Morgunblaðið - 18.05.2013, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.05.2013, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2013 Mannbætandi konfektmoli „Enginn getur gert fyrir þig það sem þú getur gert fyrir sjálfan þig.“ Jorge Bucay Bók sem gerir hið flókna einfalt og lífið skiljanlegra www.forlagid.i s – alvöru bókabúð á net inu Metsölubók um allan heim! Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Talsverður fjöldi verslana og þjón- ustufyrirtækja er opinn á hvíta- sunnudag þrátt fyrir að kveðið sé á um nokkrar takmarkanir á af- greiðslutíma í helgidagalögum. Er meðal annars smærri matvöru- verslunum og bensínstöðvum heim- ilt að hafa opið þennan dag. Opið verður á nær öllum bensínstöðvum landsins. Á það jafnt við um þær stöðvar sem eingöngu selja elds- neyti og þær sem jafnframt bjóða upp á ýmsa aðra vöru eins og mat- vöru. Þá verða allflest veitingahús opin á þéttbýlisstöðum. Á mánudag, annan í hvítasunnu, gilda lög eins og um hefðbundna sunnudaga og er öllum verslunum heimilt að hafa op- ið þá. Þrír flokkar helgidaga Í lögum um helgidagafrið kemur fram að tilgangur laganna sé að vernda helgihald og tryggja frið, næði, hvíld og afþreyingu almenn- ings á helgidögum þjóðkirkjunnar. Eru helgidagar flokkaðir í þrennt. Í fyrsta flokknum eru sunnudagar, annar dagur jóla, nýársdagur, skír- dagur, annar dagur páska, upp- stigningardagur og annar dagur hvítasunnu. Er öll starfsemi heimil á þessum dögum. Í annan flokk falla föstudagurinn langi, páskadagur og hvítasunnu- dagur. Er starfsemi heimil á þessum dögum með takmörkunum. Þannig eru dansleikir og opinberar skemmt- anir t.a.m. bannaðar. Aftur á móti er starfsemi bensínstöðva, lyfjabúða og söluturna heimil. Þá mega verslanir sem eru undir 600 fermetrum að stærð og að minnsta kosti 2/3 velt- unnar sala á matvælum, drykkjar- vöru og tóbaki vera opnar. Fyrir vik- ið verða fjölmargar matvöruverslanir opnar á hvítasunnudag; þar með talið allar verslanir 10-11, þrjár verslanir Nóatúns, tólf verslanir Samkaupa- Strax og ein verslun Samkaupa-Úr- vals á Selfossi. Blátt bann er við hvers konar starfsemi í þriðja flokknum. Nær það til þriggja hátíðisdaga; frá klukkan átján á aðfangadag fram til klukkan sex að morgni annars dags jóla. Opið og lokað á hvítasunnu  Ýmsar verslanir verða opnar á hvítasunnudag  Helgidagar eru flokkaðir í þrennt  Matvöruversl- unum undir 600 fermetrum heimilt að hafa opið  Bann nær einungis til þriggja helgidaga Morgunblaðið/Golli Matvöruverslun Stærri matvöruverslanir verða lokaðar á hvítasunnudag en fjölmörgum minni verslunar- og þjón- ustufyrirtækjum er heimilt að hafa opið. Nær allar bensínstöðvar landsins verða t.a.m. opnar. Sr. Steinunn Arnþrúður Björns- dóttir prestur í Hjallaprestakalli svarar fyrirspurn um hvíta- sunnu á vefnum tru.is. Þar segir hún að hvítasunna sé stofndag- ur kirkjunnar, og einskonar vígsludagur hinnar almennu kirkju sem Guð gefur í Jesú Kristi. „Með því að postularnir töluðu tungum framandi þjóða er heilagur andi kom yfir þá á hinni fyrstu hvítasunnuhátíð, og fengu skilaboð um að fara út um allan heim og djörfung til að predika, þá hefur kirkjan einnig kallað þetta uppskeruhátíð Krists,“ segir Steinunn. Hún segir að líkt og páskahátíðin eigi hvítasunna fyrirrennara í hátíðahaldi í Ísrael. „Hátíðin sem haldin er á þessum tíma að sið gyðinganna er einskonar uppskeruhátíð. Hún er þakk- arhátíð fyrir fyrstu korn- uppskeruna. Þess var jafnframt minnst þegar lýður Guðs hafði móttekið lögmálið á Sínaí. Há- tíðin er því einskonar sátt- málahátíð,“ segir Steinunn. Úthelling heilags anda HVÍTASUNNUDAGUR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslenskum gæðingadómurum hefur orðið vel ágengt við að útbreiða boð- skapinn í Evrópu. Nú eru landsmót í gæðingakeppni haldin í fjórum lönd- um. Norðurlandamót verður haldið í Noregi í haust og reiknað með að gæðingakeppni verði sýningargrein á Heimsleikum íslenska hestsins í Danmörku eftir tvö ár. Fræðslunefnd Gæðingadóm- arafélags LH hefur unnið að kynn- ingu á gæðingakeppni erlendis und- anfarin ár, ekki síst þeir Sigurður Ævarsson formaður og Sigurbjörn Bárðarson. „Við fundum strax að áhugi var á að auka fjölbreytni í hestamennsk- unni. Okkur fannst ganga rólega um tíma en það er líklega eðlilegt ferli,“ segir Sigurður. Haldin hafa verið námskeið og próf fyrir gæðingadóm- ara víða í Evrópu. Er nú kominn töluverður hópur dómara í Dan- mörku, Svíþjóð, Austurríki og Þýskalandi. Í þessum löndum eru haldin landsmót í gæðingakeppni og í sumum tilvikum úrtökumót. „Mikil þörf er fyrir fjölbreytni, að fá möguleika á að taka upp nýtt form. Þá sem koma hingað til að sjá gæðingakeppni á Landsmóti þyrstir í að frjálsræðið sem þar ríkir verði meira notað,“ segir Sigurður. Hann rifjar upp að gæð- ingakeppni þar sem hesturinn er í aðalhlutverki, gangur, útgeislun og karakter, sé hefðin í hestamennsku hér á landi. Keppt hafi verið á fyrsta landsmótinu, 1950, og hafi keppnin lítið breyst síðan. „Þetta er samofið menningarsögu þjóðarinnar,“ segir hann. Aftur á móti hafi íþrótta- keppni, þar sem áhersla sé á getu knapans, komið til mun seinna. Sigurður telur að kynning á gæð- ingakeppni erlendis skapi mikla möguleika í greininni. Öðruvísi hesta þurfi í gæðingakeppni en íþrótta- keppni og þetta geti því aukið sölu og útflutning. Vonandi aukist nýlið- un í hestamennsku og umsvif í reið- kennslu og námskeiðahaldi. „Við verðum að fylgja þessu eftir til að halda forystuhlutverki okkar.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Gæðingar Erlendir hestamenn sem sjá gæðingakeppni hér vilja fá að njóta þeirra í sínu eigin landi. Hesturinn er í aðal- hlutverki og eiginleikar hans fá að njóta sín. Myndin er frá ræktunarbússýningu Auðsholtshjáleigu á Landsmóti. Kynning á gæðinga- keppni erlendis ber ávöxt  Landsmót í fjórum löndum og Norðurlandamót í haust

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.