Morgunblaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2013
mbl.is
Rótin – félag um málefni kvenna
með áfengis- og fíknivanda sendi í
gærmorgun erindi um öryggi
kvenna á meðferðarstöðum til land-
læknis vegna dóms í Héraðsdómi
Reykjavíkur 11. apríl. Þá var 33 ára
karlmaður dæmdur fyrir hrottalegt
ofbeldi gagnvart ungum konum. Í
dómsorðinu kæmi fram að hann
hefði kynnst síðasta fórnarlambi
sínu í áfengismeðferð. Þar var um
að ræða 18 ára stúlku sem hafði
leitað sér meðferðar inni á með-
ferðarstofnun þar sem hún kynntist
ofbeldismanninum.
Ráð Rótarinnar lýsir verulegum
áhyggjum af því að dæmdir ofbeld-
ismenn hafi aðgang að ungum kon-
um, og veiku fólki almennt, innan
heilbrigðiskerfisins.
Unga konan kynntist dæmdum ofbeldis-
hrotta inni á meðferðarstofnun
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
STRANDVEIÐAR„
– ÞESS VEGNA KÝS ÉG VG“
SIGURÐUR KJARTAN HÁLFDÁNARSON
SJÓMAÐUR, BOLUNGARVÍK
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
BOLIR
Á KR. 4.900.-
Str. 40-58
Fleiri litir og munstur
Laugavegi 178 - S. 555 1516
Opið virka daga kl. 11-18,
laugardaga kl. 11-16.
Flott þessi!
skyrta
á 10.900 kr.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Svartar og
klassískar
laxdal.is
Vertu
vinur
á
Frábært
verð
17.900
Dalvegi 16a | 201 Kóp. | nora.is
20% afsláttur
í örfáa daga
Ákveðið hefur verið að aflétta banni
við stangveiði á Þingvöllum.
Bannið var sett á fyrir skömmu og
var m.a. rökstutt með meintum
drykkjulátum veiðimanna að nóttu
til. Var ákvörðunin nokkuð umdeild.
Fram kemur í tilkynningu frá
Þjóðgarðinum á Þingvöllum að emb-
ættið, Landssamband stangaveiði-
félaga og Veiðikortið hafi gert með
sér samkomulag „um að bæta veiði-
menningu við Þingvallavatn með
auknu eftirliti og fræðslu á komandi
veiðitímabili sem hefst 1. maí næst-
komandi“.
Komi í veg fyrir veiðiþjófnað
„Þingvallanefnd heimilar að nýju
stangveiði um nætur í landi Þjóð-
garðsins í sumar enda sameinist að-
ilar um að taka upp eftirlit um nætur
til að koma megi í veg fyrir veiði-
þjófnað, notkun ólöglegrar og skað-
legrar beitu, slæma umgengni,
ónæði og drykkjuskap,“ segir enn-
fremur í tilkynningunni.
Verður ákvörðunin endurskoðuð
að loknu veiðitímabilinu 2013.
Leyfa stangveiði
að næturlagi á ný
Efnt til átaks við Þingvallavatn
Morgunblaðið/Einar Falur
Þingvallavatn Veiðibannið hefur
verið afnumið til loka tímabilsins.