Morgunblaðið - 06.04.2013, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2013
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, for-
stöðumaður Félagsvísindastofn-
unar HÍ, segir aðferðafræði í
könnunum geta að einhverju leyti
skýrt fylgissveiflur milli flokka
en flestar kannanir hafi þó sýnt
mikla uppsveiflu Framsóknar-
flokksins.
Erfiðara að ná til háskóla-
menntaðra einstaklinga
„Fréttablaðið og Stöð 2 taka
sína könnun á stuttum tíma en
það er ótrúlegur toppur sem
kemur hjá Framsókn. Það er erf-
itt að segja til um hvort þetta sé
eitthvert einstakt frávik. Slíkt
gerist öðru hvoru, jafnvel þótt
sömu aðferðafræði sé beitt, en ég
tel rétt að bíða og sjá hvernig
næstu skoðanakannanir koma
út,“ segir Guðbjörg Andrea.
Hún bendir á að í könnun
Fréttablaðsins sé eingöngu spurt
í síma, og á stuttum tíma, og það
geti haft sín áhrif. Fólk sem sé
mikið heima við sé líklegra til að
svara í slíkum könnunum og það
sé yfirleitt fólk með minni mennt-
un. Erfiðara sé oft að ná til há-
skólamenntaðra.
„Annars er þetta mjög sérstök
staða sem er komin upp. Fram-
sókn er að taka fylgi frá öllum
flokkum og staða heimilanna er
greinilega mjög ofarlega í huga
fólks,“ segir Guðbjörg Andrea og
bendir á að í fyrri kosningum
hafi Framsóknarflokkurinn yfir-
leitt fengið meira fylgi en kann-
anir hafi sýnt. Þessu hafi verið
öfugt farið með Sjálfstæðisflokk-
inn, þar hafi fólk áður verið
ákveðnara í afstöðu sinni til
flokksins.
„Þetta virðist eitthvað vera að
breytast, hvað sem veldur,“ segir
Guðbjörg Andrea. bjb@mbl.is
Rétt að bíða eftir næstu könnun
Háskólinn Guðbjörg Andrea Jóns-
dóttir stýrir Félagsvísindastofnun.
Morgunblaðið/G.Rúnar
„Þegar maður sér svona niður-
stöðu myndi maður vilja fá aðra
könnun til að sjá hvort þetta sé
áframhaldandi leitni í þessa átt eða
frávik,“ segir Þorlákur Karlsson,
deildarforseti í HR og rannsókna-
stjóri hjá Maskínu, um skoðana-
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2, sem sýndi 40% fylgi Fram-
sóknarflokksins og fylgishrun
flestra annarra flokka en Pírata.
„Kannanir dagblaða á stjórn-
málaskoðunum eru í sjálfu sér ekk-
ert svo frábrugðnar niðurstöðum
rannsóknafyrirtækja. Ég myndi
því ekki vilja segja að þetta væri
frávik fyrr en ég sé næstu kann-
anir,“ segir Þorlákur, sem starfaði
um árabil hjá Gallup.
Hann bendir á að rannsóknafyr-
irtækin beiti að mörgu leyti svip-
uðum aðferðum en útfærslurnar
séu mismunandi. Aðferðafræði
Fréttablaðsins og Stöðvar 2 skeri
sig hins vegar frá.
„Það efast enginn um að Fram-
sóknarflokkurinn er geysisterkur
núna, um leið og Sjálfstæðisflokk-
urinn er undarlega lítill. Fyrir að-
ferðafræðina eru þetta spennandi
tímar og fróðlegt að sjá hver úr-
slitin síðan verða.“
Þorlákur segist hafa séð það
gerast margoft að fyrir kosningar
hafi dagblöð, sem hringi út á
tveimur dögum, farið nokkuð ná-
lægt úrslitum. „Það segir manni að
þeir sem eru ekki heima, eða erfitt
er að ná í, virðast hafa svipaðar
skoðanir í stjórnmálum og þeir
sem auðvelt er að ná í. Blöðin hafa
því staðið sig furðanlega vel, en ég
myndi vilja sjá næstu könnun áður
en hægt er að túlka þetta betur,“
segir Þorlákur Karlsson.
bjb@mbl.is
Spennandi fyrir aðferðafræðina
Kannanir Þorlákur Karlsson starf-
ar hjá HR og Maskínu í dag.
Morgunblaðið/Golli
Náðu þé
r í
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
01.06. Sveinstindur
08.06. Fimmvörðuháls: Fyrsta ferð af fimm
08.06. Þingvallaþjóðgarður
08.06. Skáldaganga: Í túninu heima
08.06. Vorganga Hornstrandafara
09.06. Hringferð: Hafnarfjall
13.06. Almannagjá endilöng Ferðafélag barnanna
14.06. Félagsferð í Hornbjargsvita
15.06. Toppahopp á Snæfellsnesi
17.06. Leggjabrjótur: Forn þjóðleið
19.06. Laugavegurinn: Fyrsta ferð af fjórum
21.06. Sumarsólstöðuganga á Botnsúlur
22.06. Árbókarferð um Norðausturland
22.06. Toppahopp í Vestmannaeyjum
23.06. Jónsmessa og jóga í Hlöðuvík
23.06. Háhitasvæði á Reykjanesskaga
24.06. Álfar og tröll á Jónsmessu Ferðafélag barnanna
25.06. Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði
26.06. Björg í bú: Látrabjarg-Rauðisandur-Hnjótur
27.06. Hornbjargsviti: Fyrsta ferð af fjórum
28.06. Vatnaleiðin
29.06. Háhitasvæði Mývatnssveitar og Öskju
30.06. Söguferð um Árneshrepp
Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is
Ferðafélag Íslands
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
FÍ ferðir í júní
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Reykjavík • Skútuvogi 1 • Sími: 562 4011
Akureyri • Draupnisgata 2 • Sími: 4600 800
Reyðarfjörður • Nesbraut 9 • Sími: 470 2020