Morgunblaðið - 12.04.2013, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.04.2013, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013 Frambjóðendur ræðamálin Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sitja fyrir svörum í Kópavogi. Fundarstaður:Hlíðarsmári 19, Kópavogi Fundartími: Laugardagur 13. apríl kl. 10:00 til 12:00 Framsögumenn eru Karen Elísabet Halldórsdóttir, Óli Björn Kárason og Vilhjálmur Bjarnason. Fundarefni: Skuldavandi heimilanna og lausnir XD. Góðar veitingar í boði – Allir velkomnir. Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi NÁNARÁ 2013.XD.IS Ágúst Ingi Jónsson Erlingur Thoroddsen „Það hefur verið mikið af stórum þorski í vetur, ég hef ekki fengið þá stærri á þessum slóðum,“ sagði Ön- undur Kristjánsson, skipstjóri á Þor- steini GK 15 frá Raufarhöfn, í samtali í gær. „Við fengum til dæmis rosaleg- an dusa í síðustu viku, stóran og þungan, sem reyndist vera 41,5 kíló blóðgaður.“ Um var að ræða 146 sentimetra hrygnu og hrognasekk- urinn einn og sér vigtaði 8,5 kíló. Undanfarið hafa skipverjar á Kristni ÞH 163 einnig fengið tölu- vert af þorski sem vegur yfir 40 kíló. Ekki þarf nema 25 slíka í tonnið! Önundur ætti að hafa samanburðinn þegar hann talar um óvenju stóran fisk því fyrr í vetur varð hann áttræður og fyrst reri hann til fiskjar frá Raufarhöfn fyrir 73 ár- um, þá sjö ára gamall. Þorsteinn GK er aldursforseti íslenskra fiskiskipa, rúmlega 50 tonna eikarbátur, smíð- aður 1946. Bara skattarnir sem hækka Aflabrögð hafa verið ágæt frá Raufarhöfn undanfarið og Önundur segir vertíðina hafa gengið þokkalega í vetur. Þeir eru á netum og hafa yfir- leitt verið með sex trossur. Aflinn yfir daginn hefur gjarnan verið um fjögur tonn. Hann segir að í nokkurn tíma hafi verið leiðindaveltingur og veru- lega slæmt í sjóinn á miðvikudaginn. „Þetta er skárra í dag, hvað sem verð- ur,“ sagði Önundur, en þeir voru þá að veiðum norður úr Grenjanesi, austur undir Langanesi. Hann segist ekki eiga mikið eftir af þorskkvótanum, en eitthvað af ufsa og ýsu, sem vonandi verði hægt að skipta fyrir þorsk. „Annars er kvótinn alltof lítill og svo hefur verðið lækkað rosa- lega síðan í fyrra. Það eru bara skatt- arnir sem hækka,“ segir Önundur. „Hef ekki fengið þá stærri“  Bátar frá Raufarhöfn hafa veitt mikið af stórum þorski að undanförnu  „Fengum rosalegan dusa í síðustu viku,“ segir Önundur á Þorsteini GK 15 Ljósmynd/Júlíus Bergsson 25 í tonnið Ríkharður Reynisson og félagar hans á Kristni ÞH hafa fengið nokkra 40 kílóa þorska. Önundur Kristjánsson Ljósmynd/Viðar Friðgeirsson Golþorskur Einar Sigurðsson, gæðastjóri GPG á Raufar- höfn, höndlar stórþorskinn sem reyndist vera 41,5 kíló. Náttúrupassi til að fjármagna fram- kvæmdir á ferðamannastöðum, göngustíga- og útsýnispallagerð fari á samgönguáætlun og brýnt er að auka fjármagn til skipulagsmála sveitarfélaga. Þetta eru ályktanir í þremur liðum sem samþykktar voru á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar í gær. „Við viljum skoða möguleika á náttúrupassa frekar en t.d. gisti- náttaskatt sem nú er í gildi. Okkur þykir eðlilegt að þeir borgi sem njóti. Með þessum hætti yrði hægt að koma betur til móts við sveitarfélögin sem fá alls ekki nógu miklar tekjur af ferðamannstöðum en þurfa samt sem áður að standa straum af uppbygg- ingu á svæðinu,“ segir Árni Gunn- arsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, um ályktanir sem samþykktar voru á fundinum. Skortur á uppbyggingu Fundarmenn voru á einu máli um, að mikil fjölgun ferðamanna til lands- ins kalli á endurskoðun innviða ferða- þjónustunnar. Við blasi að náttúran, sem er eitt helsta aðdráttarafl Ís- lands, líði fyrir skort á uppbyggingu á ferðamannastöðum. Þá vilja samtökin að inn á sam- gönguáætlun komi framkvæmdir við göngustíga og útsýnispalla. „Núna eru t.d. reiðhjólastígar og reiðvegir inni á samgönguáætlun og því ættu þessir vegir ekki að vera þar á sama hátt?