Morgunblaðið - 26.03.2013, Side 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Það er skrítin til-
finning að hugsa til þess að
kveðja einstakling sem hefur ver-
ið hluti af tilveru minni frá fæð-
ingu. Einstakling sem tók þátt í
því að ala mig upp og móta mig og
er stór hluti af öllum mínum
minningum. Ég fæddist inn í litla
þriggja kvenna fjölskyldu þar
sem amma, mamma og Dunda
frænka voru drottningarnar í lífi
mínu, þessar þrjár konur voru
minn heimur. Svo þegar Dunda
kynntist Sigga og þau giftu sig
var Siggi umsvifalaust innvígður
í þennan litla hóp, hann gerðist
Siggi frændi og var dásamleg við-
bót við heiminn minn.
Þegar Dunda og Siggi fóru að
búa á Lokastíg var hvergi betra
að vera. Ég sat í eldhúsinu hjá
Dundu frænku og beið meðan
hún bjó til eitthvað gott handa
mér að narta í og það voru hátíð-
legar stundir þegar ég fékk að
leika mér að öllum dularfullu og
fallegu skartgripunum sem hún
átti í kringlótta leðurskartgripa-
skríninu sínu. Þegar ég fékk að
gista átti ég mína eigin holu í
miðjunni í hjónarúminu. Ótelj-
Iðunn
Lúðvíksdóttir
✝ Iðunn Lúðvíks-dóttir fæddist í
Reykjavík 7. júní
1947. Hún andaðist
á Landspítalanum
4. mars 2013 síðast-
liðinn.
Útför Iðunnar
fór fram frá Bú-
staðakirkju 14.
mars 2013.
andi ísbíltúrar og
skíðaferðir með
heitt kakó og nesti,
sundferðir í Hvera-
gerði, jóla- og ára-
mótaveislur og svo
seinna ferðir í
Svanasel, allt með
Dundu frænku og
Sigga frænda. Þeg-
ar ég byrjaði í
Verzlunarskólanum
fór Dunda frænka
með mér að kaupa nýja ritvél, en
slíkan grip þurftu allir nýnemar í
skólanum að eiga. Þegar ég var
svo orðin fullorðin og stofnaði
mitt eigið heimili var Dunda
frænka endalaus ráðabanki og oft
þurfti ég að hringja í hana til að
spyrja um eitthvað.
Flestar mínar mataruppskrift-
ir eru frá Dundu frænku því eng-
inn eldaði eins góðan mat og hún,
sveppasósan hennar er alveg ein-
staklega góð og það er engin jóla-
steik nema sveppasósan sé með.
Ef ég hef ætlað að breyta til og
prufa einhverjar nýjar sósuupp-
skriftir hef ég fengið mjög ein-
dregin tilmæli frá fjölskyldumeð-
limum um að hætta þessari
tilraunastarfsemi og gera bara
sveppasósuna hennar Dundu
frænku!
Dunda frænka mín var hávax-
in og glæsileg kona, hún var alltaf
fín og vel tilhöfð, tipptopp, og
heimilið hennar og Sigga frænda
í Tjarnarbólinu var allt í senn;
fallegt, þægilegt og heimilislegt,
og þangað var alltaf gott og gam-
an að koma. Einhvern veginn lít-
ur allt öðruvísi út án Dundu
frænku.
Elsku Siggi minn, þú átt alla
mína samúð, guð geymi þig og
styrki.
Þakka þér fyrir samveruna og
allt sem þú hefur gert fyrir mig,
elsku frænka mín.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín
Styrgerður Hanna.
HINSTA KVEÐJA
Elsku Iðunn.
Þegar lífið slokknar,
þá sorgin inn skýst.
Oft þá andlitið blotnar,
því sorginni engin orð fá lýst
Sorgin eftir skilur í hjartanu holu,
sem ekki er hægt að fylla upp í með
vindgolu.
Maður getur ekki verið hennar þegn
en þó vill hún fylgja manni lífið út í
gegn.
Loks kemur gleðin,
þá birtir til,
svo jafnvel við dánarbeðinn,
er hægt að kunna á því skil.
Gleðin sorginni burt víkur,
þannig að henni um tíma lýkur.
Bros og hlátur hlutar af gleðinni eru
og hún er stór þáttur í okkar tilveru.
(Aurora Borealis)
Hvíl í Guðs friði.
Valgerður (Vala)
og Friðrik (Frikki).
