Morgunblaðið - 15.04.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Matvælaframleiðsla, tollvernd og fæðuöryggi
Hver á að framleiða
matinn okkar?
Fyrirlesari:
Christian Anton Smedshaug,
doktor í umhverfisfræðum og
höfundur bókarinnar „Feeding
theWorld in the 21st Century.“
mánudagur 15. apríl
kl. 12.00-13.30.
2. hæð Hótel Sögu, í salnum Kötlu
Sjá nánari upplýsingar á
bondi.is
Erindið fer fram á ensku.
Allir velkomnir
- aðgangur ókeypis.
Hádegisfundur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tillaga að lausn á skuldavanda
fólks sem fjármagnaði íbúðarkaup
með hjálp lánsveða fyrir banka-
hrun er til umsagnar hjá þeim líf-
eyrissjóðum sem eiga aðild að
Landssamtökum lífeyrissjóða.
Verði mat sjóðanna þess efnis að
tillagan sé innan heimilda og sam-
þykkt og öll skilyrði gangi eftir
mun ríkissjóður bera mestan
kostnað af afskriftum, að sögn
framkvæmdastjóra Landssamtaka
lífeyrissjóða. Hann segir jafnframt
að niðurstaða við tillögunni muni
liggja fyrir hjá lífeyrissjóðunum
innan tveggja vikna.
Háð miklum skilyrðum
„Það er hugmynd sem við erum
að vinna eftir sem kom út úr sam-
skiptum okkar við stjórnvöld. Hún
er í ákveðnu ferli hjá lífeyrissjóð-
unum um það hvort það sé innan
þeirra heimilda sem sjóðirnir telja
sig geta samþykkt,“ segir Þórey S.
Þórðardóttir, framkvæmdastjóri
Landssamtaka lífeyrissjóða.
Þórey segir að búið sé að kynna
lífeyrissjóðunum tillöguna. „Við höf-
um óskað eftir því að þeir meti þetta
og samþykki eða hafni eftir atvik-
um. Þetta er allt saman háð miklum
skilyrðum og það er ekki ljóst hvort
þetta getur gengið eftir. Stjórnir líf-
eyrissjóðanna þurfa að samþykkja
þetta, fjárveiting ríkissjóðs þarf að
vera trygg, Samkeppniseftirlitið
þarf að samþykkja þetta sem og eft-
irlitsstofnun EFTA,“ segir Þórey.
Í samskiptum við FME
Allir lífeyrissjóðir landsins eru
aðilar að Landssamtökum lífeyris-
sjóða og segir Þórey að sjóðirnir
muni taka afstöðu til tillögunnar
innan tveggja vikna. „Hugmyndin
er að leysa málefni þeirra sem tóku
lánsveð á svipaðan hátt og gert var
með 110% leiðina. Þannig að þau lán
yrðu jöfnuð til samræmis við þá nið-
urfellingu sem aðrir fengu á sínum
tíma,“ segir Þórey.
Fjármálaeftirlitið fylgist náið
með framgangi mála. „Við höfum
verið í samskiptum við FME sem
hefur eðlilega gert ríka kröfu um
það að ef lífeyrissjóðir koma að
slíku samkomulagi, þá verði það að
rúmast innan þeirra heimilda sem
lífeyrissjóðirnir starfa eftir,“ segir
Þórey. Hún segir að sjóðirnir hafi
mjög þröngar heimildir til afskrifta.
„Í tillögunni er gert ráð fyrir því að
lífeyrissjóðirnir taki á sig hluta nið-
urfellingarinnar en aðgerðin eigi þó
að gera sjóðfélaga eins setta. Líf-
eyrissjóðunum er ekki heimilt að
gefa eftir eigur sjóðsfélaga sinna
sem eru eignarréttarvarðar,“ segir
Þórey.
Að sögn hennar þarf fjárheimild
fyrir slíkri aðgerð að fara í gegnum
Alþingi. Verði tillagan samþykkt
þurfa endanleg útgjöld því að fara í
gegnum það þing sem taka mun við
á vordögum.
Tillaga um lausn á skuldavanda lánsveðshóps til umsagnar hjá stjórnum lífeyrissjóða Háð ströng-
um skilyrðum Niðurstöðu að vænta innan tveggja vikna Ríkissjóður beri kostnaðinn að mestu
Tillaga að lausn fyrir lánsveðshóp
Morgunblaðið/Ómar
Húsnæði Lífeyrissjóðir hafa tillögu stjórnvalda til umsagnar.
