Morgunblaðið - 12.04.2013, Síða 33
UMRÆÐAN 33Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
Árið 2000 tilkynntu
Bill Clinton og Tony
Blair sameiginlega að
fyrsta erfðamengi
mannsins hefði verið
raðgreint. Meira en
áratug tók að ljúka
þessu gríðarlega
stóra verkefni og
kostnaður við það er
nú talinn hafa numið
um þremur millj-
örðum dollara (375
milljörðum króna). Þessu er rétti-
lega lýst sem einhverju mikilvæg-
asta vísindaafreki mannkyns sem
markaði tímamót í lífvísindum.
Margar góðar ástæður voru fyr-
ir því að ráðast í þetta stóra verk-
efni á sínum tíma. Með erfða-
mengi mannsins í hendi var hægt
að öðlast dýpri skilning á líffræði
og ennfremur erfðum algengra
sjúkdóma og þannig þróa nýjar
meðferðir og lyf gegn sjúkdómum.
Annar stór ávinningur var mögu-
leikinn á einstaklingsbundnum
lyfjum og læknismeðferðum þar
sem erfðir eru hafðar að leið-
arljósi við meðhöndlun sjúkdóms-
ins. Brátt kom þó í ljós að erfðir
algengra sjúkdóma voru flóknari
en flestir höfðu spáð. Nýju lyfin
og persónulegu læknismeðferð-
irnar hafa því ekki orðið eins fljótt
að veruleika og sumir vís-
indamenn gerðu upphaflega ráð
fyrir. Nú eru þó teikn á lofti um
að það muni brátt breytast.
Á undanförnum árum hefur orð-
ið önnur, en þó hljóðlátari, bylting
í erfðafræði. Þessi bylting hefur
verið knúin áfram af gríðarlegum
tækniframförum í raðgreiningu
erfðamengja. Kostnaður við að
raðgreina einstök erfðamengi ein-
staklings er nú u.þ.b. 5.000 doll-
arar (625 þús. kr.) og það tekur
innan við viku að ljúka greining-
unni. Með því aðeins að greina
breytilega hluta erfðaefnis ein-
staklinga er hægt að fá mjög
heildstæða mynd af erfðamenginu
fyrir mun minni upphæð, eða 99
dollara (12.500 kr.), sem er það
verð sem líftæknifyrirtækið
23andme (https://
www.23andme.com/) tekur fyrir að
erfðagreina einstakling. Þetta er
ótrúlegt í ljósi kostnaðarins fyrir
13 árum þegar Bill Clinton og
Tony Blair tilkynntu hið mikla vís-
indaafrek. Þessi bylting hefur leitt
til ástands sem líkist kannski mest
upphafi internetsins í byrjun tí-
unda áratugar seinustu aldar, þeg-
ar allir þeir möguleikar sem int-
ernetið bauð upp á voru enn
ókannaðir.
Hvað þýðir þetta
fyrir læknisfræði
framtíðarinnar? Nú er
loksins hægt að öðlast
nokkuð heildstæða
mynd af erfðum al-
gengra sjúkdóma með
því að raðgreina tugi
þúsunda einstaklinga.
Þetta hefur opnað fyr-
ir lyfjaþróun fyrir
skilvirkari og ná-
kvæmari lyfja-
meðferðir sem taka
mið af erfðaefni ein-
staklinga. Bættur skilningur á
erfðum sjúkdóma gerir okkur
einnig kleift að bæta núverandi
spálíkön fyrir sjúkdóma, en nú er
nánast einungis tekið mið af
þekktum áhættuþáttum og sjúk-
dómstíðni meðal náinna fjöl-
skyldumeðlima. Að geta einnig
tekið mið af bæði ætterni og
erfðaefni einstaklinga getur því
haft víðtæk áhrif á lífslíkur og lífs-
gæði einstaklinga. Þetta á t.d. við
um hjartaáföll, offitu, alzheimer,
sykursýki, gláku og marga aðra
arfgenga sjúkdóma þar sem ingrip
í tæka tíð geta skipt miklu máli.
Af hverju er þetta ekki gert?
Aðalástæðan er líklega sú að
tæknin er of ung og hefur enn
ekki áunnið sér traust. Ísland er
reyndar sérstaklega vel í stakk
búið til þess að koma þessari
tækni í notkun innan núverandi
heilbrigðiskerfis. Samtök og fyr-
irtæki á borð við t.d. Hjartavernd
og Íslenska erfðagreiningu, sem
og aðrir sérfræðingar á Íslandi,
eru með framúrskarandi kunnáttu
á þessu sviði sem er vel þekkt í
hinu alþjóðlega vísindaumhverfi. Í
mínum huga er þetta aðeins
spurning um hvort við viljum vera
meðal þeirra fyrstu til þess að
nýta okkur þessa nýju tækni inn-
an heilbrigðisþjónustunar eða
ekki. Ég tel að við eigum að grípa
þetta einstaka tækifæri strax og
vera í fararbroddi í erfðafræði-
byltingu innan heilbrigðisþjónust-
unnar þar sem skynsemi og eðli-
leg siðferðisleg sjónarmið eru höfð
í heiðri.
Erfðafræðibylt-
ingin er tækifæri
fyrir Ísland
Eftir Bjarna Jó-
hann Vilhjálmsson
Bjarni Jóhann
Vilhjálmsson
»Með því að taka mið
af erfðaefni ein-
staklinga er hægt að
bæta áhættumat á
mörgum sjúkdómum og
þannig auka lífslíkur og
lífsgæði einstaklinga.
Höfundur er nýdoktor
við Harvardháskóla.
Við ættum að veita ESB-sinnuðum
og vinstrimönnum að minnsta kosti
30 ára orlof vegna frábærrar
frammistöðu og nota tímann til að
byggja upp veg-
ina og tengja
saman litlu
skemmtilegu
byggðarlögin á
landsbyggðinni
eins og til dæmis
á Austfjörðum
og Vestfjörðum
til að skapa
byggðakjarna
sem gætu létt
andlegum kvöðum af Reykvík-
ingum.
Eftir svona 10 ár ættum við að
geta verið búin að átta okkur á því
hvernig við ætlum að haga flutn-
ingum um Ísland til framtíðar.
Eins og nú háttar þá er allt flutt til
Reykjavíkur og svo dreift þaðan.
Þetta er auðvita alger óhæfa því
álag er langt um of á hafnir og
vegakerfi út frá og til Reykvíkinga
sem þurfa þó endilega að hafa
óspillta vegi til að komast í sum-
arbústaði sína og fá næði til að
rækta glaumhallir sínar, okurbúll-
ur og tjarnartrúða leikhús í friði.
En ef Reykvíkinga langar til að
vera með okkur landsbyggð-
armönnum við að þróa upp sam-
félag sem byggist á skynsemi er
það allt í lagi, ef þeir þá sætta sig
við að vera gamaldags sveitamenn
líka, eins og við og forfeður þeirra
og mæður sem byggðu upp
Reykjavík.
Olía kostar, og kemur til með að
kosta meira, og gildir einu hvar
hún finnst, en rafmagn framleitt
með hringrás vatns verður með
hverri virkjuninni sífellt ódýrara.
Það liggur því beint við að raf-
magn er hentugt til flutninga á Ís-
landi. Það þarf bara að finna upp
kapla og framlengingar til að drífa
flugvélar skip og flutningabíla með
fossaafli. Nú ef það eru einhver
vandræði með þessa kapla, þá er
líka til önnur gamaldags og lang-
reynd aðferð sem getur flutt allt
sem flytja þarf hringinn um byggð-
ir á Íslandi og gæti vel keppt við
innanlandsflugið líka. Auðvitað
hafa Reykvíkingar enga þörf fyrir
svona gamaldags tækni, en þorp-
ararnir og sveitamennirnir sem á
eftir mér koma ætla að fá hana.
Það verður margt flutt í Hörpu
til yndis og þroska fyrir Stór-
Reykvíkinga, en það verður ekkert
flutt með Hörpu til eða frá lands-
byggðinni. En á gamaldags raf-
mögnuðum brautum gæti sá tími
komið að landsbyggðarfólk hefði
efni og nægju til að líta inn í
Hörpu, og ef svo gerðist væri svo
sem allt í lagi að lofa vinstrimönn-
um að rústa hér í svo sem eitt til
tvö ár á sextán ára fresti til minn-
ingar um Jóhönnu en meira má
það nú ekki vera.
HRÓLFUR HRAUNDAL
vélvirki.
Veljum við ESB-skrjóðinn
eða raunsæislestina?
Frá Hrólfi Þorsteinssyni Hraundal
Hrólfur
Hraundal
Aukablað
alla þriðjudaga
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Ertu að taka til í …
…garðinum
… geymslunni
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Esjubrauð
Hollustubrauð sem inniheldur
m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat
sem og íslenskt bygg - enginn sykur
Ríkt af Omega 3
Góð brauð – betri heilsa
Opið: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Lengri opnunartími á Dalveginum
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur