Morgunblaðið - 12.04.2013, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
Kapringen
Dönsk kvikmynd byggð á sönnum atburðum.
Sómalskir sjóræningjar ráðast um borð í
danska flutningaskipið MV Rosen á Indlands-
hafi og er áhöfnin tekin í gíslingu, þ.á m. skips-
kokkurinn Mikkel. Líf skipverja hangir á blá-
þræði og gera sjóræningjarnir kröfu um tuga
milljóna dala lausnargjald. Samningaviðræður
framkvæmdastjóra skipafélagsins og sjóræn-
ingjanna magna svo enn spennuna. Leikstjóri
myndarinnar er Tobias Lindholm sem hefur
m.a. unnið sér það til afreka að hafa skrifað
handrit að 20 þáttum dönsku sjónvarpsþátt-
araðanna Borgen og kvikmyndanna Jagten og
Submarino. Lindholm leikstýrði einnig kvik-
myndinni R en líkt og í Kapringen var leik-
arinn Pilou Asbæk í aðalhlutverki í henni. Aðr-
ir helstu leikarar í Kapringen eru Sören
Malling og Amalie Ihle Alstrup. Kvikmyndin er
ein af tíu sem sýndar verða á norrænni kvik-
myndahátíð í Norræna húsinu fram til 21. apr-
íl.
Berlingske: 4/6
Jyllands-Posten: 5/6
Politiken: 5/6
Oblivion
Jarðarbúar hafa yfirgefið jörðina eftir ára-
langt stríð við óvin, sk. hræætur, utan úr
geimnum. Jarðarbúar þurrausa nú auðlindir
jarðar og búa sig undir flutning til eins af
tunglum Satúrnusar. Jack nokkur Harper og
aðstoðarkona hans Vika standa vaktina á jörð-
inni og gæta þess að eftirlitsflaugar, sk. drón-
ar, séu í lagi en drónar þessir hafa það hlut-
verk að granda hræætum. Dag einn hrapar
geimfar með unga og fagra konu innanborðs.
Jack kemur henni til bjargar og kemst þá að
því að ekki er allt sem sýnist. Myndin var tekin
upp að hluta til á Íslandi, eins og frægt er orð-
ið. Leikstjóri er Joseph Kosinski og í aðal-
hlutverkum Tom Cruise, Andrea Riseborough.
Olga Kurylenko og Morgan Freeman.
Metacritic: 54/100
Rotten Tomatoes: 71%
The Incredible Burt
Wonderstone
Gamanmynd með Steve Carrell í aðalhlutverki.
Carrell fer með hlutverk Burts Wonderstones,
töframanns sem átti góðu gengi að fagna í Las
Vegas með félaga sínum Anton Marvelton,
bauð þar upp á gríðarvinsæla töfrasýningu.
Wonderstone hefur nú misst áhuga á töfra-
brögðum og slitið vinskap sínum við Marvelton.
Götulistamenn hafa tekið völdin og helsta
stjarnan í þeirra röðum er Steve nokkur Grey.
En er Wonderstone búinn að vera eða finnur
hann töfraneistann á ný?
Leikstjóri er Don Scardino og auk Carrells
fara með helstu hlutverk Alan Arkin, James
Gandolfini, Jay Mohr, Jim Carrey, Luke Vanek,
Mason Cook, Michael Herbig, Olivia Wilde og
Steve Buscemi.
Metacritic: 44/100
Rotten Tomatoes: 37%
Bíófrumsýningar
Óminni, sjórán og töfrabrögð
Útbrunninn? Steve Carrell og Olivia Wilde í gamanmyndinni The Incredible Burt Wonderstone.
Til stendur að endurgera kvik-
myndina Point Break frá árinu
1991 og hefur leikstjóri verið ráð-
inn í verkið, Ericson nokkur Core.
Core er einkum þekktur sem kvik-
myndatökumaður en á þó fjórar
kvikmyndir að baki sem leikstjóri,
m.a. Invincible með Mark Wahlberg
í aðalhlutverki. Core sá m.a. um
kvikmyndatöku í hasarmyndinni
The Fast and the Furious og ofur-
hetjumyndinni Daredevil og ætti
því ekki að eiga í vandræðum með
að búa til góðan hasar í endurgerð-
inni.
Óskarsverðlaunaleikstjórinn
Kathryn Bigelow leikstýrði Point
Break á sínum tíma en í henni segir
af alríkislögreglumanni sem
vingast við nokkra brimbretta-
kappa sem grunaðir eru um banka-
rán, í því þeim tilgangi að koma
upp um þá og handtaka. Keanu
Reeves og Patrick heitinn Swayze
fóru með aðalhlutverkin í mynd-
inni, þóttu með endemum svalir og
ekki ólíklegt að þeir hafi brætt
margt meyjarhjartað.
Eitursvalir Keanu Reeves og Pat-
rick Swayze í Point Break.
Point Break
endurgerð
Bandaríska dómsdagsrokksveitin
Witch Mountain heldur tónleika á
Faktorý 7. maí næstkomandi.
Hljómsveitin er þessa dagana á tón-
leikaferðalagi um Evrópu með
hljómsveitinni Cough og mun hafa
átt góðu gengi að fagna og þá sér-
staklega eftir að hún fékk söngkon-
una Uvu Plotkin til liðs við sig.
Witch Mountain mun koma fram
á Faktorý með hljómsveitunum
Plastic Gods og Tundra.
Dómsdagsrokkarar Witch Mountain kemur við á Íslandi í Evrópuferð sinni.
Witch Mountain leikur á Faktorý
Hörku
spennumynd
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Páskamyndin 2013
Stórkostleg
ævintýramynd
fyrir alla
fjölskylduna
Sýnd í 2D
og 3D
ÍSL TAL
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA!
EIN FLOTTASTA
SPENNUMYND ÁRSINS!
Stór og yfirdrifinn
teiknimyndahasar af betri gerðinni.
T.V. - Bíóvefurinn
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
- T.K.
kvikmyndir.is
VJV
Svarthöfði
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
L
L
12
12
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30
G.I. JOE 2: RETALIATION 3D Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
THE CROODS 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 - 6
THE CROODS 2D Sýnd kl. 4
I GIVE IT A YEAR Sýnd kl. 8
SNITCH Sýnd kl. 10:10
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
- V.J.V., SVARTHÖFÐI
- T.K., KVIKMYNDIR.IS
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI!
OBLIVION KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
OBLIVION LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
G.I JOE RETALIATION 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
ADMISSION KL. 8 - 10.20 L
I GIVE IT AYEAR KL. 10.15 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
21 AND OVER KL. 8 14
OBLIVION KL. 5.45 - 8 12
GI JOE KL. 8 - 10.15 16
ADMISSION KL. 5.45 L
OBLIVION KL. 6 - 9 12
KAPRINGEN KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
ADMISSION KL. 5.30 L
THE CROODS 2D ÍSL. TAL KL. 5.45 L
SAFE HAVEN KL. 8 - 10.30 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 8 - 10.30 12
- H.S.S., MBL