Morgunblaðið - 12.04.2013, Síða 10

Morgunblaðið - 12.04.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013 GALLABUXUR FYR IR ALLAR KONUR MIK I L TEYGJA OG GÓÐ SN IÐ EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þ að er gaman að hitta fimm nemendur í stíl- istafræðum sem hafa jafn ólíkan stíl og þeir eru margir. Enda sam- mælist hópurinn um að Íslendingar séu að verða æ óhræddari við að klæða sig eftir því hvað hverjum og einum finnst flott. Hópurinn stund- ar námskeið í svokölluðu Stílista academy innan Fashion Academy Reykjavík skólans. Námið er tíu vikur og keppast nemendur nú við að undirbúa tískusýningu sem er lokaverkefni þeirra í námskeiðinu. Skapar tengslanet Yngsti nemandinn í hópnum er enn í grunnskóla og sá elsti rétt rúmlega þrítugur. En öll eiga þau sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á öllu því sem viðkemur tískuheim- inum. Á námskeiðinu er lögð rík áhersla á samvinnu milli deilda og að nemendur vinni að raunveruleg- um og lifandi verkefnum. Þannig fá þeir nasaþefinn af því að vinna sem stílistar. En með samvinnu stílista-, ljósmyndara- og förðunarfræðinema skapast einnig tengslanet sem nem- endur geta nýtt sér að námi loknu. Nemendur læra m.a. tískusögu þar sem farið er yfir helstu tískuein- kenni síðastliðna áratugi og verkefni unnið í kringum það. „Það er mjög skemmtilegt að þekkja um leið tískuna t.d. þegar maður horfir á bíómyndir. Ég var t.d. að horfa á Gangster Squad um daginn og þekkti þar um leið tískuna frá sjötta áratugnum. Eins er gaman að sjá hvað tískan kemur alltaf aftur eins og t.d. legghlífarnar og skæru litirnir núna fyrir sumarið, “ segir Sigurbjörg. Einnig er nemendum kennt að stílisera útlit eftir vaxtarlagi fólks og þeim litum sem þeim henta best. „Fiona Mary Cribben, sem er kennari í hönnunar- og arkitekt- úrdeild Listaháskóla Íslands, var gestakennari í þessum áfanga. Hún kenndi okkur t.d. hvernig mætti út- færa einfalda skyrtu á tvo ólíka vegu sem var mjög skemmtilegt og kom flott út,“ segir Anna. „Það var líka gaman að heyra frá henni hvað hún hefur verið að gera og hvað tískan er vítt svið. Hún hefur t.d. hannað föt fyrir tölvu- leiki,“ segir Sigurbjörg og Anna Dóra segir að fólk tengi ekki endi- lega stílista við slíkt en starfið geti t.d. snúist að því að stílisera persón- ur í bíómyndum og auglýsingum. Starfa sjálfstætt Kennsla fer fram einu sinni í viku en stærstur hluti námsins fer þess á milli fram utan skólans og þurfa nemendur því að starfa mjög sjálfstætt og skipuleggja sig sjálfir. Ferskir stílistar framtíðarinnar Innan Fashion Academy Reykjavíkur er starfandi námsbraut fyrir stílista. Sjö nemendur stunda þar nám eins og stendur og vinna nú hörðum höndum að út- skriftarsýningu sinni. Þema sýningarinnar er „street style“ í bland við skæra liti og sjá nemendur um alla skipulagningu sýningarinnar frá a til ö. Morgunblaðið/Ómar Sýning Að mörgu er að hyggja, m.a. að velja fatnað á fyrirsæturnar. Á fésbókarsíðu menningarhússins Sláturhússins á Egilsstöðum er hægt að fylgjast með öllu sem þar fer fram. Á morgun laugardag hefst þar stutt- myndahátiðin Andrá og verður hún í heila viku, 12.-19. apríl. Stutt- myndaveislu þessarar bjóða vinir Andra Ingvarssonar til, en hann er ungur kvikmyndagerðarmaður sem í átta ár hefur háð baráttu við krabba- mein. Með aðstoð skólafélaga hans úr Kvikmyndaskóla Íslands, í sam- starfi við Sláturhúsið og Héraðs- prent, er kvikmyndaveislan haldin, til styrktar Andra. Sjá dagskrá á síðu. Vefsíðan www.facebook.com/SlaturhusidMenningarhus Morgunblaðið/Árni Sæberg Kvikmyndagerð Er skemmtileg listgrein og heillar margt ungt fólk. Stuttmyndaveisla fyrir Andra Hljómsveitin The Saints of Boogie Street spilar á Græna hattinum Akur- eyri í kvöld. Hljómsveitin verður einn- ig á flakki um landið í sumar til að gleðja landann. The Saints of Boogie Street er „tribute“-hljómsveit sem sérhæfir sig í lögum eftir Leonard Cohen. Gaf hljómsveitin út geisladisk síðasta vor með lögum meistarans. Meistarinn sjálfur Leonard Cohen setti sig í samband við hljómsveitina stuttu eftir útgáfu disksins þar sem hann lýsti yfir ánægju með fallegar útsetningar. Endilega … … farið á Græna hattinn í kvöld The Saints of Boogie Street. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Gróttudagurinn, árlegur fjölskyldudagur í Gróttu, verður haldinn á morgun, laugardaginn 13. apríl, klukkan 13-15. Dagskráin hefst með smiðju í Fræðasetrinu, sem lista- maðurinn Ásdís Kalman stýrir. Smiðjan ber yfirskriftina „Gerðu þinn eigin Gróttuvita“ og eru fjölskyldur hvattar til að taka þátt í henni saman. Tilvalið er að mæta aðeins fyrir klukkan 13 og byrja á að príla upp í vitann, skyggnast yfir og setja sig í spor vitavarðanna. Í Fræðasetrinu verður varpað ljósi á fyrsta vitavörð Gróttu, Þorvarð Einarsson, en 150 ár eru liðin frá fæðingu hans. Þá munu léttir og lif- andi djasstónar taka á móti Gróttugestum þegar þeir ganga út í eyju, en á leiðinni er tilvalið að safna gersemum úr fjörunni; skeljum, kuðungum, kröbbum og fleiru, sem hægt verður að rannsaka með líffræðinemum úr HÍ í sér- stöku rannsóknarsetri. Enginn ætti að verða svangur því Sóroptimistaklúbbur Seltirninga selur gómsætt vöfflu- kaffi en ágóðinn rennur til góðgerðarmála, einnig verða félagar úr Rótarý á staðnum og bjóða börnum upp á góð- gæti og segja fróðleiksþyrstum gestum frá uppbyggingu bryggjunnar í Gróttu sem nú er í fullum gangi. Frekari upplýsingar um dagskrá fjölskyldudagsins má nálgast á www.seltjarnarnes.is. Gróttudagurinn Fræðsla og fjör fyrir alla fjölskylduna Fjöruferð Á Gróttu er margt um að vera fyrir yngstu kyn- slóðina og foreldrana líka. Gaman er að sulla í fjörunni. Morgunblaðið/Ómar Nemar Frá vinstri, Sigurbjörg, Anna Kvaran, Anna Dóra, Daníel Kristinn og Emilía eru samnemendur með brennandi áhuga á tískuheiminum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.