Morgunblaðið - 12.04.2013, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi
í gær Gunnar Þ. Andersen, fyrrver-
andi forstjóra Fjármálaeftirlitsins,
fyrir brot gegn þagnarskyldu og
dæmdi hann til að greiða tvær millj-
ónir króna í sekt.
Þá var Þórarinn Már Þorbjörns-
son, fyrrverandi starfsmaður Lands-
bankans, sakfelldur fyrir brot í opin-
beru starfi og dæmdur til að greiða
eina milljón króna í sekt.
Undir miklu álagi
Gunnar var ákærður fyrir brot á
þagnarskyldu þegar hann hafði
frumkvæði að því að gögnum um
kaup Landsbankans á Bogmannin-
um, félagi Guðlaugs Þórs Þórðarson-
ar alþingismanns, var komið til
blaðsins DV í febrúar 2012. Frétt um
viðskipti Landsbankans og Guðlaugs
Þórs, sem byggðist á þessum gögn-
um, birtist í blaðinu í kjölfarið.
Bar Gunnar fyrir dómi, að hann
hefði verið undir miklu álagi í kjölfar
umfjöllunar um störf hans í frétta-
skýringaþættinum Kastljósi 17. nóv-
ember 2011. Sagðist Gunnar telja, að
sú umfjöllun hefði byggst á gögnum
sem hefði verið lekið úr Landsbank-
anum og að Guðlaugur Þór Þórðar-
son hefði komið þeim gögnum til
stjórnenda Kastljóss.
Í kjölfar umfjöllunar Kastljóssins
hefði stjórn Fjármálaeftirlitsins afl-
að tveggja lögfræðiálita um hæfi
hans til að gegna forstjórastarfinu.
Niðurstaða síðari álitsgerðarinnar
hefði verið sú að það gæti verið
óheppilegt að Gunnar gegndi starf-
inu áfram. Við þessar aðstæður hefði
hann leitað til Þórarins og beðið
hann að afla upplýsinga um viðskipti
Guðlaugs Þórs og Landsbankans.
Þórarinn bar fyrir dómi, að hann
hefði talið að Fjármálaeftirlitið væri
að hefja rannsókn á málinu. Hann
hefði aflað gagna og hringt í Gunnar,
sem bað hann að koma gögnunum til
Ársæls Valfells. Ársæll kom gögn-
unum síðan til DV að beiðni Gunn-
ars.
Alvarlegt trúnaðarbrot
Í niðurstöðu dómsins segir, að
Gunnar sé sakfelldur fyrir alvarlegt
trúnaðarbrot þegar hann gegndi
stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins
sem hafi það hlutverk að sjá til þess
að fjármálastarfsemi í landinu sé í
samræmi við lög og reglur. Hann
hafi þrátt fyrir það fengið Þórarin til
þess að rjúfa þagnarskyldu, sem á
honum hvíldi. Eðlileg viðbrögð af
hálfu Gunnars hefðu verið að beina
kæru til viðeigandi stjórnvalds ef
hann taldi að viðskiptin hefðu falið í
sér refsiverða háttsemi. Slíkur grun-
ur hefði ekki réttlætt að hann kæmi
trúnaðarupplýsingum um viðskiptin
á framfæri við fjölmiðil.
Þórarinn er dæmdur fyrir að
miðla trúnaðarupplýsingum í starfi
sínu hjá fjármálafyrirtæki en tekið
fram að ekki hafi komið fram í mál-
inu að hann hafi vitað að þeim yrði
komið til fjölmiðils. Honum var sagt
upp starfi sínu vegna málsins.
Sakfelldur fyrir brot
gegn þagnarskyldu
Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins og fyrrverandi
starfsmaður Landsbankans dæmdir til að greiða sekt
Braut þagnarskyldu Gunnar Þ. Andersen í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar
málið gegn honum var þingfest á síðasta ári. Dómur féll í málinu í gær.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stjórn Fjármálaeftirlitsins rak
Gunnar Þ. Andersen úr starfi
forstjóra í mars 2012. Var meg-
inástæðan sögð vera sú, að
Gunnar gæti ekki gegnt stöðu
sinni lengur vegna upplýsinga
um aðkomu hans að stofnun
aflandsfélaga á vegum Lands-
bankans þegar hann starfaði
hjá bankanum. Stjórnin kærði
einnig Gunnar til lögreglu
vegna ábendinga um að hann
kynni að hafa aflað sér trún-
aðarupplýsinga úr bankakerf-
inu með ólögmætum hætti.
