Morgunblaðið - 26.03.2013, Síða 43
(with Jóhann Axelsson), Bók Davíðs:
Rit til heiðurs Davíð Davíðssyni, Vol.
I, Ólafur Grímur Björnsson ed.
(Reykjavík: Háskólaútgáfan, 1996),
pp. 255-284; „Time Out of Mind: Me-
mory, Sexual Abuse and the Statute
of Limitations“, Archiv für Rechts-
und Sozialphilosophie, Beiheft 64:
„Time, Law and Society“, Jes Bja-
rup and Mogens Blegvad, eds.
(Stuttgart: Franz Steiner Verlag,
1995); „Náttúran sem skepna“; Nátt-
úrusýn, Róbert Haraldsson and Þor-
varður Árnason, editors (Reykjavík:
Siðfræðistofnun, 1994); „Doubt, Rea-
son and Cartesian Therapy“, Desc-
artes: Critical and Interpretive
Essays, Michael Hooker, ed. (Johns
Hopkins Press: Baltimore & Lond-
on, 1978), pp. 89-113.
Upphaf heimspekikennslu
Ásamt þeim Páli Skúlasyni og
Þorsteini Gylfasyni vann Mike afar
mikilvægt uppbyggingar- og þróun-
arstarf í heimspekikennslu hér á
landi með mótun heimspekikennsl-
unnar við nýstofnaða prófgrein í
heimspeki við Háskóla Íslands á
fyrstu árunum á áttunda áratug síð-
ustu aldar. Þegar Mike kom að
kennslunni við HÍ hafði greinin verið
við lýði við skólann í eitt ár. Mike var
þá sá eini þessara þriggja sem hafði
einhverja reynslu af heimspeki-
kennslu á háskólastigi.
Fjölskylda
Eiginkona Mike er Barbara Belle
Nelson, f. 16.7. 1952, sjálfstætt starf-
andi ritstjóri og þýðandi. Hún er
dóttir Jens Roberts Hansen vél-
virkja og Barböru Walsh Hansen,
aðstoðarhjúkrunarfræðings og
skólameistara.
Fyrri kona Mike er Louise Leigh-
ton Sherman, f. 8.11. 1942.
Börn Mike eru Elizabeth Helen
Marshall, f. 12.2. 1968, kennari og
húsmóðir í Horseheads í New York-
ríki í Bandaríkjunum, en maður
hennar er Geoffry Marshall reynslu-
flugmaður og eru börn þeirra Eliza-
beth Grace Evelyn Marshall, f. 20.12.
1997, Katherine Allaire Marshall, f.
13.5. 1999 og Charles Edward Mars-
hall, f. 22.11. 2002; Jessica Mollie
Marlies, f. 23.5. 1969, lögfræðingur í
Chapel Hill í Norður-Karólínu í
Bandaríkjunum, en maður hennar er
Jeffrey Gelb kerfisstjóri og eru börn
Jessicu Zachariah Stephen Cohen, f.
13.12.1990, og Jeremiah Martin
Gelb, f. 19.1. 1997; Mikael Smári
Mikaelsson, f. 27.4. 1972, læknir í
Blenheim á Nýja-Sjálandi, en kona
hans er Rosemary Jones lækna-
kandídat og eru börn Mikaels Finn-
bogi Davíð Miakelsson, f. 1.12. 2009,
og Svava Rós Mikaelsdóttir, f. 15.9.
2012.
Stjúpbræður Mike eru Paul
Warman, f. 10.5. 1942, kerfisstjóri;
David Warman, f. 4.2. 1950, fjár-
málaráðgjafi.
Foreldrar Mike: Charles Angel
Marlies, f. 10.9. 1905, d. 13.1. 1949,
prófessor í efnafræði og efnaverk-
fræði, og Vivian Rose Warman, f.
15.8. 1912, d. 10.11. 2004, ritari og
húsfreyja.
Stjúpfaðir Mike var Irving Warm-
an, f. 3.3. 1915, d. 11.9. 2003, bygg-
ingastjóri.
Jólin 1979 Mike, Barbara og Louise, ásamt börnunum á aðfangadagskvöld.
Úr frændgarði Mikaels Marlies Karlssonar
Mikael Marlies
Karlsson
Mollie Angel Goldberg
Gochman
Echiel (Edward) Gochman
kaupmaður og vélvirki
Vivian Rose Warman
ritari og húsfreyja frá Úkraínu
sem flutti með fjölskyldu sinni
til Bandaríkjanna
Sura (Sarah) Susman
Gochman
Yankel (Jacob) Simcha
Gochman
Moshe
Mashe (Minnie) Zukerblatt Margulies
gistihússtjóri og húsfreyja frá svæði
nálægt Brest-Litovskt sem flutti til
Bandaríkjanna
David Mordkeo (Max) Margulies
rafvirki frá svæði nálægt Brest-
Litovskt sem flutti til Bandaríkjanna
Charles Angel Marlies
prófessor í efnafræði og efna-
verkfræði, f. í Bandaríkjunum
Elka Hantwerger
Margulis
Pinkus (Harry)
Tzvi Margulis
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Arndís Þorbjarnardóttir, hús-freyja á Selfossi, fæddist áBíldudal í Arnarfirði 26.3.
1910 og ólst þar upp. Foreldrar
hennar voru Þorbjörn Þórðarsonar,
héraðslæknir á Bíldudal, og Guðrún
Pálsdóttir húsfreyja.
Þorbjörn var sonur Þórðar,
hreppstjóra á Neðra-Hálsi í Kjós
Guðmundssonar, b. í Laxárnesi
Gíslasonar. Móðir Þorbjarnar var
Guðrún Guðmundsdóttir, vinnu-
manns á Bessastöðum Ísakssonar.
Guðrún, móðir Arndísar, var dótt-
ir Páls, prófasts í Strandaprófasts-
dæmi og alþm. Strandamanna Ólafs-
sonar, prófasts og alþm. Pálssonar,
pr. í Ásum Ólafssonar. Móðir Páls
alþm. var Guðrún Ólafsdóttir,
Stephensen sekretéra í Viðey Magn-
ússonar. Móðir Guðrúnar var Sigríð-
ur Stefánsdóttir, amtmanns á Hvít-
árvöllum Stephensen.
Systkini Arndísar: Páll, skipstjóri
og alþm. í Vestmannaeyjum; Þórður,
Ph.D. fiskiðnfræðingur og forstjóri
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins, faðir Þórðar Þorbjarnarsonar
borgarverkfræðings; Sverrir, hag-
fræðingur og forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins; Guðrún, eig-
inkona Brodda Jóhannessonar, dr.
phil og skólastjóra Kennaraskóla Ís-
lands, og móðir Þorbjörns prófess-
ors og Brodda fréttastjóra; Björn,
yfirlæknir við New York Hospital og
prófessor við Cornell University
Medical College í New York: og
Kristín, eiginkona Guðmundar
Ingva Sigurðssonar hrl.
Arndís lauk burtfararprófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík 1927
og dvaldi hjá prófessor J.R. Tolkien
í Oxford 1929-30. Hún starfaði hjá
Fiskifélagi Íslands við söfnun afla-
skýrslna og skýrslna um útflutning
sjávarafurða 1933-49 og sinnti hús-
freyjustörfum í Reykjavík 1949-59,
en eftir það á Selfossi. Hún var for-
maður Æskulýðsráðs á Selfossi frá
stofnun þess 1960-68, formaður
Kvenfélags Selfoss 1970-78 og sat í
hreppsnefnd Selfosshrepps 1962-74.
Einnig var hún forseti og stofnandi
Inner Wheel á Selfossi og umdæm-
isstjóri þess á Íslandi 1987-88.
Arndís lést 16.4. 2004.
Merkir Íslendingar
Arndís Þor-
bjarnardóttir
104 ára
Georg Ólafsson
85 ára
Guðrún I. Magnúsdóttir
Herdís K. Hervinsdóttir
Sigurður Blöndal
75 ára
Ásrún Björg Arnþórsdóttir
Júlíus Snorrason
Kristinn B. Kristinsson
Magnús Guðbrandsson
70 ára
Guðmundur Jens
Guðmundsson
Guðríður Inga Elíasdóttir
Irma Karlsdóttir
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Sigurður Pálmi Pálsson
Þorgerður Halldórsdóttir
Þyri Axelsdóttir
60 ára
Guðmundur Lárus
Helgason
Ingveldur Ragnarsdóttir
Kjartan Örn Sigurðsson
Kolbrún Ríkey Carter
Kristjón Guðmannsson
Ólöf Ragnheiður Ólafsdóttir
Per Karl Anders Ekström
Símon Jóhann Jónsson
50 ára
Arnar Már Gíslason
Ásgeir Jónsson
Baldur Hreinsson
Edite Poikane
Einar Sigurbjörn Jónsson
Eyjólfur Bjarni Alfreðsson
Guðrún Sigrún Jónsdóttir
Heimir Sigurðsson
Ingibjörg Ásta
Gunnarsdóttir
Kjartan Kjartansson
Marinó Kristinn
Hákonarson
Maris Botva
Sigurður Bragason
Þóra Lind Nielsen
Ægir Sigvaldason
40 ára
Aneta Bondarow
Árni B. Steinarsson
Norðfjörð
Ársæll Þór Bjarnason
Berglind Kristjánsdóttir
David Freeman
Hjörtur Skúlason
Hrönn Róbertsdóttir
Karl Rúnar Róbertsson
Kristín Inga
Guðmundsdóttir
Kristjana Hrafnsdóttir
Linda Margrét
Sigfúsdóttir
Skúli Guðmundsson
Wojciech Pigiel
30 ára
Aron Smári Barber
Árni Þór Ragnarsson
Ásta Sigurðardóttir
Daníel Már Jónsson
Davíð Snær Kristjánsson
Elsa Arney Helgadóttir
Jón Auðun Auðunarson
Jurgis Celdoms
Krzysztof Piotrowski
Óskar Pétur Jensen
Páll Gísli Jónsson
Snævar Þór Guðmundsson
Sveinn Hjalti Guðmundsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorsteinn ólst upp
á Klaufabrekknakoti í
Svarfaðardal og stundar
nám í félagsfræði við HÍ.
Systkini: Anna Lilja
Gunnlaugsdóttir, f. 1978,
starfsmaður hjá LSR, og
Helgi Pétur Gunnlaugs-
son, f. 1990, kokkur í Bláa
lóninu.
Foreldrar: Dómhildur
Karlsdóttir, f. 1957, og
Gunnlaugur E. Þorsteins-
son, f. 1946, en þau búa í
Klaufabrekknakoti.
Þorsteinn M.
Gunnlaugsson
30 ára Haukur ólst upp í
Sandgerði, er löggiltur
leigumiðlari og er að ljúka
prófum í húsasmíði og
sem löggiltur fast-
eignasali.
Systkini: Andrea Bára, f.
1972, félagsliði, og Valþór,
f .1980, starfsmaður hjá
Bónus.
Foreldrar: Andreas Á.
Baldursson, f. 1950, bað-
vörður, og Laufey Kolbrún
Smáradóttir, f. 1950, hús-
freyja.
Haukur
Andreasson
30 ára Kolbrún ólst upp á
Húsavík, hefur starfað við
auglýsingasgerð um ára-
bil og er nú skrifstofu-
stjóri hjá SITRUS - fram-
leiðslufyrirtæki.
Maki: Hjálmar Jakob
Grétarsson, f. 1987, mat-
reiðslumaður.
Börn: Guðrún Katrín, f.
2008, og Nadia Dís, f.
2010.
Foreldrar: Kristján Hall-
dórsson, f. 1960, og Krist-
ín Baldursdóttir, f. 1960.
Kolbrún
Kristjánsdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Þjónusta og síur
fyrir allar tegundir
af loftpressum
ÞRÝSTILOFT FYRIR ALLAN IÐNAÐ
LOFTPRESSUR – SÍUR – LOFTÞURRKARAR
idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is | Smiðjuvegur 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700
Gott ú
rval á
lager
ÞÝSKAR GÆÐA
PRESSUR