Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 23

Morgunblaðið - 04.03.2013, Síða 23
1989-94 og var síðan verkstjóri á Dalvík um hríð. Þau hjónin voru síðan aftur búsett á Egilsstöðum á árunum 1996-99 þar sem Sigurbjörg var kirkjuvörður og auk þess auglýsingastjóri við RÚV Austurland. Eftir það fluttu þau til Reykjavíkur þar sem Sigurbjörg lauk stúdentsprófi og var auk þess kirkjuvörður við Hallgrímskirkju. Sigurbjörg og eiginmaður hennar festu kaup á jörðinni Eyvindará II á Fljótsdalshéraði árið 2007, fluttu þá enn austur, hafa verið þar búsett síð- an og starfrækt þar gistiheimili. Gaman þegar gengur vel Sigurbjörg og Ófeigur, maður hennar, láta ekki deigan síga því þau eru nú að láta reisa 16 herbergja hót- elálmu á staðnum og verða því í sum- ar með 28 gistiherbergi með baði, sjö Úr frændgarði Sigurbjargar Ingu Flosadóttur Sigurbjörg Inga Flosadóttir Kristján Eldjárn sjóm. í Nýjabæ, fyrsta íbúðarhúsinu á Dalvík Þórey Friðbjörnsdóttir húsfr. í Nýjabæ Jóna Kristjánsdóttir hússtjórnarkennari og fyrrv. skrifstofum. Hólmfríður Sveinsdóttir húsfr. í Efstakoti Friðbjörn Gunnarsson útvegsb. í Efstakoti á Upsaströnd Jón Jónsson b. á Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði Sigurbjörg Jónsdóttir húsfr. í Stöð Sigurbjörn Guttormsson b. í Stöð í Stöðvarfirði Flosi Sigurbjörnsson kennari í Rvík Þórhildur Sigurðardóttir húsfr. í Stöð Guðlaug Guttormsdóttir húsfr. á Löndum Einar Þorsteinsson prófastur á Eiðum Guttormur Vigfússon pr. í Stöð Páll Vigfússon ritstj. á Hallormsstað Sigrún Pálsdóttir Blöndal forstöðukona Húsmæðraskólans á Hallormsstað Guttormur Pálsson skógarvörður á Hallormsstað Hjörleifur Guttormsson fyrrv. alþm. og ráðherra Sigurður Blöndal fyrrv. skógræktarstj. Júlíus Kristjánsson forstj. á Dalvík Kristján Þór Júlíusson alþm. Rósa Þorsteinsdóttir húsfr. á Dalvík Kristján Þorsteinsson b. á Þverbrekku í Öxnadal Jón K. Kristjánss. kennari í Skagafirði Björns Jónsson alþm., ráðherra og forseti ASÍ Jónína Jónsdóttir húsfr. á Karlsá Sigrún Júlíusdóttir húsfr. á Dalvík Anna Björg Björnsdóttir skrifstofum. á Akureyri Jón Hjaltason sagnfræðingur á Akureyri Jón Sigurðsson frumbýlingur og póststj. á Dalvík Sigurður Draupnisfor- maður Margrét Sigurðard. húsfr. í Garði á Akureyri Sigursteinn Magnússon forstjóri SÍS í Edinborg Magnús Magnússon dagskrárgerðarm. hjá BBC, faðir Sally- jar, dagskrárgerðar- manns hjá BBC smáhýsi og fjögur herbergi án baðs: „Reksturinn hefur gengið mjög vel hjá okkur. Þegar vel gengur hef- ur maður auðvitað áhuga á því sem maður er að gera. En kannski virkar þetta ekki síður í hina áttina: Að það gangi vel vegna þess að maður hafi áhuga á því sem maður er að gera. Ég sé meira um bókanir og verk- stjórn á staðnum en við erum með 12 manns í vinnu á sumrin, en eigin- maðurinn sér um viðhald og umsjón með fasteigninni. Þetta á vel við mig því ég hef gam- an af að hitta fólk og vera innan um aðra. Síðan hef ég alltaf haft gaman af kórsöng og hef sungið í ýmsum kórum um ævina.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigurbjargar er Ófeigur Pálsson, f. 8.8. 1950, búfræð- ingur og húsasmiður. Hann er sonur Páls Sigurbjörnssonar frá Rauðholti, búnaðarráðunautar, og Ingunnar Gunnarsdóttur frá Dölum í Hjalta- staðaþinghá, ljósmóður, en þau eru bæði látin. Sonur Sigurbjargar frá því áður er Aðalsteinn Hjartarson, f. 3.6. 1971, framkvæmdastjóri Iceland Pro Tra- vel í Sviss og alþjóðlegur dómari hjá Körfuboltasambandinu í Sviss, bú- settur í Sviss og eru dætur hans og Söndru Schwager Alda Lísa og Selma Inga en unnusta hans er Helga Pétursdóttir flugfreyja og er sonur hennar Ísak Snorri. Börn Sigurbjargar og Ófeigs eru Guðný Inga Ófeigsdóttir, f. 23.12. 1976, lífeindafræðingur, búsett í Reykjavík, en maður hennar er Sæv- ar Lárusson verkfræðingur og eru börn þeirra Embla Dögg, Baldur Páll og Óðinn Bragi; Flosi Jón Ófeigsson, f. 1.6. 1984, leikari, bú- settur í Sviss. Sonur Ófeigs er Benedikt Gunnar Ófeigsson, f. 23.1. 1975, í dokt- orsnámi í jarðeðlisfræði, en kona hans er Þórunn Ósk Þorgeirsdóttir, dr. í lyfjafræði, og eru börn þeirra Hlynur Þorri og Helga Þórdís. Albróðir Sigurbjargar er Þórir Kristján Flosason, f. 12.2. 1958, starfsmaður hjá Póstinum, búsettur í Reykjavík. Hálfbróðir Sigurbjargar, sam- feðra, er Hjálmur Steinar Flosason, f. 23.3. 1948, kennari við FB. Foreldrar Sigurbjargar: Flosi Sig- urbjörnsson, f. 13.11. 1921, d. 15.5. 1986, kennari við Vogaskóla og síðar við MS, og Jóna Kristjánsdóttir, f. 17.9. 1926, hússtjórnarkennari og fyrrv. skrifstofumaður. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 Ásgrímur Jónsson listmálarifæddist að Rútsstaðahjá-leigu í Flóa 4.3. 1876 og ólst þar upp. Hann greindi frá því í við- tali við Morgunblaðið, árið 1942, að ein fyrsta endurminning hans hefði snúist um það að hann sat í túninu heima hjá sér og var að bera saman bláa litinn á Eyjafjallajökli við blátt letur á bréfi sem hann hélt á. Um fermingaraldur var hann vikapiltur á Eyrarbakka, var síðan í vegavinnu og til sjós á skútum á Suðurlandi en var síðan við ýmis störf á hjá Pétri Thorsteinssyni á Bíldudal. Hann sigldi til Kaupmannahafnar haustið 1897 með skipinu Láru frá Bíldudal og með 200 krónur í vasanum, stað- ráðinn í að verða listmálari. Ásgrímur lærði og vann við hús- gagnamálun hjá Chr. Berg & Sön í Kaupmannahöfn í tvö ár, stundaði jafnframt teikninám fyrir iðnaðar- menn, stundaði nám í málaralist við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn á árunum 1900-1903, fór námsferðir til Berlínar og Dresden og til Ítalíu með styrk frá Alþingi 1908. Ásgrímur var einn virtasti listmál- ari þjóðarinnar og er oft nefndur einn af frumkvöðlunum fjórum, ásamt Þórarni Þorlákssyni, Jóni Stefánssyni og Kjarval. Rétt eins og mörg skáld á hans tíma, leit Ásgrím- ur á list sína sem framlag til þjóð- frelsisbaráttunnar. Hann málaði Ís- land með skírskotun í íslenska náttúru og þjóðsögur, ferðaðist víða um land við erfið skilyrði til að kynn- ast sem best og mála náttúru lands- ins, málaði t.d. fjölda mynda á Höfn í Hornafirði, undir Eyjafjöllum, á Fljótsdalshéraði, Þingvöllum og í nágrenni Húsafells í Borgarfirði. Ásgrímur er fyrsti alvöru vatns- litamálari okkar en margir telja snilli hans njóta sín best á því sviði. Er Ásgrímur lést hafði hann ánafnað íslenska ríkinu hús sitt við Berg- staðastræti í Reykjavík og mikið safn mynda. Tómas Guðmundsson skáld skrif- að ævisögu hans, Myndir og minn- ingar, sem kom út 1956. Auk þess hefur Listasafn Íslands gefið út tvær bækur með listaverkum hans. Ásgrímur lést 5.4. 1958. Merkir Íslendingar Ásgrímur Jónsson 90 ára Jóhanna J. Sigurðardóttir Rafn Gestsson 85 ára Laufey Bjarnadóttir Sigrún Jóhannsdóttir Sigurður Eyjólfsson 80 ára Gunnar Egilsson Sigurlaug Jóhannesdóttir 75 ára Arndís Lára Kristinsdóttir Erla Þorgeirsdóttir Guðjón Finndal Finnbogason Hulda Gerður Johansen Justiniano N. de Jesus 70 ára Arnbjörg Guðbjörnsdóttir Hallgrímur Einarsson Magnús Jónatansson Skafti Ragnarsson Sæbjörn Jónsson Unnur Jónsdóttir 60 ára Anna Jóhanna Stefánsdóttir Árþóra Ágústsdóttir Bjarnveig Ingimarsdóttir Björg Elíasdóttir Einar Jörundur Jóhannsson Einar Matthíasson Eygló Aðalsteinsdóttir Gylfi Njáll Jóhannsson Inga Stefánsdóttir Jón Benedikt Einarsson 50 ára Anna Guðrún Stefánsdóttir Björg Halldórsdóttir Friðgerður Brynja Jónsdóttir Hjalti Þór Kristjánsson Lucia Helena Colaco Jacques Ryszard Jambrzycki Sigrún Hulda Sigmundsdóttir Sigurður Jónas Bergsson Vildís Sigríður Björgvinsdóttir 40 ára Áslaug Pálsdóttir Einar Már Hjartarson Guðlaug Sigurðardóttir Kristján Kristinsson Lilja Sesselja Steindórsdóttir Magnús Rúnar Magnússon Normunds Maido Snorri Magnússon Steinn Jóhannsson Þóra Magnúsdóttir Þórhallur Jónsson 30 ára Bára Hlynsdóttir Gísli Björn Björnsson Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Jón Ingi Jónsson Karítas Björgúlfsdóttir Katarzyna Janczuk Maria Magdalena Wolodko Mariusz Kruszewski Patryk Tomasz Chromik Sædís Harpa Albertsdóttir Tatsiana Vitkouskaya Una Björk Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Emmi hefur verið til sjós í 15 ár og er nú há- seti á Vísi SH. Maki: Eva Lind Breiðfjörð Eyjólfsdóttir, f. 1987, stuðningsfulltrúi við Grunnskólann í Ólafsvík. Sonur: Magnús Guðni Emanúelsson, f. 2007. Foreldrar: Arndís Þórð- ardóttir, f. 1960, d. 2011, garðyrkjufræðingur, og Magnús Guðni Em- anúelsson, f. 1961, sjó- maður í Ólafsvík. Emanúel Þórður Magnússon 40 ára Halldóra ólst upp í Kópavogi, lauk MBA-prófi frá Edinborgarháskóla og er forstöðumaður Verk- efnastofu Landsbankans. Maki: Páll Sigurðsson, f. 1968, rekstrarstjóri. Dætur: Þóra Lóa, f. 1997, og Auður, f. 2002. Foreldrar: Hinrik Hinriks- son, f . 1940, d. 2008, að- albókari hjá Samskipum, og Ólafía Björgvinsdóttir, f. 1945, skrifstofumaður hjá Veðurstofunni. Halldóra G. Hinriksdóttir 30 ára Axel ólst upp í Borgarnesi, lauk prófum í tölvunarfræði við háskól- ann í Skövde í Svíþjóð og er tölvunarfræðingur hjá Tern Systems. Sonur: Birkir Snær Ax- elsson, f. 2005. Systkini: Kjartan Ásþórs- son, f. 1977, og Ragna Ás- þórsdóttir, f. 1989. Foreldrar: Ásþór Ragn- arsson, f. 1952, sálfræð- ingur, og Kolbrún Kjart- ansdóttir, f. 1955, kennari. Axel Þór Ásþórsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.