Ríkissaksóknari gaf út ákæru á
hendur Gunnari og Þórarni í
ágúst á síðasta ári.
Uppsögn
og kæra
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
Geymslur Þjóðminjasafns Íslands í
Vesturvör í Kópavogi verða opnar
almenningi næstkomandi þriðjudag
og fimmtudag klukkan 12-14.
Þar eru um 350.000 gripir
geymdir en aðeins brot af gripum í
vörslu Þjóðminjasafns er til sýnis í
safnhúsinu við Suðurgötu.
Fram kemur í tilkynningu frá
Þjóðminjasafninu að munirnir í
geymslunum séu af ýmsu tagi. Þar
séu munir sem hafi fundist í jörðu
við fornleifauppgröft, kirkjugripir,
textílar, skart, handverk, leikföng,
umbúðir og ílát, verkfæri og hús-
gögn svo nokkuð sé nefnt. Ljós-
myndasafn Íslands er einnig með
aðstöðu sína í Vesturvör en tæplega
5 milljónir mynda eru til á safninu.
Þess er minnst í ár að 150 ár eru
liðin frá stofnun Þjóðminjasafnsins.
Geymsla Starfsfólk Þjóðminjasafnsins
mun sýna almenningi geymslur safnsins.
Geymslur Þjóðminja-
safnsins opnaðar
Öryrkjabandalag
Íslands hefur boð-
að til opins bar-
áttufundar um
kjör öryrkja á
laugardaginn kl.
14-16:30 á Hilton
Reykjavík Nor-
dica-hótelinu.
Guðmundur
Magnússon, for-
maður ÖBÍ, mun hafa framsögu um
þróun bóta örorkulífeyrisþega.
Segir ÖBÍ að meðaltekjur öryrkja
fyrir skatta hafi hækkað um 4,7%
sl. fjögur ár en launavísitala hafi á
sama tíma hækkað um 23,5%.
Fulltrúar flokka sem bjóða fram
til Alþingis sitja fundinn og svara
spurningum um hvernig þeir ætla
að bæta kjör öryrkja.
Baráttufundur Ör-
yrkjabandalagsins
Guðmundur
Magnússon
Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís-
lands heldur í dag fund um smáríki
á evrusvæðinu í kreppu.
Peadar Kirby, prófessor em-
eritus í alþjóðastjórnmálum og op-
inberri stjórnsýslu og gestaprófess-
or við stjórnmálafræðideild HÍ,
heldur þar fyrirlestur um þróun
mála á Írlandi undanfarið.
Fundurinn stendur yfir milli
klukkan 12 og 13 í fyrirlestrasal
132 í Öskju.
Ræða um smáríki í
kreppu á evrusvæði
STUTT
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgifiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Nýttu svalirnar allt árið um kring
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
Skjól
Lumon svalagler veitir skjól
gegn rigningu og roki. Mjög
einfalt er að opna svalaglerið
og renna því til og frá.
Hljóð- og hitaeinangrun
Svalaglerin veita hljóð- og hita-
einangrun sem leiðir til minni
hljóðmengunar innan íbúðar
og lægri hitakostnaðar.
Óbreytt útsýni
Engir póstar eða rammar
hindra útsýnið sem helst
nánast óbreytt sem og ytra
útlit hússins.
Auðveld þrif
Með því að opna svalaglerið
er auðvelt að þrífa glerið að
utan sem að innan.
Stækkaðu fasteignina
Með Lumon svalaglerjum má segja að þú stækkir fasteignina
þína þar sem þú getur nýtt svalirnar allan ársins hring.
hefur svalaglerin fyrir þig!