Á Íslandi lifa flestir þeirra af sem
hljóta stóræðaáverka vegna slysa og
um helmingur þeirra sem gangast
undir bráðar brjóstholsskurð-
aðgerðir vegna lífshættulegra
brjóstholsáverka.
Þetta kom
fram á málþingi
um stunguáverka
á skurðlækna-
þingi sem haldið
var á laugardag.
Þar greindi
Bergrós K. Jó-
hannesdóttir,
deildarlæknir á
skurðsviði Land-
spítala, frá nið-
urstöðum tveggja rannsókna sem
hún hefur unnið að.
Flestir áverkanna vegna slysa
Markmið annarrar rannsókn-
arinnar var að skoða árangur með-
ferðar við stóræðaáverkum hér á
landi. Þar kom fram að slíkir áverk-
ar eftir slys eru fátíðir hér á landi og
lifðu um 78% sjúklinganna áverkann
af, en það telst mjög góður árangur
miðað við slys af þessu tagi.
Hópurinn sem kannaður var voru
allir þeir sjúklingar sem hlutu
stóræðaáverka í kjölfar slyss og
þurftu á gjörgæslumeðferð að halda
á Íslandi frá 1. janúar 2000 til 31.
desember 2011. Í heildina voru þetta
23 einstaklingar sem hlutu 35 æða-
áverka. Um var að ræða 18 slys,
þrjár morðtilraunir og tvo sjálfs-
skaða. Meðalaldur sjúklinganna var
44 ár og var stór hópsins karlmenn,
eða 83%. Af 18 sjúklingum sem lifðu
áverkann af hlutu átta viðvarandi
mænu- eða taugaskaða. Meðalblóð-
gjöf voru þrjár einingar, eða rúmur
einn og hálfur lítri.
Aðgerðir vegna lífshættulegra
brjóstholsáverka fátíðar
Seinni rannsóknin sem Bergrós
greindi frá sneri að brjóstholsskurð-
aðgerðum og afdrifum sjúklinga sem
gengust undir slíkar aðgerðir vegna
lífshættulegra brjóstholsáverka á
árunum 2005-2010. Slíkar aðgerðir
eru fátíðar hér á landi og lifir um
helmingur sjúklinga þær af. Að sögn
Bergrósar telst það ágætur árangur
hjá svo mikið slösuðum sjúklingum.
larahalla@mbl.is.
Flestir lifa af
stóræðaáverka
Góður árangur aðgerða vegna slysa
Bergrós K.
Jóhannesdóttir
Inga Dagmar Karlsdóttir húsfreyja er hundrað ára í
dag. Hún gerði sér glaðan dag í gær með vinum og fjöl-
skyldu, en boðið var til kaffisamsætis í safnaðarheimili
Háteigskirkju. Þrátt fyrir háan aldur er Inga Dagmar
við góða heilsu, stálminnug og fylgist vel með helstu
þjóðmálum. Hannyrðir og kvenfélagsstörf eru meðal
þess sem Inga hefur tekið sér fyrir hendur í gegnum
tíðina. Hún býr nú á dvalarheimili aldraðra að Löngu-
hlíð 3. Æviágrip Ingu er að finna á Íslendingaopnunni í
blaðinu í dag. »22
Fagnar hundrað ára afmæli í dag
Morgunblaðið/Golli
Umhverfisstofnun og bæjarstjórn
Mosfellsbæjar hafa auglýst til kynn-
ingar tillögur að friðlýsingu tveggja
fossa innan marka Mosfellsbæjar,
Álafoss og Tungufoss, sem og
nánasta nágrennis þeirra.
Tillögurnar eru að frumkvæði
bæjarráðs Mosfellsbæjar. Saman-
lögð stærð svæðanna er 2791 hekt-
arar. Svæði þau sem friðlýsingarnar
ná til eru í eigu Mosfellsbæjar. Til-
lögurnar liggja frammi hjá Um-
hverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24,
og á bæjarskrifstofum Mosfells-
bæjar frá 12. apríl til 22. apríl. Þær
eru ennfremur aðgengilegar á
heimasíðu Mosfellsbæjar. Frestur
til að skila inn athugasemdum og/
eða ábendingum rennur út mánu-
daginn 22. apríl 2013.
Vilja friða fossa í Mosfellsbæ
Álafoss, Tungufoss og nágrenni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álafoss Álafosskvosin í Mosfellsbæ.