Morgunblaðið - 26.03.2013, Side 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Strigar, ótal stærðir
frá kr.195 Olíu/Acrýl/
Vatnslitasett
12/18/24x12 ml
frá kr.570
Acryllitir 75 ml
499
Vatnslitasett
Skissubækur
kr.595
Þekjulitir/
Föndurlitir
frá kr.795
Gólf- og borðtrönur
frá kr.2.100
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
kr.
Myndlistavörurí miklu úrvali
kr.695
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Lifandi goðsögn og blúsmaður af gamla skól-
anum. Þannig lýsti Halldór Bragason, list-
rænn stjórnandi Blúshátíðar í Reykjavík,
bandarísku blúskempunni Guitar Shorty í
samtali við Morgunblaðið á dögunum, manni
sem leikið hefur með kempum á borð við Wil-
lie Dixon, Sam Cooke, Ray Charles, Jimi
Hendrix, Muddy Waters og Albert King. Guit-
ar Shorty kemur fram á hátíðinni í ár með The
Blue Ice Band á Hilton Reykjavík Nordica
hótelinu, á morgun, miðvikudaginn 27. mars.
Guitar Shorty, eða Gítar-Stubbur, er einn af
virtustu og vinsælustu blúsmönnum heims,
sagður risi í blúsheimi og margverðlaunaður
fyrir verk sín, kraftmikill gítarleikari og líf-
legur mjög á sviði. Og eins og allir góðir blús-
menn eldist hann vel, orðinn 73 ára en blúsar
enn og rokkar líkt og enginn væri morgundag-
urinn.
Stubbur heitir réttu nafni David William
Kearney, fæddur 8. september árið 1939 í
Houston í Texas. Hann ólst upp í Kissimmee á
Flórída og fékk ungur áhuga á gítarleik,
reyndar svo mikinn að móðir hans var að
missa vitið og bað frænda hans, Willie, að
kenna stráknum á gítar til að róa hann niður.
Þá var David sex ára og fyrirmyndir hans
blúshetjur á borð við B.B. King, Guitar Slim,
T-Bone Walker og John Lee Hooker. En Wil-
lie frændi var þó mesta hetjan.
Treystir á almættið
En hvaðan skyldi nafnið koma, Guitar
Shorty? ,,Það kom frá manni í Tampa í Flór-
ída, tónleikahaldaranum Dewey Richardson.
Hann gaf mér þetta nafn þegar ég var níu ára.
Það var stolið en ég vissi það ekki af því ég var
bara barn. Hann sagði við mig: „Væni minn,
ég vil að þú berir þetta nafn eins lengi og þú
lifir og leikur á gítar. Margir eiga eftir að
spyrja þig hvaðan þú hafir fengið það og þá
segir þú þeim það bara. Nafnið mun færa þér
gæfu og margir hjá plötu- og umboðsfyrir-
tækjum munu hvetja þig til að nota þitt rétta
nafn en þú skalt halda þig við Guitar Shorty.
Það mun færa þér gæfu.“ Og það hefur gert
það,“ segir Shorty, greinilegt að þar fer maður
sem kann margar sögur.
-Og þú hefur notið mikillar velgengni sem
tónlistarmaður?
,,Já, ég hef gert það. Það hafa þó komið
virkilega slæmar stundir og óvissa um hvað
framundan væri. En ég hef haldið fast í nafn-
ið, treyst á almættið og er enn að.“
-Ég heyri að þú ert trúaður…
„Ójá, ég trúi á Jesú Krist, svo sannarlega.
Ég er enginn ofsatrúarmaður, verð ekki óður
eins og svo margir en ég trúi af öllu hjarta á
Jesú Krist.“
-Hefur trúin hjálpað þér í tónlistinni?
„Hún hefur gert það og margir aðdáendur
mínir segjast heyra það af flutningi mínum á
tónleikum,“ segir Shorty. Spurður að því
hvort trúin sé nauðsynleg blúsmönnum segir
hann svo vera. ,,Blúsinn og trúin eru skyld.“
-Þá liggur beinast við að spyrja, hvaða eig-
inleikum þurfa góðir blúsmenn að búa yfir?
,,Þú verður virkilega að trúa á hann (blús-
inn) og í raun upplifa hann, erfiðleikana,“
svarar Shorty. Hann hafi fæðst og alist upp á
erfiðum tímum, við fátækt og bág kjör og viti
því hvað hann syngi.
Hvað ungur nemur …
Guitar Shorty tilheyrir þeim hópi blús-
manna sem hösluðu sér völl í Chicago um
miðjan sjötta áratuginn, eins og segir í afar
fróðlegum pistli Péturs Tyrfingssonar um
kappann á vefnum blues.is, manna á borð við
Freddie King, Otis Rush og Buddy Guy. „Allt
voru þetta strákar sem göfguðu rafgítarinn
svo að nú eru þetta magískir gripir sem eng-
inn snertir nema með fullri lotningu, sungu af
miklum sálarkrafti og stóðu stoltir á sviðinu,
höfðu í frammi sprell og jafnvel akróbatík,“
segir Pétur m.a. í pistli sínum.
