Morgunblaðið - 12.04.2013, Side 44

Morgunblaðið - 12.04.2013, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013 ✝ Vilhjálmur ÓliValsson, stýri- maður/sigmaður og sjúkraflutn- ingamaður, fæddist í Reykjavík 14. jan- úar 1972. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 30. mars 2013. Foreldrar Vil- hjálms eru Valur Heiðar Einarsson, f. 19. júlí 1942, og Dagný Heiða Vilhjálms- dóttir, f. 2. júlí 1942. Systkini Vil- hjálms eru Einar Heiðar, f. 1965, Halldóra Sigrún, f. 1969, og Birgir Snær, f. 1974. Vilhjálmur kvæntist 2. júní 2001 Berglindi Jónsdóttur, f. 28. apríl 1974, og eignaðist með henni fjögur börn, Kristberg Óla, f. 1999, Dagnýju Heiðu, f. 2003, Bjarka Frey, f. 2005, og Guðnýju Sunnu, f. 2007. október 2005 var hann fastráð- inn stýrimaður hjá LHG, fyrst á varðskipunum en frá 1. janúar 2007 sem stýrimaður, sigmaður og sjúkraflutningamaður í flug- deild LHG þar sem hann starfaði til dánardags. Frá 1989-1996 starfaði Vilhjálmur sem háseti, bátsmaður og stýrimaður hjá Samskipum, 1996-1997 sem stýrimaður á netabátnum Mána frá Hafnarfirði, 1997-1998 yfir- stýrimaður á flutningaskipinu Selnesi, 1998-2001 verkstjóri og síðar yfirverksjóri í öllum vöru- húsum TVG, 2001-2003 stýri- maður á ýmsum fiskiskipum en lengst af á Tjaldi SH-270 og 2003-2005 sem eftirlitsmaður Fiskistofu í vinnsluskipadeild þar til hann var fastráðinn í stöðu stýrimanns hjá LHG. Vilhjálmur sat í stjórn nem- endafélags Stýrimannaskólans í Reykjavík 1990-1993, þar af sem formaður 1992-1993. Þá var hann félagi í Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi 1998-2004, þar af í stjórn klúbbsins 2002-2004. Útför hans fer fram í dag, 12. apríl 2013, frá Digraneskirkju og hefst athöfnin kl. 11. Vilhjálmur bjó fyrstu fimm árin í Hraunbæ en flutti þá í Kópavoginn þar sem hann bjó eftir það utan eitt ár sem hann bjó í Reykja- vík. Vilhjálmur lauk grunnskólaprófi frá Digranesskóla 1987, farmannaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 1993 og prófi frá varðskipadeild skipstjórnarskóla Tækniskólans 2012. Hóf nám í lögfræði við Há- skóla Íslands haustið 2012 en varð frá að hverfa vegna veik- inda. Vilhjálmur réðst fyrst til starfa hjá Landhelgisgæslunni (LHG) 1987 sem vikadrengur á varð- skipum og síðar viðvaningur og háseti. Frá árinu 1992 leysti hann af sem stýrimaður á varðskip- unum samhliða öðrum störfum. 1. Það er erfitt að stinga niður penna þegar skrifa á minningar- orð um barnið sitt. En nú skal reyna. Margar fallegar og skemmtilegar samverustundir þjóta í gegnum hugann. Fyrst tápmikill glókollur með systkinum sínum, síðar með skóla- og leik- félögum. Ákveðinn einstaklingur smástríðinn og ætíð stutt í bros. Í eðli sínu samviskusamur og dug- legur. Snemma byrjaði sjálfstæð- ið hans sem og þeirra bræðra. Ekki vildi hann vera minni en Ein- ar eldri bróðir hans. Fór snemma að bera út blöð og selja. Síðar bættist Birgir sá yngsti í hópinn. Bar oft á samkeppni á milli bræðr- anna en samstarf gott. Þarna var safnað fyrir fyrsta reiðhjólinu. Gleymi ekki stoltinu sem skein úr augum þegar komin var upphæðin fyrir reiðskjótanum. Svona liðu árin með metnað og dugnað í far- teskinu. Snemma kom í ljós hve vel lá fyrir honum að læra, gekk vel frá upphafi. T.d. þegar systir hans var að lesa sat hann oftar en ekki á móti henni og las með henni, þannig var hann jafnvígur á að lesa orðin á hvolfi. Það varð úr að hann byrjaði ári á undan í grunn- skóla og hélt því. Eitt er sérstak- lega minnisstætt: Til að fá að fara í sjö ára bekk þurfti minn maður að fara