Morgunblaðið - 12.04.2013, Side 39
Við systkinin í Ásveginum eig-
um yndislegar minningar um
mæta og góða konu. Unna Maja
var nefnilega alveg einstök.
Henni fylgdi alltaf léttlyndi og
glaðværð, hlátur og kátína, hvar
sem hún fór. Breiða fallega brosið
hennar gat svo sannarlega dimmu
í dagsljós breytt. Og faðmurinn
hennar svo stór og mjúkur, bara
hlýja og góðvild. Alltaf.
Unna Maja hafði einstakt lag á
að sjá það jákvæða í hlutunum og
hún hafði ríka réttlætiskennd, var
heiðarleg og sönn og gaf svo
mörgum svo mikið af sér. Þolin-
mæði hennar og þrautseigja var
endalaus og ómæld. Okkur var
hún einstaklega trú og trygg.
Við ætlum að trúa því að vel
hafi verið tekið á móti henni á
himnum. Í huga okkar er hún þar.
Minning hennar lifir.
Aðstandendum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Jónína, Kristín,
Arnar og Svana.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Nú er hún Unnur María vin-
kona mín dáin, búin að tapa stríð-
inu, þótt hún hafi barist eins og
ljón. Henni tókst að komast á sjö-
tugsaldurinn og var ákaflega
ánægð með það. Við Unna urðum
vinkonur á stelpuskottsaldrinum
og héldum miklu vinfengi alla tíð,
þótt við værum ekki alltaf inni á
gafli hvor hjá annarri. Síðasta ár-
ið höfum við rifjað upp margar
skemmtilegar samverustundir úr
æsku. Þá var alltaf sólskin og gott
veður á sumrin og snjór, frost og
heiðríkja á vetrum. Við vorum
líka alltaf úti. Eltum útfallið, hlup-
um undan aðfallinu, gerðum parís
í sandinn, príluðum í grjótinu á
nýja (þá) hafnargarðinum, fórum
í lautarferðir upp í hóla, lágum í
grasinu og skoðuðum skýin, fór-
um ásamt fleirum í pílu og fleiri
leiki, en vorum alltaf saman í liði.
Á vetrum vorum við endalaust á
skautum á flæðunum og ánni og
ætluðum að verða skautadrottn-
ingar þegar við yrðum stórar.
Þetta voru dásamlegir tímar.
Svo stækkuðum við og við tóku
unglingsárin. Við vorum saman
eitt ár í Svíþjóð við að passa börn
og höfum rifjað upp margar góðar
minningar þaðan. Í Reykjavík
vorum við líka samtímis um tíma,
en svo skildi svolítið leiðir. Við tók
annað tímabil með búsforráðum
og börnum, en vinskapurinn hélst
og þegar við hittumst var alltaf
mikið fjör og margt skrafað.
Takk fyrir allar stundirnar,
Unna mín.
Elsku Tryggvi, Heiðrún, Haf-
dís, Helgi, Daníel, Sólveig og fjöl-
skyldur. Við Palli sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur og biðj-
um að Guð fylgi ykkur gegnum
sorgina.
Sigurlaug Stefánsdóttir.
Nú þegar elskuleg vinkona mín
Unnur María hefur kvatt þetta líf
langar mig að þakka fyrir að hafa
kynnst henni og átt vináttu henn-
ar í 44 ár. Við hittumst fyrst í
Gautaborg þar sem við vorum
mættar til að senda jólakveðjur
heim til ættingja og vina á Íslandi
í gegnum Ríkisútvarpið. Hún lað-
aði að sér fólk hvar sem hún kom,
hlýleg og skemmtileg með sinn
dillandi hlátur. Hún hafði þann
frábæra eiginleika að sjá jákvæðu
hliðarnar á því sem kom upp á og
hafði einstakt jafnaðargeð og
aukaskammt af þolinmæði. Það
kom sér oft vel þegar hún var
komin með fallega barnahópinn
sinn, sex börn, og bóndakona í
fullu starfi. Hún var ævintýra-
gjörn og elskaði að ferðast. Þegar
hún fór að vinna á sambýli á Ak-
ureyri nutu skjólstæðingarnir
sem hún annaðist þess. Hún fór í
sumarbústaði með marga ein-
staklinga og þeir voru meðhöndl-
aðir eins og kóngafólk. Hún fór
líka til útlanda sem fararstjóri
með fatlaða unglinga. Hún átti
það til að hringja til mín og at-
huga hvort það væri ekki í lagi að
kíkja í kaffi því vélin til Akureyrar
færi ekki fyrr en eftir tvo tíma og
hún væri með fjóra með sér. Það
eru ógleymanlegar stundir. Það
er hægt að telja endalaust upp
ágæti Unnar Maríu og það eru
eingöngu góðar minningar sem
hún skilur eftir sig. Það er svo
gott í sorginni og söknuðinum að
ylja sér við þær minningar. Ég
sendi börnum hennar og fjöl-
skyldu innilegar samúðarkveðjur
og bið Guð að blessa minningu
hennar.
Guðrún Margrét
Einarsdóttir.
Elsku Unna Maja. Við kveðj-
um þig með söknuði og þökkum
samfylgdina.
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni
hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í vina-
hjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum
björtum.
Þitt hjarta geymdi gullið dýra og sanna,
að gleðja og hjálpa stærst þín unun var.
Því hlaust þú hylli Guðs og góðra
manna
og göfugt líf þitt fagran ávöxt bar.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
María og Símon.
Elsku Unna Mæja, mín gamla
húsmóðir.
Þær eru misjafnar ævisögurn-
ar sem við skiljum eftir okkur. Þín
saga var meistaraverk … og er ég
svo afskaplega glöð að hafa fengið
að vera ein af persónunum í lífi
þínu. Endalaus gleði, dugnaður
og atorkusemi einkenndi þig og
með stórfjölskylduna í kringum
þig þá bættist við dramatík og
endalaust fjör. Sjaldan róleg
stund nema þá á kaffihúsum og
þar varst þú á heimavelli.
Ég kom í sveit á Ytra-Hvarf til
þín og Jóa á unglingsárunum, há-
vaðasöm og afar orkumikil. Talaði
endalaust og alltaf nenntir þú að
hlusta á mig . Vinnukona og pöss-
unarpía var ég titluð. Þetta
reyndist vera byrjunin á ævivar-
andi vináttu á milli mín og hús-
móður minnar og hafa símtölin og
heimsóknirnar verið ófáar í gegn-
um árin. Daginn sem ég varð 25
ára Þá hringdi hún í mig til að
spyrja hvort ég væri farin að
dansa gömlu dansana. Ég hafði
víst hlegið að þeim hjónum á balli
forðum daga, þegar þau voru 25,
og sagt að svo gamalt fólk ætti að
dansa gömlu dansana. Þetta var
ósjaldan rifjað upp.
En nú ertu komin í faðm for-
eldra þinna og systra. Takk fyrir
allar góðu ráðleggingarnar. Takk
fyrir gleðina. Takk fyrir hlátur-
inn. Takk fyrir allt spjallið. Takk
fyrir að hafa verið gleðigjafi í lífi
svo margra.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til ættingja.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endurgjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Anna Júlía Skúladóttir.
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
✝ Ólafur Ólafs-son fæddist á
Akranesi 23. nóv-
ember 1926. Hann
andaðist á Land-
spítalanum Foss-
vogi 5. apríl 2013.
Foreldrar Ólafs
voru Ólafína Ólafs-
dóttir frá Deild á
Akranesi, f. 10. okt.
1902, d. 12. okt.
1995, og Ólafur
Helgi Sigurðsson frá Fiskilæk í
Melasveit, f. 25. okt. 1902, d. 3.
des. 1984.
Systkini Ólafs eru: 1) Hörður
Ragnar, f. 1924, d. 2001, 2) Guð-
rún Diljá, f. 1927, d. 1995, 3)
Margrét, f. 1929, 4) Sigurður
Hreinn, f. 1933, d. 1978, 5) Frey-
móður Heiðar, f. 1935, d. 1978,
6) Ása Sigríður, f. 1937, 7) Jóna
Kolbrún, f. 1940, d. 2006. Hálf-
systkini hans sammæðra eru: 1)
Jóhann Grétar Hinriksson, f.
1922, d. 2006, 2) Ólafína Sigrún
Ólafsdóttir, f. 1946. Hálfsystir
hans samfeðra er Svanhildur, f.
1948.
Ólafur kvæntist 29. desember
1947 Lilju Halldórsdóttur, f. 14.
unn Helga, f. 17. okt. 1959, maki
Halldór Hauksson, synir þeirra
eru Atli Viðar, Kristinn Júlíus
og Ólafur Helgi.
Ólafur og Lilja byrjuðu sinn
búsakp á Akranesi. Árið 1962
flytja þau að Innsta-Vogi og
gerðist hann bóndi, þar bjuggu
þau í áratug. Þá fluttust þau að
Görðum á Akranesi og héldu
áfram fjárbúskap ásamt rófu- og
kálrækt. Upp úr 1980 hætta þau
búskap á Görðum en hann var
mikill bóndi í sér og var með
kindur áfram allt til ársins 2000.
Síðustu árin bjuggu þau á
Höfðagrund 25 á Akranesi og
eftir andlát Lilju bjó hann þar til
ársins 2011 en þá fluttist hann á
Dvalarheimilið Höfða.
Ólafur ólst upp í foreldra-
húsum á Akranesi, hann þurfti
snemma að vinna fyrir sér og
var hann sendur í sveit á sumrin.
Ólafur starfaði við sjómennsku
um árabil og sem ungur maður
vann hann bæði störf til sjávar
og sveita. Upp úr árinu 1970 hóf
hann störf hjá Olíufélaginu Esso
sem lagermaður og bílstjóri, þar
starfaði hann uns hann lét af
störfum vegna aldurs.
Útför Ólafs fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 12. apríl
2013, og hefst athöfnin klukkan
14.
mars 1926, d. 13.
jan. 2008. For-
eldrar hennar voru
Lára Jóhann-
esdóttur og Halldór
Ólason frá Ytri-
Tungu í Stað-
arsveit. Ólafur og
Lilja eignuðust sex
börn sem eru: 1)
Halldór, f. 7. jan.
1947, maki Guð-
laug S. Sigurjóns-
dóttir, börn þeirra eru Rúnar,
Lilja, Sigurður Daníel, Halldór
Fannar og Guðrún Drífa. 2) Jó-
hannes Sigurður, f. 18. sept.
1948, maki Herdís H. Þórð-
ardóttir, börn þeirra eru Þórður
Már, Lára, Ingunn Þóra og Guð-
jón. 3) Ólafur, f. 22. júlí 1950,
maki Ingiríður B. Kristjáns-
dóttir, börn þeirra eru Ólafur og
Kristjana Helga. 4) Þráinn, f. 31.
maí 1952, maki Helga Jóna Ár-
sælsdóttir, dætur þeirra eru Að-
alheiður María, Berglind og
Harpa Sif. 5) Lárus Þór, f. 29.
mars 1954, maki Valgerður
Sveinbjörnsdóttir, börn þeirra
eru Gyða, Ólöf Lilja, Sigurbjörn,
Vilborg og Heiðar Þór. 6) Stein-
Nú þegar vorið er á næsta
leiti og sól hækkar á lofti og
stutt er í sauðburðinn kveður
tengdafaðir minn Ólafur þessa
jarðvist. Óli eins og hann var
jafnan kallaður var alltaf með
kindur í sínum búskap, var hann
vakinn og sofinn yfir kindunum
sínum alla tíð og mikið að gera
þegar sauðburðurinn var á vorin.
Ég minnist vinnusemi hans,
aldrei féll honum verk úr hendi
enda hafði hann frá unga aldri
þurft að vinna fyrir sér og axla
ábyrgð sem börnum er ekki boð-
ið í dag, um fermingu var hann
farinn að sjá fyrir sér sjálfur.
Óli vann mörg störf um ævina,
var sem ungur maður í vega-
vinnu, vann á jarðýtu og var
vörubílstjóri. Sjómennska varð
hans aðalstarf á yngri árum og
þegar börnin voru lítil var hann
á bátum héðan frá Akranesi. Óli
kynntist ungur eiginkonu sinni
Lilju Halldórsdóttur og hófu þau
búskap á loftinu í Grafarholti hér
á Akranesi hjá tengdaforeldrum
hans og þar fæddust tveir elstu
synir þeirra. Árin sem þau hjón-
in bjuggu í Innsta-Vogi voru góð
ár og talaði Óli oft um hvað þau
ár voru skemmtileg, ferðirnar
inn í nesið að gæta að fénu vegna
flóðahættu en einu sinni gerðist
það að nokkrar kindur urðu fast-
ar úti á skeri, þá þurfti snör
handtök, bátur settur á flot róið
til að bjarga þeim. Fuglalíf hefur
ætíð verið mikið í nesinu og tölu-
vert æðarvarp eins og Óli sagði
okkur frá er hann sem drengur
átti heima í Innsta-Vogi með for-
eldrum sínum og systkinum.
Óli var mikill fjölskyldufaðir
og hélt vel utan um hópinn sinn,
átti auðvelt með að umgangast
börn og hændust þau mikið að
afa sínum, fóru með honum í leit-
ir og réttir á haustin, hópurinn
er orðinn stór sem kominn er út
af honum en alla þekkti hann
með nafni og fylgdist vel með
hverjum og einum hvernig þeim
vegnaði í lífinu og hvatti þau til
mennta, því ekki átti hann kost á
því á sínum yngri árum, óskaði
hann þess að öllum farnaðist vel
á lífsleiðinni.
Tók hann ætíð mikinn þátt í
því sem við hjónin gerðum, vildi
veg okkar sem mestan og var
alltaf tilbúinn að rétta fram
hjálparhönd. Óli starfaði hjá Ol-
íufélaginu Esso frá 1970 þar til
hann lét af störfum vegna ald-
urs, eftir það kom hann og vann
við útgerð okkar hjóna við beitn-
ingu og annað sem til féll, alltaf
var hann mættur í skúrinn
snemma morguns og á bryggj-
una þegar Hrólfurinn kom að
landi.
Ég á margar góðar minningar
um Ólaf tengdaföður minn sem
spanna yfir fjörutíu ár, heim-
sóknir í sumarbústaðinn í Ölveri
sem var þeirra sælureitur, veiði-
ferðir í Dalina, ferðalög vestur á
Arnarstapa í sumarbústað okkar
Jóa og norður í land sem var síð-
asta ferðalag þeirra hjóna saman
með okkur hjónunum.
Ólafur var mikill bílaáhuga-
maður, hann átti marga fallega
bíla um dagana og kappkostaði
að hafa þá fína.
Hann var fróður og víðlesinn,
hafði gaman að lestri góðra bóka
og fræddi okkur um ættfræði
sem hann var mjög fróður um.
Nú að leiðarlokum vil ég
þakka Ólafi tengdaföður mínum
samfylgdina í gegnum árin og
hvað hann hefur verið börnum
og barnabörnum okkar góður afi
og fjölskyldunni allri.
Minning þín mun lifa í hjört-
um okkar.
Þín tengdadóttir
Herdís Þórðardóttir.
Í dag kveðjum við elskulegan
afa okkar með söknuði í hjarta.
Þegar við hugsum til baka er
margs að minnast. Afi Óli var
einn af hornsteinum í okkar lífi.
Við systkinin urðum þeirra gæfu
aðnjótandi að fá að alast upp í
návist afa og ömmu. Til þeirra
var alltaf gott að koma og heimili
þeirra okkur opið.
Afi Óli var góður maður með
sterkar skoðanir og gaman var
að ræða við hann um málefni líð-
andi stundar, allt frá bústörfum
til viðskipta. Hann var mikill
fjölskyldumaður og fengum við
afabörnin að njóta þess allt fram
til síðasta dags. Hann fylgdist
fullur áhuga með barnabörnum
sínum og framgangi þeirra og
stoltið leyndi sér ekki.
Afi var alla tíð mikill bóndi og
unni sveitinni. Það voru mikil
forréttindi fyrir lítil afabörn að
fá að taka þátt í sveitastörfunum
og fá að læra af honum. Það var
fastur punktur í tilverunni hjá
okkur að taka þátt í heyskapnum
á hverju sumri og fara síðan í
leitir og réttir. Réttirnar voru
eins mikilvægar okkur og að
byrja að hausti í skóla. Amma sá
um að allir fengju nóg af fjalla-
tertunni sinni eftir réttirnar,
einnig voru ferðirnar á Seleyrina
ógleymanlegar þar sem við feng-
um oft að renna fyrir fisk með
afa.
Að leiðarlokum viljum við
þakka þér afi fyrir allt það sem
þú varst okkur og börnum okk-
ar.
Minning þín er ljós í lífi okkar
allra.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Hafðu þökk fyrir allt, elsku
afi.
Hvíldu í friði.
Þórður Már, Lára, Ingunn
Þóra, Guðjón og fjölskyldur.
Það er ekki laust við að manni
stökkvi bros þegar maður hugs-
ar til baka um þær mörgu góðu
stundir sem við áttum saman.
Hvort sem það var við smala-
mennsku, laxveiði eða einfald-
lega á spjalli yfir góðum kaffi-
bolla, þá var nálgun þín alltaf
skemmtileg á hlutina. Það er
gott að hugsa til baka og eiga
þessar minningar. Þá langar mig
einna helst að rifja upp þann dag
sem þú varðst 85 ára. Þú hringd-
ir til mín seint á mánudagskvöldi
þar sem þú tjáðir mér að þú ætl-
aðir að fá að koma með mér suð-
ur til Reykjavíkur á miðviku-
dagsmorguninn. Ég verð að
viðurkenna að mér var örlítið
brugðið, því þetta var ekki mjög
líkt þér að vilja fara til Reykja-
víkur eldsnemma morguns og
eyða þar deginum. Ég sem hélt
að þú værir að rugla, en svo var
ekki. Ég sótti þig eldsnemma á
miðvikudagsmorguninn og
beiðst þú uppstrílaður í jakkaföt-
um og fyrir löngu tilbúinn. Þú
varst ákveðinn í því að þú vildir
eyða deginum með Möggu syst-
ur þinni og þangað var ferðinni
heitið. Þegar þangað var komið
skildi leiðir okkar og ég hélt til
vinnu en þú varðst eftir hjá
Möggu. Dagurinn átti svo sann-
arlega eftir verða þér eftirminni-
legur. Þið fóruð m.a. út að borða
á Horninu, þú keyptir þér jakka-
föt og þess á milli rifjuðuð þið
upp gamla tíma. Ég gleymi seint
ánægjusvipnum á þér þegar ég
kom að sækja þig í lok dags. En
þú varst ekki af baki dottinn eft-
ir daginn, heldur bauðstu mér út
að borða á góðan veitingastað og
var það góður endir á frábærum
degi.
Veiðitúrarnir sem farið var í
eru einnig ofarlega í huga mér, í
Fáskrúð, Laxá í Kjós og Glerá
eru minningar sem ylja manni.
Fastheldni þín á ákveðna veiði-
staði var með eindæmum. Minn-
ist ég þess að þegar við vorum
eitt sinn við veiðar í Fáskrúð að
þú og pabbi fóruð saman niður
að Eirkvörn. Þú komst þér fyrir
þar, á meðan pabbi gekk niður á
næsta stað. Þegar hann snýr til
baka eftir dágóða stund, þá sér
hann að það gengur heldur mikið
á hjá þér. Hann tekur til fótanna
og hleypur til þín, þá hafðir þú
landað þremur fiskum á þessum
stutta tíma. Ekki skildum við al-
veg hvernig þú fórst að þessu,
því þú gast því miður ekki hlaup-
ið með laxinn niður úr þessum
veiðistað. Þarna varst þú á
heimavelli.
Elsku afi, Guð geymi þig.
Halldór Fannar Halldórsson.
Nú ert þú látinn, elsku afi Óli,
eftir að hafa lent í óhappi sem
varð til þess að þú kvaddi okkur.
Líklega hefur þú fundið að þetta
væru endalokin og talaðir strax
um að nú væri þetta búið og að
þú gætir ekki meir. Eftir að hafa
lærbrotnað áður og náð þér vel á
strik eftir það, þá var þetta því
miður of mikið fyrir þig. Þú tal-
aði stundum um það við mig að
amma væri að bíða þín og að þig
langaði bara að fara til hennar.
En alltaf svaraði ég því að þinn
tími væri ekki kominn. En nú er-
uð þið saman á ný og sé ég ykk-
ur alveg fyrir mér eins og þið
voruð. Svo ánægð hvort með
annað.
Nú þegar hugurinn hvarflar
til baka þá er nú eitt og annað
sem kemur sterkt upp í hugann
og má þar nefna smalamennsk-
una þar sem þú varst alltaf
mættur fyrstur manna með þína
smala. Þegar kom að réttum
varst þú að sjálfsögðu með kræs-
ingar frá ömmu svo sem heima-
bakað brauð, kleinur og fjalla-
tertuna sem aldrei var eins góð
og í Grafardalnum. Þegar farið
var í Svarthamarsrétt bauðst þú
upp á pylsu og kók í Ferstiklu
sem þótti nú talsvert nýnæmi í
þá daga. Fyrst ég er nú byrjuð
að tala um mat þá má að sjálf-
sögðu ekki gleyma því að þú
varst svo stoltur af því að hafa
átt kindur og að geta borðað þitt
eigið lambakjöt sem þér þótti
alla tíð svo gott, hefðir getað
borðað það í öll mál hefðir þú
mátt ráða. Ekki má nú gleyma
að minnast á nammið sem þú
kappkostaðir að bjóða okkur
þegar við komum í heimsókn til
ykkar og hef ég haft orð á því að
það sé frá þér komið að við séum
eins sólgin í sætindi og við erum.
Margar skemmtilegar stundir
áttum við í hjólhýsinu ykkar á
Seleyrinni og er mér minnis-
stætt þegar Reynir Pétur gekk
hringinn í kringum landið að þú
flýttir þér með okkur upp á veg
svo við gætum séð þennan ein-
staka mann og að sjálfsögðu
tóku þið mynd af okkur með
honum.
Við Sibbi bróðir fórum eitt
sinn með ykkur upp að Akrafjalli
þar sem átti að fara að bóna
Volvoinn og gladdir þú okkur
með því að setja ánamaðkinn
sem við fundum hálfann upp í
þig. En samt sem áður þá held
ég að þú hafir nú meira verið að
stríða ömmu en okkur.
Samband okkar hefur alla tíð
verið mjög gott og hafa tengsl
okkar aukist með hverju ári. Þú
fylgdist mjög vel með þegar við
byggðum húsið okkar, keyrðir
um götuna og stoppaðir yfirleitt
ef við vorum úti eða komst inn
og gafst þér tíma til að spjalla
við okkur. Eftirminnilegar eru
stundir okkar er þú komst í
heimsókn eftir að við vorum flutt
inn í húsið okkar sem þú varst
svo hrifinn af. Alltaf komstu í af-
mæli til mín og Rakelar Sifjar
sem þú hafðir svo mikið dálæti á
og hún á þér. Þú varst alltaf
mættur fyrstur og farinn fyrst-
ur. En þessar heimsóknir þínar
voru okkur dýrmætar.
Það er skrýtið til þess að
hugsa að við eigum ekki eftir að
sjá þig keyra um á E 126 um
götur Akranesbæjar og mæta
þér á gamla veginum sem þú
keyrðir a.m.k. tvisvar sinnum á
dag.
Elsku afi Óli, við söknum þín,
en nú eruð þið amma sameinuð á
ný og getum við ekki annað en
glaðst yfir því. Minningarnar
sem við eigum um þig munu lifa
með okkur um ókomna tíð.
Ólöf Lilja, Stefán
og Rakel Sif.
Ólafur Ólafsson