sigrún Guðjónsdóttir, Jón Ö. Steindórsson, Ágústa M. Jónsdóttir, Magni G. Steindórsson, Marie-Ange Steindórsson, barnabörn, barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.