Shorty tekur undir þetta og segir að þegar
litið sé til ungra blúsara í dag sé áberandi að
þeir leiti fyrirmynda í þessari kynslóð blús-
manna, spili það sama og gömlu kempurnar
hafi gert um áratugaskeið. ,,Við upplifðum
þetta, þú verður að gera það til að vita al-
mennilega hvað er að gerast þegar þú spilar
blús. Þá geturðu leikið hann betur,“ segir
Shorty og bætir því við að hann sé kallaður
blúsrokk-meistarinn, leiki blús með rokkívafi.
Unga kynslóðin í dag sé í raun að feta í fótspor
hans og það sé honum mikið gleðiefni.
Spurður að því hvort hann sé iðinn við tón-
leikahald utan Bandaríkjanna segir Shorty
svo vera og telur upp fjölda landa og land-
svæða, m.a. Tékkland, Suður-Ameríku, Sviss,
Grikkland, Pólland, Noreg, Danmörku og
Rússland. ,,Ég nýt þess að ferðast,“ segir
hann og bætir því við að hann finni ekkert fyr-
ir aldrinum. Og svarið við spurningu þess efn-
is hvort hann ætli að setjast í helgan stein á
næstu árum er stutt og laggott: ,,Ég mun
aldrei gera það.“
Hendrix í Reykjavík
Ekki er hægt að sleppa Shorty án þess að
spyrja út í Jimi Hendrix heitinn, gítar-
goðsögnina miklu sem var mágur hans. „Hon-
um líkaði það sem ég var að gera og sagðist
hafa lært mikið af mér. Það gleður mig því
hann náði að nýta sér það með góðum ár-
angri,“ segir Shorty, spurður að því hvort þeir
Hendrix hafi spilað mikið saman. En lærðu
þeir ekki hvor af öðrum? ,,Nei, ég þurfti þess
ekki,“ svarar Shorty og endurtekur að Hend-
rix hafi lært af honum en ekki öfugt. Og hann
segir ekki útilokað að hann taki nokkur Hend-
rix-lög á Blúshátíð í Reykjavík, í bland við lög
af plötum sínum sem orðnar eru fjölmargar.
Blús- og rokkunnendur eiga von á góðu.
Stubburinn sem varð risi
Eldhress Guitar Shorty á tónleikum. Blúsrokkarinn fer víða um heim og heldur tónleika og nú
er komið að Íslandi. Hann heldur tónleika á Blúshátíð á miðvikudagskvöld.
Blúsrokk-meistarinn
Guitar Shorty kemur
fram á Blúshátíð í
Reykjavík Segir nafn-
ið hafa fært sér gæfu
Mágur hans fyrrver-
andi, Jimi Hendrix,
lærði mikið af honum
Blues.is
guitarshorty.com
Ævintýramyndin Jack the Giant
Slayer er sú tekjuhæsta að liðinni
helgi í íslenskum kvikmyndahúsum
en myndin byggist lauslega á æv-
intýrinu um Jóa og baunagrasið.
Önnur ævintýramynd, Oz the Great
and Powerful, vermir annað sæti
listans þessa vikuna en tæplega níu
þúsund manns hafa séð myndina
hérlendis frá því hún var frumsýnd
fyrir þremur vikum.
Litlu fleiri áhorfendur hafa séð
dönsku verðlaunamyndina Jagten
þar sem Mads Mikkelsen þykir fara
á kostum í hlutverki leikskólakenn-
ara sem ranglega er sakaður um að
hafa brotið kynferðislega gegn
ungu stúlkubarni. Leikstjóri mynd-
arinnar er Thomas Vinterberg.
Bíóaðsókn helgarinnar
Bíólistinn 22.-24. mars 2013
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Jack The Giant Slayer
Oz the Great and Powerful
Identity Thief
Safe Haven
Dead Man Down
Snitch
21 and Over
Escape from Planet Earth (Flóttinn frá jörðu)
Broken City
Jagten (The Hunt)
Ný
1
2
Ný
3
Ný
7
4
6
5
1
3
3
1
2
1
4
4
2
5
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Ævintýrin
vinsælust
Ástfangin Jói og prinsessan á nota-
legri stundu í Jack the Giant Slayer.
Blússveiflan ræður ríkjum á Hótel Hilton
Reykjavík Nordica næstu þrjú kvöld,
tregafull og kersknisleg í bland.
Í kvöld, þriðjudag, koma fram blús-
hjónin Lucky og Tamara Peterson. Með
þeim leikur The Blue Ice Band og einnig
koma fram Skúli mennski og Þung byrði.
Goðsögnin Guitar Shorty leikur á mið-
vikudagskvöldið en á fimmtudagskvöld er
boðið upp á það besta í íslenskum blús, á
10 ára afmælishátíð Blúshátíðar.
Blústónleikar
næstu þrjú kvöld
BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK