Morgunblaðið - 26.03.2013, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Listinn yfir skyldur þínar koma þér úr
jafnvægi og, það sem verra er, búa til algeran
glundroða. Þolinmæðin skiptir miklu máli og
þú færð hana endurgoldna þegar þér hentar.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að átta þig á því hversu vel þú
elur önn fyrir fólki sem þú umgengst dag-
lega. Trúnaðarmál þarf að geyma á öruggum
stað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Aldur er afstæður. Að minnsta
kosti þrír vina þinna eru til í að slást í för
með þér og að minnsta kosti einn þeirra
þekkir leiðina og væri til í að taka að sér
leiðsögn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sýn þín á lífið er góð og gild, en ekki
sú eina. Já, já, kannski sjá ekki allir breyting-
arnar, en þú veist betur og sérð að allt hefur
snúist á betri veg.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er ekkert eðlilegra en að skipta um
skoðun þegar sannindi úreldast og önnur
koma í staðinn. Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Suma daga vaknarðu einfaldlega í al-
veg glimrandi skapi. Að setja saman sögur
og ljóð er góð dægrastytting.
23. sept. - 22. okt.
Vog Skapandi og frumleg viðfangsefni fela í
sér spennu því verið er að kanna ókunnar
slóðir. Veldu þér góða samstarfsmenn ef þú
vilt ná einhverjum árangri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að gefa þér tíma til að
vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér í dag. Ef
þú ert ekki viss, skaltu ekki komast að sam-
komulagi um eitthvað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn í dag er tilvalinn til
sköpunar og afþreyingar. Hvettu ástvini til
þess að styðja þig með því að veita þér
svigrúm.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú þarft að taka ákvörðun fyrir
annað fólk skaltu gæta þess að hugsa um
hag þess en ekki þinn. Verið ekki of
dómhörð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft á öllum þínum sálarstyrk
að halda til að fást við viðkvæmt persónulegt
mál. Láttu ekki hugfallast, þetta óveðursský
leysist upp á sólarhring.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fiskurinn þarf vissulega á friði og ró
að halda en öllu má nú ofgera. En hvort þú
átt að tala um það sem þú sérð eða ekki, er
önnur saga.
Sigrún Haraldsdóttir segir vertað gleðjast á vorjafndægrum
og yrkja væmna vísu:
Bráðum litka grösin grund,
grænkar birkihlíðin.
Loks er dagsins ljósa stund
lengri en myrkratíðin.
Bjarni Hafþór Helgason veltir
fyrir sér höfundi að vísu og brag-
arhætti: „Þegar ég var í HÍ um og
upp úr 1980 var farið með vísu
fyrir mig sem ég get ekki gleymt.
Venjulega get ég þó ekki vel mun-
að vísur. Ég veit ekki hver orti, en
eitthvað við formið, orðanotk-
unina eða innihaldið/húmorinn
gerir það að verkum að ég man
þennan merkilega kveðskap sem
er svona:
Glugga í
gular blakta gardínur.
Skugga í
skáldið étur sardínur.“
Þórarinn M. Baldursson yrkir í
tilefni af angist frænda sinna „við
tilhugsun um tilfærslu á flugvelli“:
Reykjavík er ljót og leið,
lengst á suðurhjara.
Þangað aðeins út úr neyð
ættu menn að fara.
Ef að norðan góðan gest
gáttir himins senda
á Laugavegi væri best
að vélin myndi lenda.
Þingeyinga þung er sorg,
og það af efni gildu.
Húsavík sem höfuðborg
held ég flestir vildu.
Ingólfur Ómar Ármannsson
spreytir sig á sléttuböndum:
Vísnaglingur hæfir hér,
hali óðar gleður
býsna slyngur vísnaver,
vísur góðar kveður.
Og svo er það hringhenda:
Dansa boðar, drynur sær,
dembir froðutárum,
dátt í voðum vindur hlær
veltist gnoð á bárum.
Kötturinn Jósefína Dietrich
málmar kvæðin sín á fésbókinni
og hefur fundið leiðarljós þjóð-
arinnar – í sjálfri sér:
Minnsta flokksins meginstefnu
mun ég tjá í næstu línu:
Undur gerast að því gefnu
að allir fylgi Jósefínu.