„Ljós heimsins“
eða „kraftbirtingarhljómur guð-
dómsins“ minnir um margt á þig
elsku vinkona okkar og trúsyst-
ir. Þú varst líkt og Jesús „ljós
þíns heims“; lýstir umhverfi þitt
með trúarinnsæi þínu og þekk-
ingu. Þú náðir að ganga í ljósinu
og voninni fram á síðustu
stundu. Það heitir að þekkja Guð
sinn, elska hann og treysta hon-
um því hann mun vel fyrir sjá.
Því lofar hann.
Auðvitað féllu tár en okkar
síðasta bænastund með þér
breytti angist okkar sjálfra og
þreytu í gleði. Gleði með þeim
sem vita að þeirra bíður eitthvað
miklu betra, miklu stærra og
miklu merkilegra en þetta jarð-
neska brölt okkar mannanna
barna, þrátt fyrir að við höfum í
vanmætti okkar viðurkennt
Jesú Krist sem leiðtoga lífs okk-
ar og reynt eftir bestu getu að
elska okkur sjálf eins og náung-
ann, náungann eins og okkur
sjálf. Guð er nefnilega kærleikur
og sá sem ekki elskar þekkir
ekki Guð. En stundum eru orðin
óþörf og það voru þau í rökkrinu
á líknardeildinni í Kópavogi.
Dómharkan engin, illskan víðs
fjarri og kærleikurinn holdi
klæddur. Þú kunnir að gleðjast
með hamingju okkar enda vel
gerð manneskja.
Berglind var einstök persóna,
eitthvað svo guðdómleg. Hún
var alltaf svo smart klædd að
tekið var eftir því, fallega brosið
hennar yljaði okkur sem kynnt-
umst henni. Hún talaði ávallt um
börnin sín sem hina fullkomnu
sköpun þess er öllu ræður og
henni tókst að gefa líf sitt til
þjónustu við Guð sinn.
Það er sorg í sál okkar hjóna
að börnin hennar og aðrir ætt-
ingjar, sem og við vinir hennar,
þurfum að sjá á eftir henni svo
ungri í blóma lífsins. Svona kall-
ar Guð þá til verka sem kunna til
verka.
„Þar sem jökulinn ber við loft
hættir landið að vera jarðneskt,
en jörðin fær hlutdeild í himn-
inum, þar búa ekki framar nein-
ar sorgir og þess vegna er gleðin
ekki nauðsynleg, þar ríkir feg-
Berglind
Valdimarsdóttir
✝ Berglind Valdi-marsdóttir
fæddist 31. mars
1962. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 8. mars 2013.
Útför Berglindar
fór fram frá Graf-
arvogskirkju 20.
mars 2013.
urðin ein, ofar
hverri kröfu.“
Á þessum orðum
hefst bókin „Feg-
urð himins“ í
Heimsljósi Lax-
ness. Þarna ertu
elsku Berglind okk-
ar, í himnaríki hjá
Jesú þínum. Þarna
eruð þið og borðið
steiktan fisk við fal-
legt vatn. Við erum
þakklát fyrir að hafa átt gæða-
stundir með þér í lok ferðalags-
ins hér á jörðunni. Þá, þegar
dauðinn læðist að þeim sem
maður elskar, erum við neydd til
þess að í það minnsta þakka fyr-
ir lífið þótt á tímum óbærilegt
virðist.
„Best er að gleyma heimi sín-
um, bæði því sem maður hefur
orðið að þola og eins hinu sem
maður þráir, því sem maður hef-
ur misst og hinu sem maður
kann að vinna, gleyma lífi sín
sjálfs andspænis þeirri fegurð
þar sem mannlegu lífi sleppir og
eilífðin tekur við, hið fullkomna,
fegurðin sem efsti dómur. Eing-
inn dagur þegar skyggni var til
jökuls gat orðið að sljóum vana;
meðan leiðir himins voru færar
var sérhver dagur hátíð, kyrrlát
og þó án skyldleika við dauðann,
ofar ljóði og mynd.“ (Laxness.)
Okkur tókst að segja þér að
við elskum þig, það er setning
sem heyrist allt of sjaldan en við
vitum það að börnin þín og ætt-
ingjar, sem öll tóku þátt í bar-
áttu þinni, eru allt um blessuð af
gæsku þinni, velvild og fegurð.
Fegurð og kærleika sem varir
að eilífu.
Jónína Benediktsdóttir og
Gunnar Þorsteinsson.
Kær vinkona, Berglind Valdi-
mars, er dáin. Berglind var ein-
stök kona sem bjó yfir miklu
æðruleysi, kærleika og bjartsýni
á lífið, hún var svo skemmtileg
og hugmyndarík. Enginn bar
nafn sitt betur en Berglind.
Berglind eignaðist þrjú falleg og
vel gerð börn og einn yndislegan
dótturson, sorg þeirra og missi
fá engin orð lýst, en minningin
um kjarnmikla, trausta og góða
móður mun fylgja þeim og gefa
þeim gott veganesti út í fullorð-
inslífið.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíl í friði, kæra vinkona.
Ég votta fjölskyldu Berg-
lindar mína innilegustu samúð.
Vala Ágústsdóttir.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast Berglindar Valdimars-
dóttur. Við hjónin kynntumst
Berglindi í bæna- og biblíules-
hóp sem við vorum í og sem hitt-
ist vikulega í Kríunesi við Elliða-
vatn. Þrátt fyrir sín veikindi þá
bar hún sig vel og hafði greini-
lega yndi af því að lesa Guðs orð
og biðja.
Hún setti allt sitt traust á
Jesú Krist sem hún trúði á. Það
var gott að hafa hana með okkur
í þessum hópi. Mig langar að
þakka fyrir allar góðar samver-
ur á liðnum árum og ég veit að
núna er hún hjá Guði sem hún
trúði og treysti á.
Sjá, Guð er hjálp mín, ég er öruggur
og óttast ekki. Því að Drottinn er vörn
mín og lofsöngur, hann kom mér til
hjálpar. Þér munuð með fögnuði vatni
ausa úr lindum hjálpræðisins.
(Jes.12:2)
Ég votta ættingjum og vinum
Berglindar innilega samúð
mína.
Pétur Ásgeirsson,
Hafnarfirði.
Mikið á ég eftir að sakna þín,
Berglind mín.
Ég minnist allra skemmtilegu
samverustundanna sem við átt-
um, uppvaxtarins í Hraunbæn-
um, skemmtilegu ferðanna okk-
ar og stundanna sem við áttum
nú síðastliðin ár, fyrir þær vil ég
þakka.
Stundum leið langur tími á
milli samverustunda en það var
alltaf eins og við hefðum hist í
gær. Þú alltaf jafn falleg, bros-
andi og kát.
Ég kveð þig í dag, Berglind,
með þeim orðum sem þú færðir
mér þegar þú komst í heimsókn
til mín vestur á Ísafjörð í októ-
ber 2009 en þau eiga vel við.
„Því að þín vegna býður hann út engl-
um sínum til að varðveita þig á öllum
vegum þínum“ (Sálmur 92. )
Vertu sæl, mín elskulega vin-
kona.
Brynja Pála Helgadóttir.
Í dag þegar ég rita þessar fáu
línur um hana Nönnu föðursyst-
ur mína er sólskin. Og þannig er
minningin um þessa brosmildu,
blíðu frænku mína. Nanna,
Gunnar og börnin þeirra voru
hluti af föstum póstum í æsku
okkar systkinanna. Alltaf var
Nanna frænka með opinn faðm-
inn og tók manni af svo mikilli
hlýju og einlægri gleði. Þau
Gunnar komu upp frábærum
Svandís Nanna
Pétursdóttir
✝ Svandís NannaPétursdóttir
fæddist í Rauðs-
eyjum á Breiðafirði
10. desember 1925.
Hún lést á LSH í
Fossvogi 13. mars
2013.
Útför hennar var
gerð frá Bústaða-
kirkju 25. mars
2013.
hópi barna og af-
komendur þeirra
eru fleiri en ég hef
nokkra tölu á. Hún
var mikil fjölskyldu-
kona og mikill vinur
barna sinna. Það
lýsti frænku minni
hvað best að í mörg,
mörg ár hafði hún
þann sið að hafa
heimili sitt opið um
hádegi á sunnudög-
um og var nánast ætlast til að
stórfjölskyldan kæmi saman og
deildi áhugamálum sínum, sorg-
um og gleði. Við Herdís áttum því
láni að fagna að koma í slíka
sunnudagssamveru. Þar var
frænka í essinu sínu. Glöð og
hamingjusöm með fólkinu sínu
umvafin látleysi og væntum-
þykju. Þetta var nokkuð sem við
hin gætum tekið okkur til fyrir-
myndar.
Lífið var ekki alltaf dans á rós-
um hjá frænku minni. Þessi netta
og fíngerða kona þurfti að berjast
við ýmiss konar heilsuleysi, m.a.
langvarandi sykursýki og endur-
teknar hjartakveisur en hristi
þær allar af sér með bros á vör.
Hún lenti í alvarlegu bílslysi og
kom enn fallegri út úr því en hún
var áður. Það var eins og ekkert
biti á hana.
Elsku Nanna. Hún var yndis-
leg stundin sem við áttum á 100
ára minningarafmæli pabba nú í
haust. Þegar þið Gunnar deilduð
með okkur systkinunum minn-
ingum ykkar úr Breiðafjarð-
areyjunum forðum daga. Í sögum
ykkar og þeirri útgeislun þeim
fylgdi sannaðist að hin tæra
æskuást ykkar hafði í engu dofn-
að. Þið voruð eins og nýtrúlofuð
og virtust yngri en við hin.
En nú ertu farin og einn falleg-
asti sólargeislinn slokknaður. Ég
þakka þér, Nanna frænka, fyrir
að hafa verið til. Okkur Herdísi
þykir leitt að geta ekki verið við
útförina þína í dag en hugurinn
verður hjá ykkur öllum.
Friðrik Rúnar Guðmundsson.
Elsku tengdapabbi minn, hann
Sigurður, er nú látinn og viljum
við trúa að hann sé farinn á betri
stað til hennar Dóru sinnar. Ég
kynntist Sigurði fyrir rúmlega 17
árum og fann maður strax að ég
var mjög velkomin í fjölskylduna.
Hann Siggi minn var mjög ljúfur
Sigurður Arthúr
Gestsson
✝ Sigurður Art-húr Gestsson
fæddist á Ísafirði
19. maí 1932. Hann
lést á deild 3 B
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 10. mars
2013.
Sigurður Arthúr
var jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í
Hafnarfirði 18.
mars 2013.
og með mikinn húm-
or. Hann átti það til
að segja eitthvað við
mann og blikka síð-
an til manns um leið
og var þetta svona
húmor á milli okkar
tveggja. Ég fann
strax til mikillar
væntumþykju til
hans og Dóru enda
voru þarna á ferð-
inni ein ljúfustu hjón
sem ég hef kynnst.
Sigurður var af þeirri kynslóð
sem sagði sínar skoðanir og var
maður oft ekki viss hvort hann
væri að grínast eða segja manni til
en um leið og hann blikkaði mann
þá vissi ég að þarna var stríðn-
ispúkinn í honum að tala. Ég man
alltaf eftir því þegar við vorum að
skíra alnafna hans, hann Sigurð
Arthúr, en þegar nafnið var sagt
þá heyrðist í Sigga gamla: Aum-
ingja barnið að heita þessu nafni
en um leið brosti hann allan hring-
inn. Sigurði þótti best að vera á
Ísafirði hjá Salbjörgu dóttur sinni,
þar leið honum vel og voru dætur
hans duglegar að fara með hann
þangað. Sigurður var umkringdur
börnum sínum þegar hann veikt-
ist og alveg til loka. Það var vel
hugsað um hann eftir að Dóra fór
og er krafturinn og dugnaðurinn
sem dætur hans sýndu alveg ótrú-
legur.
Nú eru erfiðir tímar hjá börn-
um og ættingjum en um leið hugs-
um við til þess að nú er Sigurður
kominn til hennar Dóru sinnar þar
sem honum leið alltaf best. Hann
horfir til okkar með stórt bros,
glaður og sáttur. Ég þakka fyrir
að hafa kynnst þér, Siggi minn, ég
er betri manneskja eftir að hafa
fengið að þekkja þig í þessi 17 ár.
Þín tengdadóttir,
Íris Huld.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta
og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra
horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Lengd | Hámarkslengd minning-
argreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefn-
um. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar og
hvenær sá sem fjallað er um fædd-
ist, hvar og hvenær hann lést og
loks hvaðan og hvenær útförin fer
fram.
Minningargreinar Smáauglýsingar
Garðar
Trjáklippingar
trjáfellingar og grisjun sumarhúsa-
lóða. Hellulagnir og almenn
garðvinna. Tilboð eða tímavinna.
Jónas F. Harðarson,
garðyrkjumaður, sími 697 8588.
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Skattframtöl
Skattframtal 2013
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla - hag-
stætt verð. Uppl. í síma 517 3977.
www.fob.is. Netfang: fob@fob.is.
Viðgerðir
DÆLUVIÐGERÐIR
Tek að mér viðgerðir á öllum
tegundum af dælum.
K. Tómasson ehf., Héðinsgötu
1-3. Sími 898 5199 og 557 5199.
fasteignir