í þroskamat. Þegar þessu var lokið og heim var komið gall í þeim stutta: Skil ekki alveg til hvers ég þurfti að hoppa, ætli ég eigi að hoppa inn í bekkinn? Stundir sem þessar poppa oft upp. Hann hafði lítið fyrir náminu svo vel lá það fyrir honum. Með dugnaði náði hann þeim áföngum sem settir voru á planið nema þeim síðasta, þá vegna veikinda. Var hann víð- sýnn. Búinn að sigla um heimsins höf. Hafði gaman af að koma til sem flestra landa. Fljótur að kom- ast inn í tungumál og naut þeirra ára. Þegar þeim kafla lauk kynnt- ist hann Berglindi sinni. Ham- ingjusöm og drífandi var fyrsta íbúðin keypt. Fjölskyldan stækk- aði sem útheimti stærra húsnæði sem varð í Skógarási. Þar stopp- uðu þau stutt við og fluttu aftur í Kópavog, í Furugrund þar sem þau hafa búið síðan. Börnin urðu fjögur, heilbrigð og falleg. Margar stórar stundir verða ofarlega í huga okkar, t.d. var stolt amma sem hélt á alnöfnu sinni undir skírn. Nú seinni árin hefur Villi sinnt merku starfi sínu hjá LHG að mestu við björgunarstörf allskon- ar. Fyrsta björgunarafrekið hans, þá fimm ára gamall, var að bjarga yngri bróður sínum úr sjónum í fjörunni við Selvog en þar voru þeir í ferð með pabba að sækja sand. Þar sýndi sig hversu áræð- inn Villi var strax á unga aldri sem einkenndi allt hans starf til að koma öðrum til hjálpar. Við foreldrarnir getum ekki annað en verið stolt af liðnum ár- um, liðnum samverustundum sem er þakkað fyrir af alhug. Elsku Berglind okkar, Krist- berg Óli, Dagný Heiða, Bjarki Freyr og Guðný Sunna, biðjum við góðan Guð að styrkja ykkur og gæta öll ókomin ár. Minning lifir um góðan dreng. Pabbi og mamma. Margs er að minnast og margs er að sakna. Tíminn átti ekki að vera svona stuttur en ef veikindi ber að garði er víst ekki spurt um tíma. Ég minnist þeirra tíma er við vorum guttar, við deildum saman herbergi og margt var brallað á þeim tímum. Ófáum klukkustund- um gátum við bræður eytt við að aka bílum á undan okkur um allt hús með tilheyrandi hljóðum. Og fótboltakeppnirnar úti í garði á Álfhólsveginum milli Arsenal og Liverpool og alltaf hafði Arsenal vinninginn. Við vorum miklir mát- ar á okkar yngri árum, bárum saman út blöðin og slógumst eins og bræður gera, en alltaf bestu mátar. Síðan skildi leiðir okkar er við héldum hvor í sína áttina til sjós. Ég á varðskip en þú á skip hjá Samskipum. Oft horfði ég öfund- araugum er þú fékkst tækifæri til að sigla um heimsins höf og heim- sækja framandi staði meðan ég sigldi kringum skerið. Svo kom að því að við komum í land, ég búinn að fara á frystitogara og þú kom- inn aftur á þinn gamla og fyrsta vinnustað hjá LHG. En því miður gáfum við okkur ekki tíma til að rækta bræðralagið aftur, vissum hvor af öðrum, hitt- umst endrum og eins í hádeginu hjá mömmu. Er ég ligg og rifja upp þessar gömlu minningar með tárin í aug- um er engin leið að geta sett á blað þær stundir sem við áttum. Ég mun sakna hverrar mínútu sem við áttum saman og varðveita djúpt í hjarta mér. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska og það hefur greinilega átt við þig, elsku bróðir, þér hefur verið ætlað eitthvert mikilvægt hlutverk þarna uppi. Elsku bróðir, enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ég mun virkja sambandið við Berg- lindi og börnin þín, halda utan um þau eins og þú myndir vilja. Mér er mikill heiður og mun stoltur sem bróðir fylgja þér síð- asta spölinn. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Þinn bróðir, Birgir. Elsku bróðir, þá ertu farinn í flugið langa allt of snemma. Hverjum hefði dottið í hug að þú, maður á besta aldri í góðu formi, yrðir kallaður frá okkur svo fljótt sem raunin varð? Það var ósjaldan sem við töluðum saman um starfið okkar, lífið og tilveruna. Það var því erfitt símtal sem við áttum fyr- ir rúmu ári eftir að þú hafðir verið greindur með illkynja krabba- mein. Það var ekki bara reiðarslag fyrir fjölskylduna heldur líka vinnustaðinn okkar. En þvílík yf- irvegun sem þú hafðir og ein- kenndi allt ferlið sem á eftir fór. Eins og þú sagðir í upphafi: „Þetta er bara verkefni sem mér er falið og ég verð bara að vinna það eins og önnur.“ Í framhaldinu tókst þú á við erfiða meðferð með þvílíkri já- kvæðni sem vart verður leikin eft- ir. Jafnframt hélstu áfram störf- um langt fram yfir mannlegan mátt. Það hefur ekki verið auðvelt að samræma vinnu, erfiða baráttu og vinna að velferð fjölskyldunnar á sama tíma. Þó að böndin milli okkar hafi verið sterk þá styrktust þau við þetta áfall, símtölin lengd- ust og heimsóknum fjölgaði. Það var yndislegur tími sem við áttum saman um síðustu áramót er þú komst með fjölskylduna til okkar norður. Þá var farið að halla und- an en alltaf hélstu þinni reisn þó það væri orðið nokkuð ljóst í hvað stefndi. Þó þú hafir ekki sáð mörg- um fræjum þá báru þau mikinn ávöxt. Það bera Berglind og gullin þín fjögur vitni um. Þá má ekki gleyma samstarfsfólkinu sem tók höndum saman og sendi ykkur í frí til Flórída. Yfirstjórn stofnun- arinnar okkar sem hefur tekið svo mikinn þátt í baráttunni sem gaf okkur öllum mikinn styrk. En það er ekkert skrítið, þvílíkur per- sónuleiki sem þú varst. Það sýndi sig best er þú tókst þátt í Mottu- mars og safnaðir þar meiri fjár- munum en áður hafa sést. Hélst áfram að vinna að björgun manns- lífa eins og starf þitt hefur snúist um síðustu ár. Og hvernig þú und- irbjóst fjölskylduna og allt þitt umhverfi undir brottför þína er einstakt. Síðasta vikan þín er mér mjög kær, elsku Villi. Að hafa fengið það tækifæri að geta verið með þér, útrétta og ganga frá hinum ótrúlegustu hlutum. Það voru ekki margir lausir endar sem þú skildir eftir. Þó voru nokkur verk eftir sem við ætluðum bara að klára þegar ég kæmi aftur suður í tengslum við fermingu frumburð- arins. Ekki fengum við þó tæki- færi til þess, elsku bróðir, því sjúkdómurinn bar þig ofurliði mun fyrr en allir áttu von á. Það voru forréttindi að fá að starfa með og læra af þér og mun það fylgja mér það sem eftir er. Nú ertu kominn á nýjan stað, far- inn að vinna á þyrlu hjá Guði eins og litlu krílin þín segja. Þú skilur eftir þig stórt skarð í fjölskyldu, vinahópi og á vinnustaðnum okkar sem verður vandfyllt. Lífið heldur áfram og við verðum að læra að sætta okkur við að það er ekki allt- af eftir þeirri forskrift sem við óskum. Elsku Berglind, Kristberg Óli, Dagný Heiða, Bjarki Freyr og Guðný Sunna, megi góður Guð styrkja ykkur í þeirri miklu sorg og söknuði sem þið eigið við núna sem og alla sem þekktu Villa. Minning um góðan dreng lifir um ókomna tíð. Guð blessi ykkur öll. Kæri bróðir, ég sem og allir aðrir sem í kringum þig voru mun- um líta eftir englunum þínum og ég veit að þú munt líta eftir okkur hinum og leiðbeina eins og þú hef- ur alltaf gert. Einar og fjölskylda. Af einhverjum ástæðum, sem enginn fær skilið, hefur elskuleg- ur mágur minn Vilhjálmur Óli Valsson (Villi), með allt lífið fram- undan, verið kallaður frá eigin- konu og fjórum ungum börnum, þegar lífið sjálft með öllum sínum möguleikum blasti við. Við sem eftir stöndum skiljum ekki svo harðan skapadóm. Eftir standa minningar um góðan dreng. Hann lést af völdum krabba- meins 30. mars sl. á LSP í faðmi fjölskyldu sinnar. Kynni okkar hafa varað í 23 ár og ýmislegt höfum við brallað sem skemmtilegt er að minnast. Eins og t.d. tíminn í Amsterdam, sum- arbústaðarferðir og ófáu snóker- ferðirnar þar sem ekki var alveg í boði fyrir hann að tapa fyrir stelpu. Þetta voru skemmtilegir tímar. Villi var vel af Guði gerður, bæði til líkama og sálar. Þessar guðsgjafir nýtti hann vel, öðrum til blessunar og sjálfum sér til sóma. Hann var mikill fjölskyldumað- ur enda með fjögur yndisleg börn. Villi var hörkuduglegur, bæði hvað varðar nám og störf, og veit ég að hann gerði það með miklum sóma. Ekki komu umsagnir þeirra sem fylgdu honum í leik og starfi á óvart. Sú færni, hjartahlýja, glað- lyndi og heiðarleiki sem alltaf fylgdi honum smitaði út frá sér, sem best sést á þeim mikla vina- hópi sem hann á. Það kom heldur ekki á óvart þegar maður heyrði starfsfélaga hans hæla honum bæði sem góðum og mikilvægum samstarfsfélaga og fagmanni. Verk hans voru mikils metin og missir mikill. Kærar þakkir, vinur, fyrir margar skemmtilegar stundir sem við höfum átt saman bæði sem vinir og svo er þú varðst mág- ur minn árið ’97 er ég gekk að eiga Birgi bróður þinn. Farðu vel á óþekktum leiðum, allar góðar ósk- ir fylgja þér og megi almættið lina sorg fallegu fjölskyldunnar þinn- ar. Það munu allir líta eftir henni fyrir þig. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín mágkona, Erla Heiðveigardóttir. Elsku Villi minn. Ég man þegar ég kynntist þér fyrst þegar ég var 17 ára ungling- ur. Þú varst svo hress og skemmtilegur strákur með mikla útgeislun að allir vildu vera ná- lægt þér. Þú kolféllst fyrir systur minni og þar með fékkstu þessa frábæru og yndislegu konu til að eyða ævi þinni með. Yndislegu börnin ykkar fjögur komu í far- teskinu síðar á lífsleið ykkar og mun ég hafa auga með þeim í framtíðinni ásamt því að passa vel upp á stóru systur. Við höfum allt- af verið mjög náin sem fjölskylda alveg frá því við kynntumst. Þú varst mér eins og stóri bróðir, varst alltaf með puttana í öllu og vildir fá að fylgjast með og varst mér alltaf innan handar ef það var eitthvað. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér og ég verð að viðurkenna að þú gerðir mig stundum brjálaða enda notfærð- irðu þér um leið og þú vissir á hvaða punkta þú áttir að ýta hjá mér, en það risti nú aldrei djúpt. Þú hafðir mikla ástríðu fyrir því sem þú varst að gera og ef þú tókst eitthvað að þér eða byrjaðir á ein- hverju þá var það aldrei hálfklárað. Lög og reglugerðir heilluðu þig alltaf og þú hefðir verið kandítat í góðan lögmann. Þú varst ávallt svo úrræðagóður, náðir að einfalda flókna hluti á stuttum tíma. Ég fékk þau forréttindi að hafa þig bæði sem yfirmann og aðstoðar- þjálfara í fótboltanum. Sem yfir- maður varstu alltaf svo sanngjarn, réttsýnn og það var ákaflega gott að leita til þín bæði í vinnu og einka- lífi. Þú hafðir auðvitað fáránlega mikið vit á fótbolta og oft spjölluð- um við vel og lengi um það. Það var líka gaman að fá að hlaupa með þér og einn daginn skruppum við út á joggið á aðfangadagsmorgun, mér fannst það alltaf voða kósí en ennþá skemmtilegra þegar við hlupum hálfmaraþon árið 2009 saman í fyrsta skiptið. Við byrjuðum á sama hlaupahraða og þú spurðir mig hvort tempóið væri ekki í lagi, sem var nokkuð hratt en ég var „ókei“ með það. Þú hvattir mig áfram, þangað til við vorum tæplega hálfn- uð að þá þurfti ég aðeins að draga úr hraðanum til að endast hlaupið og þar með kvöddumst við og þú beiðst eftir mér við endalínuna með bros á vör, og þannig kvaddi ég þig, elsku Villi minn, frá þessum heimi, með brosi. Þú náðir að ljóma upp á lokasprettinum og gefa börnum og konu þinni þína síðustu orkudropa áður en kallið kom. Þú varst svo góður og yndislegur maður og varst alltaf tilbúinn að stökkva til ef eitthvað bjátaði á. Þú varst sannur vinur vina þinna og fjölskyldu. Þú varst mörgum svo mikil fyrirmynd og æðruleysi þitt í þessari baráttu var aðdáunarvert. Ég sakna þín ótrúlega mikið og ég mun alltaf elska þig, Villi minn. Hef þín einkunnarorð að leiðarljósi, „don‘t worry, be happy“. Þín mágkona og „litla systir“, Guðný. Dag í senn, eitt andartak í einu, eilíf náð þín, faðir gefur mér. Mun ég þurfa þá að kvíða neinu, þegar Guð minn fyrir öllu sér? Hann sem miðlar mér af gæsku sinni minna daga skammt af sæld og þraut, sér til þess að færa leið ég finni fyrir skrefið hvert á lífs míns braut. Hann, sem er mér allar stundir nærri, á við hverjum vanda svar og ráð, máttur hans er allri hugsun hærri, heilög elska, viska, föðurnáð. Morgundagsins þörf ég þekki eigi, það er nóg, að Drottinn segir mér; Náðin mín skal nægja hverjum degi, nú í dag ég styð og hjálpa þér. Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum frið og styrk, sem ekkert buga má. Auk mér trú og haltu huga mínum helgum lífsins vegi þínum á, svo að ég af hjartaþeli hreinu, hvað sem mætir, geti átt með þér daginn hvern, eitt andartak í einu, uns til þín í ljóssins heim ég fer. (Sigurbjörn Einarsson) Elsku frændi, takk fyrir sam- veruna. Vala Björk, Heiðar Smári, Andri Páll og María Ósk Birgisbörn. Elsku frændi. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, Vilhjálmur Óli Valsson ✝ Helga Axels-dóttir (Lilla) fæddist á Læk, Skagaströnd, hinn 22. júlí 1930. Hún lést 6. apríl 2013 á Landspítalanum í Fossvogi. Foreldrar hennar voru Jóhanna Lár- usdóttur, fædd 1908, dáin 1980, og Axel Helgason, fæddur 1896, dáinn 1971. Systkini Helgu voru sjö sem komust á legg, Ingibjörg Ax- elma, f. 1931, d. 2007, Rúdólf Þór, f. 1936, Þorvaldur Birgir, f. 1938, d. 1997, Ævar, f. 1943, Magdalena, f. 1946, Ester, f. 1948, Brynja, f. 1950. Helga giftist Birni A. Bjarna- syni skipstjóra hinn 14. janúar 1951 í Neskaupstað. Björn var fæddur í Neskaupstað 21. ágúst 1929, hann lést 8. desember 2002. Börn þeirra eru Drífa, f. 1950, maki er Ingimundur Þ. Guðna- son, þau eiga fjögur börn og 12 barnabörn, Dröfn f. 1951, maki er Árni Árnason, þau eiga þrjár dætur og fjögur barnabörn, Helga, f. 1952, hún á þrjú börn og þrjú barnabörn, Axel Jó- hann, f. 1962, sam- býliskona hans er Sonja Elan, hann á fimm börn. Helga ólst upp á Skagaströnd. Hún flutti með Birni til Neskaupstaðar 1950 og þaðan fluttu þau í Kópa- vog þar sem þau voru í nokkur ár þar til þau gerðu sér heimili í Keflavík frá 1958. Árið 1969 fluttu þau hjónin til Singapúr vegna vinnu Björns fyrir Sameinuðu þjóðirnar og eyddu næstu 20 árum í ýmsum löndum Asíu og í Róm. Eftir heimkomuna bjuggu þau síðast í Funalind 13 og Helga síð- asta eina og hálfa árið á Hrafn- istu í Hafnarfirði. Helga vann í nokkur ár í fata- verslun hersins á Keflavíkur- flugvelli en starfaði lengst af sem húsmóðir. Helga verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, 12. apríl 2013. Elsku amma. Við kveðjum þig nú en geymum hjá okkur minn- inguna um ykkur afa. Hvíldu í friði. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. (Þórunn Sigurðardóttir) Birgitta, Rebekka og Helena. Helga Axelsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.