Morgunblaðið - 12.04.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
FRAMÚRSKARANDI
Þú veist það strax og þú sérð hann. Það er eitthvað sérstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin togar
í þig um leið. Útlitið hvíslar að þér einhverju um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er
á heimsmælikvarða, hvort sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl.
Leyfðu honum að heilla þig. Komdu og reynsluaktu Evoque.
Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
5
10
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
NÝR RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 8.790.000 KR.
4x4 - TD4 2,2 dísil - Eyðsla 6,5 l/100 km.*
OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ 12-16
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hvaða þýðingu hefur saga? Maður
hefur fyrst og fremst áhuga á því að
vita hvernig sagan gerðist. Sagan um
Raspútín hefur verið sveipuð dulúð
en nú eru komin fram gögn svo hægt
er að segja hann á sannferðugri hátt
en áður,“ segir Guðmundur Ólafsson,
hagfræðingur og lektor við Háskól-
ann á Bifröst.
Guðmundur heldur fyrirlestur í
Snorrastofu nk. þriðjudagskvöld um
munkinn dularfulla, Grígorí Raspút-
in, og hrun rússneska keisaradæm-
isins. Fyrirlesturinn er haldinn til
minningar um Harald Blöndal hrl.
sem var mikill áhugamaður um sögu
og vel að sér um aðalsættir í Evrópu.
„Ég var við nám í Sankti Péturs-
borg sem þá hét reyndar Leníngrad.
Fyrsta borgin sem maður kemur til
sem ungur maður hefur áhrif á
mann,“ segir Guðmundur um áhuga
sinn á sögu Rússlands og hinnar
sögufrægu borgar, St. Pétursborgar,
sérstaklega. Hann hefur haldið fyr-
irlestra í karlaklúbbum og fyrir rúss-
neskunema við Háskóla Íslands.
„Þetta hefur verið að malla í mér.
Svo var það fyrir áeggjan Óskars
Guðmundssonar sagnfræðings að
farið var að ræða um Raspútín. Það
er nokkuð um liðið en við erum svo
heppnir að síðan hafa komið fram
nýjar upplýsingar um Raspútín og
hvernig dauða hans bar að.“
Flestir sem fjallað hafa um sögu
Rússlands hafa litið svo á að komm-
únisminn hafi verið fyrsta skrefið í
örlögum þjóðarinnar. Guðmundur
segist alltaf hafa verið öðruvísi
stemmdur. Byltingin hafi verið loka-
atriði í hörmulegri þróun. „Raspútín
er góð táknmynd fyrir þá skelfilegu
þróun sem varð. Keisaraættin varð
ófær um að taka á nútímanum. Í upp-
hafi 20. aldarinnar var Rússland orð-
ið iðnveldi en 80% íbúanna voru
ómenntaðir bændur sem bjuggu við
lénsveldi. Það fer ekki saman.“
Grígorí Raspútín var munkur
austan úr Síberíu og kom sér í mjúk-
inn hjá keisarafjölskyldunni en
Nikulás II. Rússlandskeisari og
Alexandra Fjodorovna keisaraynja
höfðu bæði áhuga á kukli og dul-
speki. Raspútín læknaði Alexei
erfðaprins af köstum vegna dreyra-
sýki og þau litu eftir það á hann sem
lífgjafa Rómanovættarinnar og keis-
araveldisins. Hann var sérstaklega
innundir hjá keisaraynjunni sem
hafði sterk tök á keisaranum. Ras-
pútín fór að ráðskast með heims-
veldið, réð og rak ráðherra. Guð-
mundur tekur fram í þessu sambandi
að Nikulás II hafi verið álitinn góður
einstaklingur en ekki vel fallinn til að
stjórna ríkinu.
Vildu bjarga Rússlandi
Keisaraynjan var þýsk og tor-
tryggð þegar Þjóðverjar og Rússar
tókust á í heimsstyrjöldinni fyrri og
það jók ekki á vinsældirnar að Ras-
pútín var tengdur skrítnum sér-
trúarsöfnuðum rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar þar sem
kynlífsorgíur voru meðal helgisiða.
Eignaðist Raspútín marga valda-
mikla óvini sem töldu nauðsynlegt að
drepa hann til að bjarga Rússlandi.
Þeim tókst það en ekki náðust mark-
miðin. Keisarinn sagði af sér, stofnuð
var bráðabirgðabyltingarstjórn og
fjölskyldan tekin af lífi.
Guðmundur ber saman frönsku
byltinguna og þá rússnesku. Í þeirri
fyrrnefndu er talið að 20 þúsund
menn hafi verið drepnir en í bylt-
ingu kommúnista í Rússlandi er
talið að 20 milljónir manna hafi
fallið, áður en Stalín tók til við sín-
ar hreinsanir. „Þessi sam-
anburður er ótrúlegur. Ég
hef verið að velta fyrir mér
ástæðum þessarar miklu
grimmdar. Að hluta til er
hennar að leita í því hvað
keisaraættin og aðallinn
hafði gert en einnig að
það var dauðasök í hug-
myndaheimi kommúnistanna
að vera á annarri skoðun.“
Greiðist úr dulúðinni um Raspútín
Guðmundur Ólafsson segir frá munknum dularfulla og hruni rússneska keisaradæmisins
Hreifst ungur af hinni sögufrægu borg, Santi Pétursborg, sögu hennar og Rússlands
Ljósmynd/Guðlaugur Óskarsson
Söguáhugi Guðmundur Ólafsson hagfræðingur heima í Breiðagerði.
„Ég fór að kenna á Bifröst
fyrir fimmtán árum og keypti
mér hús í Reykholtsdal. Ég
hef verið heimilisfastur hér
síðan um 2000,“ segir Guð-
mundur. Hann tekur fram að
hann hafi verið tengdur hér-
aðinu mun lengur, eða frá því
hann var í sveit í Deildar-
tungu sem unglingur og í
landsprófi í Reykholtsskóla.
Guðmundur býr í Breiða-
gerði sem er hús rétt hjá
Reykholti. „Séra Geir Waage
og Snorrastofa eru í lat-
ínuhverfinu en þar sem ég
bý eru verkstæði og
sjoppa og ég bý því í
„City“, fjármálahverf-
inu,“ segir Guð-
mundur.
Auk þess að
starfa sem lektor
við Háskólann á
Bifröst stjórnar
Guðmundur þættinum
Bubbi og Lobbi á sjón-
varpsstöðinni ÍNN,
með Sigurði G. Tóm-
assyni blaðamanni.
Býr í „fjár-
málahverfinu“
TENGDUR BORGARFIRÐI
Grígorí Jefemóvíts
Raspútín