Hún er okkar helsta von og
hefur lofað snjöllum rómi
að vinna Júró-vísí-on og
vera lands- og þjóðarsómi.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af sardínum, ketti,
ljósi og myrkratíð
Í klípu
LESENDUR VORU ENN MÓÐGAÐRI EFTIR
AÐ SAMA TEIKNIMYNDASAGAN BIRTIST
TVISVAR. „ANSANS,“ HUGSAÐI HANN. „ÉG
VERÐ KALLAÐUR RAÐMÓÐGARI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ÁTTIR AÐ HALDA HENNI BEINNI!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hugsa um
fjölskylduna með
öllu hjarta.
HÆ,
GRETTIR!
FYRST ÉG
ER HÉRNA ...
HVAÐ SEGIRÐU UM
ORMAHREINSUN?
HVER HLEYPTI
DÝRALÆKNINUM
INN?
LAUNIN SEM
ÞÚ BÝÐUR ERU
MJÖG LÁG ...
ERU EINHVER
SKATT-
FRJÁLS
FRÍÐINDI?
JÁ JÁ,
SKRIFAÐU
UNDIR
HÉR.
PSSSST ...
HVAÐA SKATT-
FRJÁLSU FRÍÐ-
INDI ERU ÞAÐ?
AÐ FÁ AÐ VERA ÚTI Í FERSKU SJÁVAR-
LOFTINU OG VERÐA SÓLBRÚNN MEÐAN
HANN RÆR BÁTNUM.
Víkverji opnaði milli tveggja her-bergja á heimili sínu um
helgina. Fór í gegnum trévegg sem
var þannig lagað séð ekki mikið
verk.
Betri helmingur Víkverja hefur
ríkt ímyndunarafl og kvöldið áður
en ráðist var í framkvæmdirnar fór
hann allt í einu að velta fyrir sér
hvort eitthvað leyndist inni í veggn-
um sem átti að víkja; nefndi í því
sambandi reiðufé, jafnvel heilu
búntin, og jarðneskar leifar.
x x x
Í fyrstu hristi Víkverji bara höfuðiðyfir þessu en fljótlega fór hann þó
að láta hugann reika líka. Hvað ef
eitthvað væri í veggnum? Fannst
honum þetta með reiðuféð meira
spennandi enda hægt að gera meira
við það en jarðneskar leifar ein-
hvers ógæfumanns.
Þó var það heillandi tilhugsun að
mögulega myndi eitt af umtöluðustu
mannshvörfum á Íslandi undan-
farna áratugi upplýsast – og það á
heimili Víkverja.
Af þessum ástæðum er ekki laust
við að umtalsverð spenna hafi verið
í loftinu þegar smiðurinn sagaði
gegnum vegginn daginn eftir. Og
vonbrigðin voru nokkur þegar í ljós
kom að þar var hvorki mannabein
né handbæra peninga að finna.
x x x
Þegar betur var að gáð fundust aðvísu jarðneskar leifar, líklega af
mús eða einhverju skyldu kvikindi.
Það hefur þó ekki verið staðfest.
Rifjaðist þá upp fyrir Víkverja að
hann heyrði stundum fótatak í téð-
um vegg fyrir um áratug, eða taldi
sig alltént heyra það. Betri helm-
ingurinn kannaðist á hinn bóginn
ekkert við það. En fékk hroll við til-
hugsunina. Ef til vill var þetta fóta-
tak bara í höfðinu á Víkverja. Annað
eins hefur nú gerst þar.
x x x
Í veggnum, eða þeim litla hluta semvar fjarlægður, leyndist fleira;
lítil og hugguleg jólabjalla og ljós-
blátt eyðublað úr Útvegsbanka Ís-
lands. Bjallan var í góðu formi og
eyðublaðið eins og það hefði verið
prentað deginum áður. Merkilegt.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er hlutdeild mín, segir sál
mín, þess vegna vona ég á hann.
(Harmljóðin 3:24)
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fataframleiðandi
fagfólksins
BRAGARD