Morgunblaðið - 12.04.2013, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. A P R Í L 2 0 1 3
Stofnað 1913 84. tölublað 101. árgangur
FJÖLBREYTT EFNI UM
STÓRA DAGINN Í
40 SÍÐNA BLAÐAUKA
BRÚÐKAUP NÝ LEIKSKÁLD FÁ TÆKIFÆRI TIL
AÐ BLÓMSTRA
STUTTVERK FRUMSÝND 55
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Eins og þetta lítur út núna er það allt eins líklegt
og í raun líklegra vegna þess að Sjálfstæðisflokk-
urinn mælist með aðeins um 20% fylgi. Slíka
niðurstöðu verður erfitt að túlka sem augljóst
ákall um það sem þarf nákvæmlega núna sem er
fleiri tækifæri, meiri ráðstöfunartekjur, lægri
skattar og sátt um uppbyggingu á sem flestum
sviðum,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurð hvort hún
telji meiri líkur eða minni á að vinstristjórn verði
mynduð eftir komandi alþingiskosningar 27. apríl.
Spurð hvort meint óánægja með landsfund
skýri fylgistap í könnunum rifjar Hanna Birna
upp að sú þróun hafi hafist eftir Icesave-dóminn.
Ofmat að landsfundur hafi breytt miklu
„Ég held að menn ofmeti þátt landsfundar í
þessum breytingum … Ég held að það sé ofmat að
telja að það hafi breytt miklu, enda sjáum við ef
við skoðum skoðanakannanir að stærsta fylgis-
breytingin verður í kringum Icesave-dóminn í
janúar. Þá hefst sú þróun að fylgið hefur verið að
fara frá Sjálfstæðisflokknum yfir á Framsóknar-
flokkinn,“ segir Hanna Birna sem kveðst aðspurð
vilja vinna að því í gegnum skattaafslátt og sér-
eignarsparnað að höfuðstóll lána lækki um 20% á
næsta kjörtímabili. »22-23
Meiri líkur á vinstristjórn
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins ræðir fylgistap í könnunum að undanförnu
Morgunblaðið/Kristinn
Varaformaður Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Fjölmennt lið slökkviliðsmanna
barðist við elda sem loguðu á þrem-
ur stöðum í miðborg Björgvinjar í
Noregi í gærkvöldi. Kona gaf sig
fram við lögreglu en hún sagðist
bera ábyrgð á eldsvoðanum.
Eldurinn náði að breiða vel úr sér
á tveimur stöðum; í kirkju sem til-
heyrir safni og í gömlu timburhúsi.
Þriðji eldurinn varð minniháttar.
Stutt var á milli bygginganna þar
sem eldarnir loguðu. Slökkviliðið
hefur slökkt eldinn. Ekki er ljóst
hversu mikið tjón hefur orðið. Mikil
mildi þykir að enginn slasaðist.
Slökkvistarf reyndist erfitt þar sem
götur borgarinnar í þessum gamla
hluta eru mjóar.
Ljósmynd/Bergensavisen
Björgvin Slökkviliðið að berjast við eldinn
í gærkvöldi. Mikil hætta skapaðist.
Brennuvargur gaf
sig fram í Björgvin
Sigurður Lín-
dal lagaprófess-
or segir að ef
verjendur geti
sagt sig frá saka-
málum með þeim
afleiðingum að
meðferð mál-
anna frestist geti
það auðveldlega
hindrað fram-
gang réttvísinnar. „Krafan um að
lögmenn taki að sér verjendastörf
yrði merkingarlaus ef menn gætu
sagt sig frá málinu á hvaða tíma
sem er. Það gengur bara ekki upp,“
segir Sigurður. Gestur Jónsson og
Ragnar Hall, verjendur Sigurðar
Einarssonar og Ólafs Ólafssonar,
mættu ekki við upphaf aðal-
meðferðar Al Thani-málsins í Hér-
aðsdóm Reykjavíkur í gær og var
aðalmeðferðinni því frestað. »19
Getur hindrað fram-
gang réttvísinnar
Sigurður Líndal
Þorsteinn Kári
Bjarnason, yfir-
maður Bókasafns
Vestmannaeyja,
telur mjög lík-
legt að hægt sé
að finna merki-
leg gögn um
sögu Íslands í
skjalasafni Páfa-
garðs. „Í skjala-
safninu gætu verið leynileg gögn
frá Íslandi sem send voru beint til
páfa,“ segir Þorsteinn Kári. Hann
er viss um að fengist fé til að senda
íslenskan fræðimann til dvalar í
Róm til að rannsaka málið myndi
kaþólska kirkjan á Íslandi reyna að
greiða götu hans. »4
Óþekkt gögn um
Ísland í Páfagarði?
Úr safni Páfagarðs.
Kvenfélagskonur í Eyjafjarðarsveit eru þegar
farnar að undirbúa árlega handverkshátíð, sem
verður á Hrafnagili í ágúst. Í fyrra skreyttu þær
traktor með prjónlesi en prjóna nú flíkur á þrjár
kýr á bænum Hvassafelli; Kotasælu, Önnubellu
og Kollu. Kýrnar munu spígspora á hátíðinni í
sumar og voru látnar máta klæðin í fjósinu í gær.
Konurnar voru stoltar af verkinu og unga fólk-
inu fannst bæði klæðin og kýrnar spennandi.
Konur í Eyjafjarðarsveit byrjaðar að undirbúa handverkshátíðina í ágúst
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kýrnar á
Hvassafelli
í sparifötin
Skúli Hansen
Rúnar Pálmason
„Við eigum örugglega eftir að skoða
þetta og hvað liggur þarna að baki.
Við lítum það auðvitað alvarlegum
augum að færast úr appelsínugulum
yfir í rauðan,“ segir Dagbjört S.
Bjarnadóttir, oddviti sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps, spurð út í skýrslu
Umhverfisstofnunar þar sem Mý-
vatn er flokkað undir rauð svæði, þ.e.
svæði sem eiga á hættu að tapa
verndargildi sínu eða hafa tapað því
að hluta til.
Að sögn Dagbjartar hefur sveitar-
stjórnin ekki haft aðstöðu til þess að
skoða málið. Hún bendir á að
sveitarstjórnin hafi fundað í fyrra-
dag og að málið hefði eflaust verið
rætt þar ef menn hefðu vitað af því.
Hins vegar hafi skýrslan ekki verið
birt á netinu fyrr en eftir að Morgun-
blaðið greindi frá henni í gær.
Erfitt að spá um áhrif
Grunnvatn við norðanvert Mývatn
er talsvert mengað af næringarefn-
um sem koma fyrst og fremst frá
byggðinni, að sögn Árna Einarsson-
ar, lífrræðings og forstöðumanns
Náttúrurannsóknastöðvarinnar við
Mývatn. Þá segir hann erfitt að
segja til um áhrif aukins styrks nær-
ingarefna. „Það er þó erfitt og nán-
ast ómögulegt að spá um áhrifin.
Þetta er bara eitthvað sem menn
gera ekki lengur,“ segir Árni.
Litið alvarlegum augum
Grunnvatn við norðanvert Mývatn talsvert mengað af næringarefnum að sögn
líffræðings Sveitarstjórnin frétti af skýrslu Umhverfisstofnunar í fjölmiðlum
MMikið álag á Mývatn og Laxá »6