Morgunblaðið - 26.03.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Birni Bjarnasyni þykir „for-vitnilegt að verða vitni að því
hvernig fréttastofa ríkisútvarpsins
gerir sem minnst úr vandræðagang-
inum á alþingi þegar forseti þingsins
hefur tvisvar sinnum gripið til þess
óvenjulega ráðs að boða ekki þing-
fundi af því að ekki
er unnt að fjalla um
mál vegna óstands á
stjórnarheimilinu.
Menn ættu aðímynda sér
hvernig látið væri á
fréttastofunni ef
ástæðan fyrir því að
ekki þætti fært að
halda fundi væri að
Sjálfstæðisflokk-
urinn væri til vand-
ræða á þingi. Þá yrði
ekki opnað fyrir
fréttir án þess að
glymdi í eyrum manna hvílíkt
hneyksli væri á ferð og það meira að
segja eftir að starfsáætlun þingsins
mælti fyrir um þinglok.
Nú eru ekki-þingfréttir faldarinni í fréttatímanum og ekkert
gert með þótt ekki aðeins sé kreppa
á stjórnarheimilinu heldur einnig
þingkreppa ef nota má það orð til að
lýsa þeirri staðreynd að alþingi er
óstarfhæft vegna sundurlyndis inn-
an stjórnarflokkanna.“
Þá víkur Björn að fréttum um aðþingforsetinn „sé að seilast til
nýrra valda“ með því að boða ekki
þingfundi: „Vissulega er það rétt.
Ástæðan fyrir að hún kemst upp
með það er að forsætisráðherrann
er aðeins að nafninu til – Jóhanna
hefur engin völd lengur af því að
enginn fer að hennar ráðum. Jó-
hanna er hins vegar í gamalkunnu
hlutverki: að spilla fyrir öðrum.
Eina úrræði Ástu Ragnheiðar er
að boða ekki fundi.
Staðreynd er að valda- og áhrifa-leysi forsætisráðherra gerir
þingið óstarfhæft.“
Björn Bjarnason
Óstarfhæft þing
STAKSTEINAR
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Veður víða um heim 25.3., kl. 18.00
Reykjavík 7 léttskýjað
Bolungarvík 2 léttskýjað
Akureyri 2 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 5 skýjað
Vestmannaeyjar 4 skýjað
Nuuk -1 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 2 léttskýjað
Kaupmannahöfn 2 heiðskírt
Stokkhólmur 3 heiðskírt
Helsinki 1 léttskýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 2 heiðskírt
Dublin 2 skýjað
Glasgow 2 skýjað
London 1 skýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 2 heiðskírt
Hamborg 1 léttskýjað
Berlín 1 heiðskírt
Vín -2 snjókoma
Moskva -7 snjóél
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 11 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 skýjað
Aþena 16 skýjað
Winnipeg -6 snjókoma
Montreal 3 skýjað
New York 3 alskýjað
Chicago 1 alskýjað
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:06 20:02
ÍSAFJÖRÐUR 7:09 20:09
SIGLUFJÖRÐUR 6:51 19:52
DJÚPIVOGUR 6:35 19:32
Gjafir sem
gefa nýja sýn
Sony, Samsung og
Lenovo spjaldtölvur
Verð frá:
49.990 kr.
Borgartúni 37, Reykjavík / Kaupangi, Akureyri / netverslun.is
Úrkoma í Reykjavík það sem af er
mars er um 45% af úrkomu í meðal-
ári. Það þarf þó ekki að leita langt
aftur til að finna sambærilegt
þurrkaveður. Árið 2005 var úrkom-
an einnig minni en helmingur af
meðaltalinu og veðrið var svipað á
árunum 2001 og 2005, að sögn
Trausta Jónssonar, veðurfræðings á
Veðurstofu Íslands.
Spurður hvort veturinn hafi verið
óvenju snjóléttur á höfuðborgar-
svæðinu segir Trausti að á tíma-
bilinu frá október og það sem af er
mars hafi verið samtals 22 alhvítir
dagar á svæðinu.
Langt undir meðaltalinu
Það sé langt undir meðaltali ár-
anna 1971 til 2000 þegar 61 dagur
var að jafnaði alhvítur ár hvert á
höfuðborgarsvæðinu.
Norðanmenn hafa séð meira af
snjó en íbúar höfuðborgarsvæðisins
í vetur. Þannig hafa verið 120 alhvít-
ir dagar á Akureyri frá því í nóv-
ember og er það 20 dögum meira en
meðaltalið á árunum 1971 til 2000.
Um fimmtungur af meðalári
Spurður hvort þurrt hafi verið í
veðri víðar en á höfuðborgarsvæðinu
segir Trausti að á Kirkjubæjar-
klaustri hafi úrkoman aðeins verið
um 20% af því sem jafnan er í meðal-
ári. Þá sé úrkoman á Dalatanga um
fjórðungur af meðaltalinu. Á Höfn sé
úrkoman nærri meðallagi.
Úrkoman í mars helmingur af meðallagi
Morgunblaðið/ÞÖK
Reykjavík Þurrt hefur verið í veðri
í höfuðborginni síðustu daga.
Þurrviðrasamt í Reykjavík í mars
Fjelagið hf. hefur keypt Gamla bíó
af Íslensku óperunni, en húsið var
notað undir starfsemi óperunnar í 30
ár þar til 2011 þegar hún flutti í
Hörpu. Fjelagið hf. er í eigu Stein-
dórs Sigurgeirssonar, eins eiganda
Storms Seafood, en hann keypti fyrr
á árinu húsnæðið að Vesturgötu 2.
Í samtali við Stefán Baldursson
óperustjóra segir hann að fyrst eftir
að óperan hafi flutt hafi verið ákveð-
ið að leigja húsnæðið út til eins árs.
Eftir það hafi það verið leigt í ein-
stök verkefni, en það hafi verið ljóst
að ekki væri vilji til að reka húsnæði
aukalega við venjulega starfsemi óp-
erunnar. Hann segir að húsnæðið sé
að miklu leyti friðað, en framhluti,
anddyri, salurinn og miðasala er allt
friðað. Nýr eigandi ætlar að sögn
Stefáns fyrst um sinn að halda svip-
uðum rekstri og verið hefur í húsinu,
en að seinna meir sé stefnan á að
bæta við veitingaaðstöðu.
Að sögn Stefáns fékkst „mjög
ásættanlegt verð“ fyrir eignina.
Óperan hafi verið nokkuð skuldsett
þegar hann tók við fyrir 5 árum
þannig að þetta komi að góðu, en
framlög til Óperunnar voru skorin
niður um 25% árið 2009 og segir
Stefán að á raunvirði sé það í dag um
50% niðurskurður.
Fjelagið
kaupir
Gamla bíó