“ segir Árni og ítrekar að þess- um ályktunum verði fylgt eftir. thorunn@mbl.is Þeir borgi sem njóti Náttúra Helsta aðdráttaraflið líður fyrir skort á uppbyggingu.  Náttúrupassi og útsýnispallar á samgönguáætlun Morgunblaðið/Kristinn Anna Lilja Þórisdóttir Skúli Hansen Nýr samningur á milli Sjúkra- trygginga Íslands og Tannlækna- félags Íslands um tannlækningar fyrir börn var kynntur og undirrit- aður í velferðarráðuneytinu síðdeg- is í gær. Að sögn Kristínar Heimisdóttur, formanns Tannlæknafélags Íslands, er samningurinn í meginatriðum sá hinn sami og þau drög sem mbl.is greindi frá í lok síðasta mánaðar. Í drögunum var meðal annars gert ráð fyrir að samningurinn kæmi til framkvæmda á næstu sex árum og að loknum þeim tíma muni allir ár- gangar barna til átján ára aldurs njóta fullrar endurgreiðslu á tann- læknaþjónustu að frádregnu komu- gjaldi í samræmi við það fyrir- komulag sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Börn fá heimilistannlækna Í tilkynningu frá velferðarráðu- neytinu segir að framvegis muni börn hafa sinn eigin heimilistann- lækni en hlutverk hans er meðal annars það að boða börn í reglulegt eftirlit, sjá um forvarnir og aðrar nauðsynlegar tannlækningar þeirra. „Þetta er gríðarleg breyting og stórt skref í átt að bættri tann- heilsu á Íslandi,“ sagði Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlækna- félags Íslands, í samtali við mbl.is um hálfþrjúleytið í gær, stuttu áður en samningurinn var undirritaður. Síðasti samningur á milli Tann- læknafélags Íslands og Trygg- ingastofnunar rann út fyrir 15 ár- um, árið 1998, en síðan þá hafa tannlæknar starfað að mestu án samnings. Í nóvember á síðasta ári lagði Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra til að tannlækningar barna yrðu niðurgreiddar að fullu og hlaut sú tillaga samþykki ríkis- stjórnarinnar en í kjölfarið hófust samningaviðræður Sjúkratrygginga við Tannlæknafélag Íslands. Sátt Guðlaug Björnsdóttir frá SÍ, Guðbjartur Hannesson og Kristín Heimisdóttir, formaður tannlækna. Samið um tann- lækningar barna  Öll börn munu fá endurgreiðslur Það kemur ekki á óvart að stór þorskur veiðist á vertíðinni því með minna veiðiálagi hefur tekist að byggja þorskstofninn upp. Fisk- urinn hefur í auknum mæli fengið að vaxa og hlutdeild stórþorsks hefur aukist eins og kom fram í niðurstöðum vorralls Hafrann- sóknastofnunar nýverið. Veiðibann er í gildi á helstu hrygningarstöðvum þorsks fyrir Suður- og Vesturlandi, en fyrir um hálfri öld var þorski mokað upp í þorskanót á þeim slóðum á hrygn- ingartímanum. Þá barst mikill afli á land og risaþorskar, 20-30 kíló að þyngd, voru algengir. Lengsta þorsk sem veiðst hefur hér við land og er skráður hjá Haf- rannsóknastofnun veiddu skipverj- ar á Hrafni GK í botnvörpu á Reykjanesgrunni í mars 1998. Hann mældist 186 sentimetra langur og reyndist vera 17 ára gamall, en ekki er getið um þyngd hans í gögnum Hafrannsókna- stofnunar. Í bók Gunnars Jónssonar, Ís- lenskir fiskar, frá árinu 1992, er getið um 181 sentimetra þorsk sem veiddist á línu í Miðnessjó í apríl 1941 og í júnílok 1992 veidd- ist 177 sm þorskur. Sá lengsti af́ Íslandsmiðum 186 sentimetrar HLUTDEILD STÓRÞORSKS HEFUR AUKIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.