Morgunblaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2013
6,3%
Fastir
vextir
Óverðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
2,5%
Fastir
vextir
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Nýjung í
landslaginu
Við bjóðum fjölbreytt úrval innláns-
reikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
Verðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
Miðað við útgefna vaxtatöflu MP banka 11. apríl 2013.
„Við fögnum þessum nýja samningi
og vonum að hann treysti Reykja-
víkurflugvöll í sessi á þessum stað,“
sagði Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna (FÍA). „Nú hafa
þessi félög sem sinna innanlands-
flugi loksins einhvern grundvöll til
að byggja á til framtíðar.“
Kjartan sagði að öryggisnefnd
FÍA hefði alltaf barist fyrir því að
flugbraut með NA/SV-stefnu á
Keflavíkurflugvelli yrði opnuð.
Hann taldi mikilvægi þess aukast
við það að flugbraut með sömu
stefnu verði lokað í Reykjavík. Það
sé nauðsynlegt fyrir allt flug hér á
landi að hafa NA/SV-flugbraut á
suðvesturhorninu. Flugbraut sem
nýtist millilandafluginu gagnist
einnig innanlandsfluginu.
Einn liðurinn í nýgerðu sam-
komulagi Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra og Jóns Gnarr
borgarstjóra kveður á um að NA/
SV-braut Reykjavíkurflugvallar
verði lokað.
FÍA hélt fund í desember 2006
með þáverandi samgönguráðherra.
Þar kom m.a. fram að kostnaður
við að taka NA/SV-flugbrautina á
Keflavíkurflugvelli í notkun næmi
200-250 milljónum króna. Ekki
liggur fyrir hvað það myndi kosta á
núvirði að taka flugbrautina aftur í
notkun, samkvæmt upplýsingum
frá Isavia ohf. Kostnaðurinn fer
mikið eftir því til hvers nota á flug-
brautina, hvort hún verði einungis
varaflugbraut fyrir innanlands-
flugið eða fullbúin flugbraut fyrir
millilandaflugið. Leggja þarf raf-
magn í flugbrautina og verði farið í
ýtrustu endurbætur þarf einnig að
breyta yfirborðshalla. Engin
ákvörðun hefur verið tekin um
framtíð NA/SV-flugbrautarinnar á
Keflavíkurflugvelli.
Flugmenn vilja fá
NA/SV-flugbraut í
Keflavík
Keflavíkurflugvöllur Þar er NA/SV-
flugbraut sem ekki er í notkun.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nýja flugstöðin á Reykjavíkurflug-
velli verður m.a. fjármögnuð með
peningum sem fást fyrir sölu rík-
isins á hluta flugvallarlandsins, sam-
kvæmt upplýsingum frá innanríkis-
ráðuneytinu. Við afhendingu
landsins mun Reykjavíkurborg
greiða ríkinu 440 milljónir króna.
Viðbótargreiðslur munu taka mið af
því sem fæst fyrir sölu byggingar-
réttar á svæðinu.
Fjármálaráðherra og staðgengill
borgarstjóra undirrituðu samkomu-
lag um kaup borgarinnar á landi
ríkisins í Skerjafirði 14. mars sl.
Svæðið er alls um 112.000 m2. Gert
er ráð fyrir að allt að 800 íbúðir geti
risið á landinu. Samkvæmt frétt
Reykjavíkurborgar sama dag er
verðmæti byggingarréttarins talið
geta orðið 1-3 milljarðar króna.
„Ætla má að hlutur ríkisins verði á
annan milljarð króna og hlutur
Reykjavíkurborgar litlu minni,“
segir í fréttinni. Áætlaður bygging-
arkostnaður flugstöðvarinnar er
750-1.000 milljónir króna.
Flugstöðin eign ríkisins
Verið er að leggja lokahönd á
vinnu við fjármögnun nýju flug-
stöðvarinnar, að sögn Ólafs Sveins-
sonar, fulltrúa ráðherra og for-
manns starfshóps sem vinna á að
markmiðum samkomulags borgar-
stjóra og innanríkisráðherra um
Reykjavíkurflugvöll. Starfshópurinn
mun funda næstkomandi mánudag
um vinnu næstu vikna. Ólafur sagði
stefnt að því að flugstöðin yrði eign
ríkisins. Hann staðfesti það sem
fram hefur komið, að taka eigi nýju
flugstöðina í notkun árið 2015.
Í samkomulaginu kemur fram að
norðaustur/suðvestur (NA/SV) flug-
brautin á Reykjavíkurflugvelli verði
lögð af. Fram kemur í samkomulag-
inu að innanríkisráðuneytið muni
auglýsa lokun flugbrautarinnar í
Reykjavík samhliða auglýsingu
deiliskipulags nýrrar flugstöðvar.
Stefnt er að því að breytt skipulag
liggi fyrir að loknu auglýsingaferli í
október næstkomandi.
Ólafur sagði að lítillega væri búið
að ræða við flugrekstraraðila um
hvernig brugðist yrði við því að NA/
SV brautin á Reykjavíkurflugvelli
yrði tekin úr notkun. Hann sagði
skiptar skoðanir vera um það hvort
mikil þörf væri á því að taka braut á
Keflavíkurflugvelli með sömu stefnu
í notkun. Ákveðnar efasemdir eru
um hvort þörf sé á slíkri flugbraut
fyrir þotur. Ekki er komin niður-
staða en áfram er unnið í málinu.
Ólafur sagði það vera ánægjulegt
við þetta samkomulag innanríkis-
ráðherra og borgarstjóra að nú væri
hægt að fara í framkvæmdir við
Reykjavíkurflugvöll sem bæði ríkið
og borgin sæju sér hag í.
Tekjur af sölu flugvallar-
lands fara í flugstöðina
NA/SV flugbraut í Reykjavík lögð af Efasemdir um þörf fyrir slíka flugbraut
Morgunblaðið/Árni Sæberg/EE
Reykjavíkurflugvöllur Rauði flöturinn á myndinni sýnir í mjög grófum dráttum svæði þar sem fella á hæstu trén
vegna flugöryggis. Gulu brotalínurnar afmarka hindranasvæði A-V flugbrautarinnar til austurs.
Fella á 90-120 grenitré, 10-15
metra há, á u.þ.b. fjögurra hektara
svæði um miðbik vesturhlíðar
Öskjuhlíðar, samkvæmt sam-
komulaginu um Reykjavíkur-
flugvöll. Það er gert til að auka
flugöryggi við notkun austur/
vestur-flugbrautarinnar. Trén
skaga upp í svonefndan hindr-
anaflöt flugbrautarinnar og skapa
því hættu fyrir flugvélar í aðflugi
og flugtaki. Isavia fór fram á það
að trén yrðu lækkuð eða felld ör-
yggisins vegna.
Starfsmenn Flugmálastjórnar
hófu að planta
trjám á svæð-
inu um 1950.
Skógræktar-
félag Reykjavík-
ur ræktaði svo
svæðið upp
ásamt fleirum.
Þórólfur
Jónsson, garð-
yrkjustjóri Reykjavíkur, sagði trén
sem á að fella m.a. standa á öxl í
hlíðinni sem valdi því að þau skagi
hærra upp í loftið en ella. Inn á
milli trjánna er annar lægri gróður.
Öryggisins vegna
HÁVAXIN TRÉ FELLD Á AFMÖRKUÐU SVÆÐI Í ÖSKJUHLÍÐ
Þórólfur Jónsson