Morgunblaðið - 26.03.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
AFP
Minnst 300 þúsund manns tóku þátt í mótmælum gegn
hjónaböndum samkynhneigðra í París á sunnudag, hér
slást lögreglumenn við fólk sem reyndi að brjóta sér
leið inn á Champs-Élysées. Lög sem heimila hjónabönd
samkynhneigðra og leyfa þeim einnig að ættleiða börn
voru í vetur samþykkt á franska þinginu.
Gegn hjónaböndum samkynhneigðra
Kínverska olíufélagið CNPC hefur
samið við rússneska félagið Rosneft
um rannsóknir á þrem líklegum olíu-
svæðum á Barentshafi og Petsjora-
hafi, að sögn vefsíðu Barents Obser-
vers. Xi Jinping, nýr forseti Kína,
undirritaði samkomulagið í ferð
sinni til Moskvu í liðinni viku. Hann
er nú í Afríkuferð með eiginkonu
sinni og heitir því að „samstarf við
Afríkuríki“ verði stóraukið.
Meðal um-
ræddra svæða er
Zapadno-Príno-
vozemelskí sem
er vestan við
eyjaklasann No-
vaja Semlja og
hefur enn lítið
verið rannsakað
en talið mjög
vænlegt. CNPC
verður þriðji samstarfsaðili Rosneft
á Barentshafi. Fyrir voru ítalska fé-
lagið ENI og norska Statoil, Rosneft
á einnig samstarf við bandaríska fé-
lagið Exxon-Mobil á Karahafi.
Samkomulagið er hluti af mun víð-
tækari samningi Rússa og Kínverja
um orkuviðskipti. Munu Kínverjar
kaupa mikið af rússneskri olíu gegn
aðgangi að auðlindum, einnig fá
Rússar lán frá Kína. kjon@mbl.is
Samið við Kína um olíuleit
Samstarf við rússneska Rosneft um Barentshaf
Xi Jinping
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ný stjórn Benjamins Netanyahus í
Ísrael hefur hætt að frysta skatt-
tekjur sem Ísrael innheimtir á her-
numdum svæðum Palestínumanna,
að sögn talsmanna ráðherrans í gær.
Frystingin var hefnd vegna þess að
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu-
manna, fékk samþykkt á þingi Sam-
einuðu þjóðanna sl. haust að Palest-
ína fengi hálfgildings aðild að
samtökunum.
Stjórn Abbas fær mikla fjárhags-
aðstoð frá arabaríkjum og Vestur-
veldunum en skatttekjurnar eru
samt afar mikilvægar fyrir hana.
Netanyahu lét hana fá sem svarar
124 milljörðum króna af uppsafnaða
skattinum í lok janúar á þeirri for-
sendu að stjórn Abbas væri í miklum
fjárhagsvanda.
Ljóst er að Ísraelar eru að breyta
hratt stefnu sinni um þessar mundir.
Þeir áttu lengi gott samstarf við
Tyrkland, þar á meðal í hermálum.
En góð sambúð ríkjanna hrundi árið
2010 þegar ísraelskir hermenn felldu
níu tyrkneska aðgerðasinna í skipi
þeirra sem átti að flytja ýmsar nauð-
synjar til Gaza. Netanyahu lét loks í
liðinni viku undan kröfum Tyrkja um
að biðjast afsökunar og greiða
aðstandendum skaðabætur.
Ísrael friðmæl-
ist við Abbas
Aflétta fryst-
ingu á skatttekjum
Palestínumanna
AFP
Einmitt! Netanyahu útskýrir málin
fyrir Obama Bandaríkjaforseta og
Shimon Peres, forseta Ísraels.
Breytt staða
» Ráðamenn Tyrkja hafa bent
á að nú geti samstarf við Ísr-
aela orðið til að flýta fyrir falli
Bashars al-Assads í Sýrlandi
en fullur fjandskapur er milli
hans og Tyrkja.
» Og Ísraelar og Sýrlendingar
hafa aldrei útkljáð deiluna um
yfirráð á Gólanhæðum sem
hinir fyrrnefndu tóku af Sýr-
landi 1967.
» Nýlega lýsti helsti leiðtogi
Kúrda í Tyrklandi, Abdullah
Öcalan, yfir vopnahléi í mann-
skæðu skæruliðastríði sem
staðið hefur frá 1984.
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Buyers Laboratory (BLI) er sjálfstætt starfandi ráðgjafafyrirtæki
á prentmarkaði og viðurkennir árlega þá framleiðendur sem
skarað hafa fram úr. Tólf af fimmtán A3 fjölnotatækjum Konica
Minolta voru útnefndar bestu vélar í sínum flokki árið 2012, fleiri
en frá nokkrum öðrum framleiðanda. Þessi árangur er ástæða
þess að BLI hefur nú veitt Konica Minolta viðurkenninguna
A3 MFP Line of the Year, þriðja árið í röð.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga
og alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um
gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum
af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki