Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Blaðsíða 13
Mannlaust bandarískt loftfar af
gerðinni Predator eða rándýr
stendur hlaðið eldflaug á flugbraut
herflugvallarins í Kandahar í Afgan-
istan. Bandaríkjastjórn hefur notað
slíkar vélar til þess að ráða
grunaða hryðjuverkamenn af dög-
um og mætir sú aðferð í baráttunni
við hryðjuverk vaxandi gagnrýni.
AFP
Qaeda í Pakistan, Jemen og víðar.
Ýmsar getgátur hafa verið um
mannfall í þessum árásum. Í febr-
úar sagði Lindsey Graham, öld-
ungadeildarþingmaður repúblikana,
að 4,700 manns hefðu fallið í árás-
unum og óbreyttir borgarar hefðu
verið þar á meðal.
„Stundum verður saklaust fólk
fyrir árásunum,“ sagði Graham,
sem er harður stuðningsmaður
árásanna, á Rótarífundi í Wash-
ington. „Mér er meinilla við það, en
við eigum í stríði og við höfum fellt
nokkra mjög háttsetta félaga í Al-
Qaeda.“
Ein umdeildasta árásin var gerð í
Jemen 2011. Þar féllu Anwar al-
Awlaiki og Samir Khan. Báðir voru
bandarískir ríkisborgarar og hvor-
ugur hafði verið sakaður um glæp.
Minnisblaði lekið
Í byrjun febrúar birti sjónvarps-
stöðin NBC minnisblað úr dóms-
málaráðuneytinu þar sem komist er
að þeirri niðurstöðu að löglegt sé að
fella bandaríska ríkisborgara, sem
talið sé að séu háttsettir í valda-
kerfi Al-Qaeda, jafnvel þótt ekkert
bendi til þess að þeir séu að leggja
á ráðin um hryðjuverk.
Í minnisblaðinu segir að „upp-
lýstur, háttsettur“ embættismaður
geti ákveðið hvort af einstaklingi,
sem ráðast eigi á, „stafi yfirvofandi
ógn um árás“ vegna þess að hann
hafi „nýlega“ tekið þátt í slíku at-
hæfi og engin gögn liggi fyrir um
að hann hafi fordæmt það eða sagt
sig frá því. Í minnisblaðinu segir
einnig að það verði að vera ógerlegt
að handtaka manninn eigi að fella
hann, en fullnægjandi skilyrði fyrir
því sé að handtaka valdi bandarísk-
um útsendurum „óþarfa hættu“.
Minnisblaðið er 16 síður og ber
yfirskriftina „Lagagrundvöllur ban-
vænna aðgerða á hendur bandarísk-
um ríkisborgara sem er háttsetur
aðgerðaforingi hjá Al-Qaeda eða
skyldu afli“.
Þetta minnisblað þykir minna á
annað minnisblað, sem John Yoo,
sem starfaði í dómsmálaráðuneyt-
inu í tíð Bush, skrifaði á sínum tíma
þess efnis að harkalegar aðferðir
við yfirheyrslur væru löglegar.
„Ég held að lekinn á minnis-
blaðinu veki menn af svefni,“ sagði
Christopher Anders, lagalegur
ráðunautur ACLU, og bætti við að
margir hefðu ekki vænst þessa af
Obama. „Undanfarnir dagar hafa
verið eins og afturhvarf til valda-
tíma Bush.“
Um miðjan febrúar sagði Obama
að Bandaríkjamenn þyrftu meira en
sín orð til að fá fullvissu um að
hann væri ekki að misnota vald sitt
með því að beita ómönnuðum loft-
förum. „Ég er ekki þeirrar hyggju
að forsetinn hafi vald til þess að
gera það sem honum eða henni
sýnist þegar þeim sýnist í dulbún-
ingi baráttu gegn hryðjuverkum,“
sagði hann. Í Hvíta húsinu ríkir aft-
ur á móti enginn vafi um réttmæti
leynistríðsins. „Við gerum þessar
árásir vegna þess að þær eru nauð-
synlegar til að draga úr viðvarandi,
raunverulegum ógnum, stöðva ráða-
brugg, koma í veg fyrir árásir í
framtíðinni og, enn og aftur, að
bjarga bandarískum mannslífum,“
sagði Jay Carney, talsmaður forset-
ans, þegar minnisblaðið var birt.
„Þessar árásir eru löglegar, þær
eru siðlegar og þær eru skyn-
samlegar.“
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI
www.gengurvel.is
PRO•STAMINUS
ÖFLUGT NÁTTÚRULEGT EFNI FYRIR KARLMENN
Pissar þú oft á
nóttunni?
Er bunan orðin
kraftlítil?
PRO•STAMINUS er spennandi nýjung sem er fyrst og fremst
ætluð karlmönnum sem hafa einkenni góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli sem getur valdið vandræðum við þvaglát.
PRO•STAMINUS fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða
P
R
E
N
T
U
N
.IS