Morgunblaðið - 15.04.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
TILBOÐSDAGAR 15% AFSLÁTTUR
Vissir þú að margskipt gler geta verið mismunandi að gerð og gæðum?
Við bjóðum eingöngu upp á gler með "free form" tækni og er
sjónsviðið því breiðara en almennt gerist.
Hægt er að ráða hraða skiptingar og sérsníða glerin
eftir þörfum hvers og eins.
Verið velkomin í eina glæsilegustu gleraugnaverslun landsins
Álfabakka 14a s. 527 1515
Frí sjónmæling og sérfræðiráðgjöf í glerjavali.
Glerjadagar
30% afsláttur af öllum sjónglerjum
Ný verslun í göngugötu gleraugnabudin@gleraugnabudin.is
Ljósmyndarinn Olgeir Andrésson
hitti tvo breska ljósmyndara við
Esjurætur aðfaranótt laugardags.
Þeir voru á höttunum eftir
norðurljósum, eins og svo margir
ferðamenn, og ætla að dvelja í
viku hér á landi. Þetta var önnur
nóttin þeirra, en félagarnir tveir
ætla að ferðast um á puttanum
og gista í tjaldi. „Þeir komu
gagngert hingað til þess að ljós-
mynda norðurljósin og voru
komnir með ágætis myndir,“ seg-
ir Olgeir.
Mönnunum var þó heldur kalt,
enda nokkurt frost og vindkæling
þessa nótt. „Þeir létu vel af Ís-
lendingum, sögðu þá afar hjálp-
lega.“ larahalla@mbl.is
Tveir breskir ljósmyndarar ferðast á puttanum um landið til að taka myndir af norðurljósunum
Sofa í
tjaldi í
kuldanum
Ljósmynd/Olgeir Andrésson
Beðið eftir ljósum Tveir breskir ljósmyndarar tjölduðu við Esjurætur um helgina og tóku myndir af norðurljósum.
Liðið Sad Engineer Studios varð
hlutskarpast í samkeppni Háskóla
Íslands og Íslenskrar erfðagrein-
ingar um svokallað Íslendingaapp,
en keppninni lauk á laugardag. Lið-
ið er skipað þremur nemendum í
hugbúnaðarverkfræði við Háskóla
Íslands, þeim Arnari Frey Aðal-
steinssyni, Hákoni Þresti Björns-
syni og Alexander Annas
Helgasyni.
Í keppninni var leitað eftir nýjum
hugmyndum um notkun Íslending-
arbókar á snjallsímum.
Meðal þess sem horft hafi verið
til við mat á öppunum hafi verið
frumleiki, útlit og virkni þeirra auk
þess sem tekið var tillit til virkni
liðanna á samfélagsmiðlum á
vinnslutímanum. Hugmyndir liðs-
ins þóttu nýstárlegar og uppbygg-
ingin forritsins skýr.
Liðið hlaut eina milljón króna í
verðlaun og verður lausn þeirra
nýtt sem viðbót við Íslendingabók.
Þrír nemar í HÍ
unnu keppni um
Íslendingaappið
Flokkur heimilanna
í öllum kjördæmum
Flokkur heimilanna mun bjóða fram
á landsvísu í alþingiskosningunum
sem fram fara þann 27. apríl næst-
komandi. Nafn flokksins féll út í
frétt sem birtist í Morgunblaðinu
síðastliðinn laugardag þar sem
fjallað var um þau framboð sem
bjóða fram á landsvísu í komandi
kosningum. Auk Flokks heimilanna
munu tíu framboð bjóða fram lista á
landsvísu: Björt framtíð, Dögun,
Framsóknarflokkur, Hægri grænir,
Lýðræðisvaktin, Píratar, Regnbog-
inn, Samfylking, Sjálfstæðisflokkur
og Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð.
LEIÐRÉTT
mbl.is
alltaf - allstaðar
Bæjarsjóður Reykjanesbæjar skil-
aði rekstrarafgangi fyrir afskriftir
og fjármagnsliði (EBITDA) um 889
milljónir króna, sem er um 10,21%
af tekjum, samkvæmt uppgjöri árs-
ins 2012. Bæjarsjóður Reykjanes-
bæjar sinnir öllum almennum
rekstri bæjarins.
Einnig var afgangur af rekstri,
eftir afskriftir og fjármagnsliði, um
708 milljónir króna. Það gera um
8,14% af tekjunum. Bæjarsjóðurinn
gerði ráð fyrir einungis 191 milljón
króna í rekstrarafgang, á fjárhags-
áætlun fyrir árið 2012 ásamt við-
aukum. Afgangurinn er því umfram
væntingar, segir í tilkynningu frá
Reykjanesbæ.
Reykjanesbær greiddi niður eina
erlenda lánið sitt og er því ekki
með neinar erlendar skuldbind-
ingar. Samtals lækkuðu skuldir og
skuldbindingar bæjarsjóðs um
3.488 milljónir króna milli ára.
Hreint veltufé frá rekstri er um
358 milljónir króna. Handbært fé
frá rekstri er um 300 milljónir
króna og nam hækkun þess um 241
milljón króna milli ára.
Þrátt fyrir að enn séu vandamál
með fjármögnun vegna fram-
kvæmda við Helguvíkurhöfn og
tapreksturs Reykjaneshafnar um
667 milljónir króna er rekstrar-
niðurstaða samstæðu betri en gert
var ráð fyrir, segir í tilkynningu frá
Reykjanesbæ.
Rekstrarafgangur samstæðu fór
einnig fram úr væntingum. Fyrir
afskriftir og fjármagnsliði
(EBITDA) er hann um 2.803 millj-
ónir króna sem er um 20,15% af
tekjum. Eftir afskriftir og fjár-
magnsliði er tap af rekstri sam-
stæðu um 433 milljónir en gert var
ráð fyrir 492 milljóna króna rekstr-
arhalla samstæðu.
889 milljóna kr.
rekstrarafgangur
Greiddi niður eina erlenda lánið
Morgunblaðið/Kristinn
Reykjanesbær Skuldir lækkuðu.